Í dag eru liðin 10 ár frá því DC++ málið komst í hámæli Þriðjudaginn 28 September 2004
Núna Tíu árum síðar er umhverfið öðruvísi og hvern hefði grunað að SMÁÍS væri gjaldþrota og rannsókn í gangi á fjármálamisferli þar á bæ, en Jafningjanetið í fullu fjöri árásir á notendur Jafningjaneta hafa ekki endurtekið sig, Tónlistamenn, Leikja og Kvikmyndaframleiðendur eru enn til og ekki er búið að útrýma þeim með niðurhali eins og svörtustu spár gáfu til kynna, það er alltaf sárt fyrir þá sem missa tölvurnar sínar og persónuleg gögn.
Mér fannst viðeigandi að deila eitthverju í tilefni dagsins, og heyra hvað aðrir netverjar muna eftir þessum aðgerðum.
Ég var að dusta rykið af málsskjölunum og glugga í þeim, get flett upp í þeim ef vantar að vita eitthvað.
Listar yfir gömlu notendanöfnin, sem sýna að fylgst var með öllum notendum
Aðgerðirnar í gær eru aðeins upphafið.. Undirbúningur rannsóknarinnar hefur staðið í nokkra mánuði Jóns H.B. Snorrasonar yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra (29.9.2004)
8ár eða 2ár. RÍKIR "Almanna hagsmunir". Urmull af eftirlits undanþágum. Jafnræðisreglubrot, A little trip to heaven. Niðurstaða = Illa ígrundað og dýrt klúður sponsorað af Smáís og Co.
Dæmi um upplýsingar sem aflað var um fullt af notendum, Ip tölur, Símanúmer, Email, Nöfn, Heimilisföng o.s.f
NetFrelsi - 1. nóvember 2004 kl. 01:12
Netverjar telja aðgerðir lögreglu óhóflegar
Svo virðist sem að netverjar telji aðgerðir lögreglu þann 28. september s.l. hafa verið úr hófi miðað við tilefni ef marka má niðurstöður úr skoðanakönnun sem NetFrelsi hefur gengist fyrir hér á vefsvæði sínu seinustu 15 daga. Alls bárust 2.238 skoðanir og voru þær á þessa leið:
1.599 (71,4%) þóttu aðgerðir lögreglu vera úr hófi á móti 498 (22,3%) sem töldu aðgerðirnar vera eðlilegar miðað við tilefni. 141 (6,3%) taldi sig ekki vera vissan.
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Sun 28. Sep 2014 14:43
af jonsig
Já, ég var nýhættur að hósta tvö af þessum svæðum , Valhöll og miðgaður eða hvað þetta hét. Good times .
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Sun 28. Sep 2014 14:52
af Stuffz
jonsig skrifaði:Já, ég var nýhættur að hósta tvö af þessum svæðum , Valhöll og miðgaður eða hvað þetta hét. Good times .
Já þeir voru að fylgjast með Valhöll o.s.f skv málsskjölunum
þetta eru upplýsingar úr kærunni frá SMÁÍS, og þeir ætluðu að halda áfram eftir fyrsta hópinn en sem betur fer varð þetta eins óvinsælt eins og raun ber vitni að það er ekkert líkt búið að gerast í áratug.
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Sun 28. Sep 2014 15:06
af jonsig
Minnir að ég hafi verið með 5mbps tengingu , og símafyrirtækið mitt var alltaf að fokka í henni .
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Sun 28. Sep 2014 15:08
af rapport
Sagan segir að tölvurnar ykkar hafi verið teknar,fenguð þið þær nokkurntíman aftur?
Ég var nokkuð virkur á DC++ (man að ég var samt með 2x40Gb diska og komst þ.a.l. ekki inn á Valhöll sem gerði köfu um 100Gb share) og hálfpartinn sakna samfélagsins sem torrent formattið hefur ekki.
