Síða 1 af 1

Vantar hjalp við að velja ísskáp

Sent: Fös 19. Sep 2014 21:55
af olafurfo
Sælir vaktarar

Ætla að kaupa mér ísskáp sem þarf að vera

*allt að 185cm á hæð
*allt að 60cm breiður
*með kæli að ofan og frysti að neðan.

Budgetið mitt er í kringum 120 þúsund.

Reynslan mín af ísskápum er engin... hef átt einn 12 ára gamlan ísskáp sem var að detta í sundur :catgotmyballs

Þeir sem geta hjálpað mér eða komið með punkta, endilega postið :megasmile


Vinsalegast ekkert offtopic

Re: Vantar hjalp við að velja ísskáp

Sent: Lau 20. Sep 2014 00:19
af einarhr
Sæll, ég keypti mér Bosch hjá Elkó í sumar. Þetta er gamalt og gott merki og valdi ég hann framyfir skápa í sama verðflokki frá td Wirpool.

http://www.elko.is/elko/is/vorur/Kaelitaeki1/Bosch_kaeli-_og_frystiskapur_KGV36UL20S.ecp?detail=true

Ég keypti mér þenann í burstuðu stáli og kostaði hann rúmlega 10k meira.. Ég er búin að vera með hann í 2 mánuðu og er mjög sáttur, hann er fljótur að kæla, ágætis skipulag og það sem ég elska mest við hann er grænmetisskúffan sem er rúmgóð.

Re: Vantar hjalp við að velja ísskáp

Sent: Lau 20. Sep 2014 08:42
af audiophile
Samsung maður...

Keypti þennan um daginn, reyndar 179cm stærðina og gæti ekki verið sáttari.

http://www.elko.is/elko/is/vorur/Kaelit ... NDWWEF.ecp

Farðu bara upp í Elko Lindir og skoðaðu úrvalið.

Re: Vantar hjalp við að velja ísskáp

Sent: Lau 20. Sep 2014 23:41
af jonsig
Keypi 190cm með frysti og góðu merki , það sást ekki á honum og fékk hann á 30k. Manni grunar að ískápurinn sé með draug eða eitthvað maður trúir ekki hvað maður fékk hann á góðu verði .

Re: Vantar hjalp við að velja ísskáp

Sent: Fim 25. Sep 2014 07:51
af olafurfo
Þakka innleggin !

Ætla að detta í Elko og skoða úrvalið, líst vel á þennan Samsung isskáp :)