Síða 1 af 1

1819.is

Sent: Lau 04. Okt 2014 01:00
af gardar
Fyrir þá sem ekki þekkja þá er 1819 ný símaskrá í samkeppni við já.is
Allt gott og blessað við það, ég er fylgjandi samkeppni á markaði og allt það.

Það eru þó nokkur atriði sem ég hef út á að setja.

Á vefnum er hægt að fletta upp nafni mínu og finna heimilisfang og símanúmer, símanúmer sem ég afskráði úr símaskránni fyrir allmörgum árum.

Vefurinn re-directar manni á undirsíðu ef maður skrifar eitthvað í leitargluggann á forsíðunni áður en maður nær að klára að skrifa inn.

Og svo loks virðist þetta battery eitthvað vera tengt honum Ómari Daða vini okkar allra.

Ómar Sigurðsson tæknistjóri

http://1819.is/stjorn
http://1819.is/skipurit
http://1819.is/starfsmenn

Lénið 1819.is var áður skráð á Vefveldið ehf.
http://who.is/domain-history/1819.is

Vefveldið ehf. var/er í eigu Ómars Daða eins og vaktarar muna eftir í þessum þræði viewtopic.php?f=18&t=57757

Það er einhver skítalykt af þessu....

Re: 1819.is

Sent: Lau 04. Okt 2014 02:18
af hkr
gardar skrifaði:Á vefnum er hægt að fletta upp nafni mínu og finna heimilisfang og símanúmer, símanúmer sem ég afskráði úr símaskránni fyrir allmörgum árum.


http://1819.is/ordsending

Re: 1819.is

Sent: Lau 04. Okt 2014 09:57
af Viktor
Ég hef aldrei skilið afhverju fyrirtæki setja vefsíðu í loftið sem er ekki tilbúin. Þetta er meingallað. Bæði viðmótið og virknin.

Re: 1819.is

Sent: Lau 04. Okt 2014 10:40
af slapi
Ekki hægt að tengjast síðunni á erlendri ip tölu

Re: 1819.is

Sent: Lau 04. Okt 2014 16:41
af intenz
Hrollur :dontpressthatbutton

Re: 1819.is

Sent: Lau 04. Okt 2014 17:21
af olafurfo
Ég er greinilega ekki til...

En vá hvað það er þreytandi þegar hún leitar langt áður en maður er búinn að skrifa inn orðið !!