Bjó á nemendagörðum þar sem sameiginleg tenging var fyrir húsið og ekki hægt að deila gagnamagni niður á íbúðir = draumur downloadarans.
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Sun 28. Sep 2014 15:12
af jonsig
Eins og ég sagði þá var ég nýhættur að hosta fyrir þá , gæjarnir sem tóku við af mér voru teknir í gegn og tölvurnar teknar af þeim .Minnir að þeir hafi ekki séð tölvurnar sínar aftur í mörg ár. Ég var "leystur" af því tengingin mín var ekki nógu stöðug, einhver var að fokka í tengingunni minni taldi ég . Minnir að nafn aðal gaursins hafi verið Ágúst , hann var eitthvað tekinn í gegn enda átti hann apparatið .
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Sun 28. Sep 2014 15:38
af Stuffz
rapport skrifaði:Sagan segir að tölvurnar ykkar hafi verið teknar,fenguð þið þær nokkurntíman aftur?
Ég var nokkuð virkur á DC++ (man að ég var samt með 2x40Gb diska og komst þ.a.l. ekki inn á Valhöll sem gerði köfu um 100Gb share) og hálfpartinn sakna samfélagsins sem torrent formattið hefur ekki.
Bjó á nemendagörðum þar sem sameiginleg tenging var fyrir húsið og ekki hægt að deila gagnamagni niður á íbúðir = draumur downloadarans.
Ég og sjálfsagt flestir hinna fengum aldrei tölvuna aftur og missti þ.e.a.s öll mín persónulegu gögn þennan dag, þurfti að stofna ný aðgengi að síðum sem ég man ekki lykilorðið á allt annað vesen sem fylgir því að tapa tölvu, það var allt tekið lyklaborð, mýs, skjáir o.s.f svo það hefði ekki skipt máli ef ég hefði haft utanályggjandi backup það hefði öruggt verið tekið líka.
og skv þessu hérna http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/ ... 1&Serial=1 (neðst á síðunni). þá segir að tölvurnar okkar hafi átt að afhenta þessum drullusokkum, (í Bretlandi og annarsstaðar er notað persónuupplýsingar í upptækum tölvum til að hafa upp á öðrum notendum og kúga þá til samstarfs með lögfræðihótunum).
Upptækur er gerður til Samtaka myndefnisútgefenda á Íslandi, Framleiðendafélagsins-SÍK, Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar, Sambands hljómplötuframleiðenda og Business Software Alliance tölvubúnaður ákærðu í máli þessu samkvæmt haldlagningarskýrslum lögreglu frá 28. og 29. september 2004.
Mér var hinsvegar sagt að Persónuvernd hafi gert athugasemd við þetta og að tölvunum hafi verið fargað í staðinn fyrir að vera afhentar, en ég hef hinsvegar ekki séð nein gögn um það sem ég get vísað í. hér er reyndar talað eitthvað um þessi mál á vef Persónuverndar en ekkert um tölvurnar http://www.personuvernd.is/efst-a-baugi ... nar/nr/174
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Sun 28. Sep 2014 16:59
af Stuffz
jonsig skrifaði:Eins og ég sagði þá var ég nýhættur að hosta fyrir þá , gæjarnir sem tóku við af mér voru teknir í gegn og tölvurnar teknar af þeim .Minnir að þeir hafi ekki séð tölvurnar sínar aftur í mörg ár. Ég var "leystur" af því tengingin mín var ekki nógu stöðug, einhver var að fokka í tengingunni minni taldi ég . Minnir að nafn aðal gaursins hafi verið Ágúst , hann var eitthvað tekinn í gegn enda átti hann apparatið .
hmm.. Ágúst
Kannast ekki við neinn Ágúst í skjölunum, bara Ásgeir aðal "gagnaveitu" aðgerðaraðila.
