Síða 1 af 1

ISIS? Írak? Sýrland? Íran? Bandaríkin skulu ráða

Sent: Mán 29. Sep 2014 14:09
af Viktor
Magnað hvað það er hægt að bulla mikið í okkur og maður gleypir þetta allt eins og þetta sé hinn heilagi sannleikur.

Datt inn á þessa YouTube rás og ég er frekar gáttaður. Ég er ekki þessi samsæriskenningamaður - en vá. Bandaríkin eru í alvöru að plana þetta til þess að passa að dollarinn(og þeir í framhaldinu) verði ekki undir.

Nota bene er þetta tveggja ára myndband, en útskýrir nákvæmlega hvað er að gerast með ISIS núna. ISIS eru afl sem Bandaríkjamenn hafa óbeint búið til til þess að hafa afsökun til þess að ráðast inn í lönd sem ógna dollaranum.

Vissir þú að í október 2000 leyfðu Sameinuðu Þjóðirnar stjórnvöldum í Írak að skipta yfir í Evru í stað Dollars í verslun með olíu?
Ári síðar ákveða Bandaríkjamenn að þeir skulu ráðast inn í landið til þess að finna gereyðingarvopn sem aldrei voru til... magnað.

Núna þykjast þeir vera að ráðast inn í Írak og Sýrland af mannúðarástæðum... gæti eitthvað meira legið þar að baki?



Hérna er svo nýtt myndband sem útskýrir þetta nánar, getið byrjað á 7:00 fyrir short-version:


Re: ISIS? Írak? Sýrland? Íran? Bandaríkin skulu ráða

Sent: Mán 29. Sep 2014 14:27
af Bjosep
BNA réðist reyndar inn í Írak árið 2003, þá væntanlega þremur árum eftir gjaldmiðlabreytinguna.

http://en.wikipedia.org/wiki/2003_invasion_of_Iraq

Re: ISIS? Írak? Sýrland? Íran? Bandaríkin skulu ráða

Sent: Mán 29. Sep 2014 14:29
af Viktor
Bjosep skrifaði:BNA réðist reyndar inn í Írak árið 2003, þá væntanlega þremur árum eftir gjaldmiðlabreytinguna.

http://en.wikipedia.org/wiki/2003_invasion_of_Iraq


Já, þarna átti standa að þau hafi ákveðið að ráðast inn í Írak, my bad. Það var víst ákveðið 20. september 2001.

Re: ISIS? Írak? Sýrland? Íran? Bandaríkin skulu ráða

Sent: Mán 29. Sep 2014 15:58
af Xberg
Þetta strýðs vesen er allt sviðsett af US ( aðalega Obama nefndinni ) US á og rekur IS, ISIS, ISIL eða hvað sem þeir vilja kalla þessa menn sína.

US og Araba fustarnir eru að ráðast á Sýrland, Gasa, Lýbíu og örugglega eftir að ráðast á Íran líka, og þetta er allt útaf olíu/jarðgasi. US og SÞ eru ekkert nema stýðsglæpamenn, ráðast á lönd sem hafa ekki einu sinni beðið um aðstoð, halda að þeir eigi allan heiminn.

Peace.

Re: ISIS? Írak? Sýrland? Íran? Bandaríkin skulu ráða

Sent: Mán 29. Sep 2014 16:13
af trausti164
Prófaðu að hlusta á No Agenda podcastið, þeir eru alltaf að benda á vísbendingar um svona.