Stundum er það gott að búa á litlu landi þar sem allir þekkja alla ;]
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Sun 28. Sep 2014 18:22
af Bjosep
Var ekki Deilir ennþá starfandi á þessum tíma? Voru ekki Valhöll, Ásgarður og Miðgarður á þeirra vegum?
Í málsskjalinu er talað um dci.is en ég hélt að þeir hefðu sprottið upp eftir að Deilir hætti. Rétt eða rangt?
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Sun 28. Sep 2014 18:34
af appel
Ég held að lögreglan sé hætt afskiptum af ólöglegri dreifingu efnis á netinu í dag, tilgangslaus eltingarleikur og jafnvel "svívirðilegustu glæpamennirnir" fá nokkra vikna skilorð. Amma og frænka eru með höbba heima hjá sér í dag að deila efni. Ef þetta DC mál átti að hafa eitthvað forvarnargildi þá hafði það þveröfug áhrif. Íslendingar líta á svona dreifingu efnis, og niðurhal, sem fullkomlega eðlilegan hlut. Mjög áhugaverð þróun allavega.
Halli smáískalli er þarna að segja í fréttum að þetta sé "Langstærsta Mál Þessarrar Tegundar Í Heiminum" umm ok! kannski meinar hann stærsta spunamál í heimi enda lugu þeir Ásgeir Ásgeirsson heil ósköp að rannsóknaraðilum til að fengjust heimildir fyrir þessum harkalegu aðgerðum, Þetta er náttúrulega misnotkun á kerfinu að blekkja framkvæmdarvaldið í landinu svona en þeir sluppu. Snæbjörn er bara lítill töluýkjandi snjókall sem bráðnar í samanburði.
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Mán 29. Sep 2014 21:59
af kizi86
man vel eftir þessu máli.. alveg klárt mál að þeir hafi alveg hætt að fylgjast með dc++ eftir þetta, allaveganna fékk ég aldrei heimsókn, var með hubbinn minn uppi í nær 6 ár
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Mán 29. Sep 2014 22:32
af Bjosep
Stuffz skrifaði:Hérna fann ég gamlar Útvarps og Sjónvarpsfréttir strax daginn eftir á meðan enn var verið að reyna að stunda hræðslu taktík.
Halli smáískalli er þarna að segja í fréttum að þetta sé "Langstærsta Mál Þessarrar Tegundar Í Heiminum" umm ok! kannski meinar hann stærsta spunamál í heimi enda lugu þeir Ásgeir Ásgeirsson heil ósköp að rannsóknaraðilum til að fengjust heimildir fyrir þessum harkalegu aðgerðum, Þetta er náttúrulega misnotkun á kerfinu að blekkja framkvæmdarvaldið í landinu svona en þeir sluppu. Snæbjörn er bara lítill töluýkjandi snjókall sem bráðnar í samanburði.
Væri gaman ef einhver ætti upptöku af hádegisfréttum RÚV 29.sept 2004 (langsótt) þar sem Hallgrímur ýjar að því, með hjálp fréttamannsins sem spyr spurninganna, að þarna hafi menn verið að deila einhverju ólýsanlega ógeðslegu efni.
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Mán 29. Sep 2014 23:03
af Stuffz
Hrotti skrifaði:Ég hóstaði hubbinn í smá stund ekki löngu fyrir bustið, skil ekki ennþá hversvegna ég slapp.
kizi86 skrifaði:man vel eftir þessu máli.. alveg klárt mál að þeir hafi alveg hætt að fylgjast með dc++ eftir þetta, allaveganna fékk ég aldrei heimsókn, var með hubbinn minn uppi í nær 6 ár
Ég veit ekki nákvæmlega hvers vegna það er en þetta dróst allt á langinn, DC++ málið var ekki tekið fyrir fyrr en 2008, ég geri ráð fyrir að lögreglan hafi ekki viljað taka að sér fleiri svona mál á meðan þetta var enn ólokið eftir að þeim varð ljóst að félagarnir Halli og Ásgeir hjá smáís hafði verið að ýkja alla málavexti enda dýrt spaug fyrir lögregluna að þurfa að kaupa 14stk 1tb Lacie 4x250gb utanályggjandi geymslur sem á þesstíma kostnaði hefur verið nálægt 2 milljónir króna fyrir utan allan kostnað við 30 manna aðgerðir um allt land vinnu við að flokka allt draslið o.s.f. fljótt að fara fjármagnið.
Netfrelsi kallaði alla sem lentu í þessu á fund 2 vikum eftir aðgerðirnar og þar lýstu allir því sem kom fyrir þá og það var eiginlega sama sagan með alla, lögreglan var að vinna skv ýktum upplýsingum fá Ásgeiri og Halla og hélt náttúrulega allt það versta um okkur svo þegar það rann upp fyrir þeim ljós þá náttúrulega var farið að í að niðurspila yfirlýsingarnar nú vorum við "Stórtækur notandi" en ekki Höfuðpaur lengur o.s.f
Sá svo að MPA Samtökin voru yfir sig hrifin af Halla og gáfu honum verðlaun fyrir frammúrskarandi "leikhæfileika" enda gátu þau notað þetta klúður sem fordæmi í öðrum löndum þar sem menn vissu ekki betur um málavexti hér. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2005/ ... gri_dreif/
dálítið spec
Bjosep skrifaði:
Stuffz skrifaði:Hérna fann ég gamlar Útvarps og Sjónvarpsfréttir strax daginn eftir á meðan enn var verið að reyna að stunda hræðslu taktík.
Halli smáískalli er þarna að segja í fréttum að þetta sé "Langstærsta Mál Þessarrar Tegundar Í Heiminum" umm ok! kannski meinar hann stærsta spunamál í heimi enda lugu þeir Ásgeir Ásgeirsson heil ósköp að rannsóknaraðilum til að fengjust heimildir fyrir þessum harkalegu aðgerðum, Þetta er náttúrulega misnotkun á kerfinu að blekkja framkvæmdarvaldið í landinu svona en þeir sluppu. Snæbjörn er bara lítill töluýkjandi snjókall sem bráðnar í samanburði.
Væri gaman ef einhver ætti upptöku af hádegisfréttum RÚV 29.sept 2004 (langsótt) þar sem Hallgrímur ýjar að því, með hjálp fréttamannsins sem spyr spurninganna, að þarna hafi menn verið að deila einhverju ólýsanlega ógeðslegu efni.
Hef ekki heyrt það áður, þetta var mér vitanlega allt mainstream efni. það er hádegisfréttir þarna í miðjunni en veit ekki hvaða útvarpsstöð þetta er.
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Þri 30. Sep 2014 08:32
af Bjosep
Stuffz skrifaði:Hef ekki heyrt það áður, þetta var mér vitanlega allt mainstream efni. það er hádegisfréttir þarna í miðjunni en veit ekki hvaða útvarpsstöð þetta er.
Hádegis- og útvarpsfréttirnar eru Bylgjan. Gissur er að lesa.
Í þessari frétt RÚV lék fréttamaðurinn algerlega með Hallgrími og spilaði inn á það að vegna þess að tengipunktarnir voru ekki auðveldlega aðgengilegir tæknifáfróða Nonna og Gunnu út í bæ, þá hlytu menn að hafa verið að deila einhverju ógeðislegu efni þarna inni. Fréttamaðurinn spurði Hallgrim hvort þarna inni hefði verið eitthvað varasamt efni og hann svaraði því til að hann vildi helst ekki þurfa að lýsa því sem fannst þarna inni.
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Þri 30. Sep 2014 19:12
af Stuffz
Hmm eitthver sorglegur gaur reyndi að hacka emailinn minn í gærkveldi og skipta um lykilorð, aldrei gerst áður í 10+ ár sem ég hef haft hann, spec tímasetning
"Microsoft account Security alert We think that someone else might have accessed the Microsoft account ne*****@hotmail.com. When this happens, we require you to verify your identity with a security challenge and then change your password the next time you sign in. If someone else has access to your account, they have your password and might be trying to access your personal information or send junk email. If you haven't already recovered your account, we can help you do it now."
Gott að öll "Höfuðpaura" gögnin eru á öðrum reikningi
E.S ef eitthver hefur fengið peningabeiðnir á goggletranslate/bjagaðri íslensku eða annað frá "nettengdur @tt hotmail.com" síðan í gærkveldi þá vinsamlega láta mig vita.
Bjosep skrifaði:
Stuffz skrifaði:Hef ekki heyrt það áður, þetta var mér vitanlega allt mainstream efni. það er hádegisfréttir þarna í miðjunni en veit ekki hvaða útvarpsstöð þetta er.
Hádegis- og útvarpsfréttirnar eru Bylgjan. Gissur er að lesa.
Í þessari frétt RÚV lék fréttamaðurinn algerlega með Hallgrími og spilaði inn á það að vegna þess að tengipunktarnir voru ekki auðveldlega aðgengilegir tæknifáfróða Nonna og Gunnu út í bæ, þá hlytu menn að hafa verið að deila einhverju ógeðislegu efni þarna inni. Fréttamaðurinn spurði Hallgrim hvort þarna inni hefði verið eitthvað varasamt efni og hann svaraði því til að hann vildi helst ekki þurfa að lýsa því sem fannst þarna inni.
Gott að vita, og já væri fróðlegt að heyra það viðtal.
það minnir mig á það, Smáís var í samstarfi við SAFT spurning hvaða tröllasögum þeir hafi leyft fólki þar að ýminda sér um Jafningjanet þar á bæ.
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Þri 30. Sep 2014 22:40
af SteiniDJ
Ég man eftir þessu rétt eins og þetta hafi verið í gær. Fór og faldi harða diskinn heima hjá ömmu.
Re: DC++ Málið 10 ára í dag
Sent: Þri 30. Sep 2014 23:13
af Stuffz
SteiniDJ skrifaði:Ég man eftir þessu rétt eins og þetta hafi verið í gær. Fór og faldi harða diskinn heima hjá ömmu.
hehehe
nei í alvöru?
ok Skrati sagði mér að eitthver kona á Ísafirði sem var útí búð að kaupa inn rétt eftir þetta og hafi verið að reyna að fá krakkann sinn til að þegja en hann var að biðja hana að ná í diskinn með barnaefninu sem var útí garði, sem hún hafði þá líklega grafið niður eða falið
Það var alveg ótrúlegt hvað þetta varð fljótt að tabúi á einum tímapunkti, nú eru hörðudiskar 20 sinnum stærri en þá og maður á meira diska pláss en allur hubbinn samanlagður á þessum tíma, og enn er ekki heimsendir tónlistar, kvikmynda og leikja kominn eins og þessir kallar eins og í Smáís voru að básúna.
Matador Milljarðar sem þeir voru alltaf að verða af o.s.f. eins og 12 ára gutti sem getur dl hugbúnaði að andvirði milljón (í áþreifanlegu formi innpakkað á búðarhillu) á 1 klst hefði nokkurntímann haft efni á að kaupa viðkomandi efni og ef væri svo ríkur þá ekkert sem segir að efni sem sé niðurhalað sé raunverulega eitthvað sem er notað á móti bara prófað, enda t.d. músíkunnendur í dag miklu upplýstari um hvað þeir vilja afþví þeir hafa prófað svo mikið efni, þegar ungt fólk áður fyrr keypti meira köttinn í sekknum hérna áðurfyrr, já það eru alltaf eitthverjir sem vilja hverfa til fyrri tíma færri valkosta og meiri stýringar á hvað þú máttir fá aðgang að og hvað ekki.