Síða 1 af 1

Ryðbletta bíl

Sent: Fim 18. Sep 2014 15:50
af FriðrikH
Ég er með gamlan bíl sem mig vantar að láta laga ryð við hjólaskálarnar.
Ég hef hvorki tíma né aðstöðuna til að gera þetta sjálfur og er þessvegna að leita að einhverjum góðum til að stoppa bara í ryðið og lakka sæmilega snyrtilega. Ég er alls ekki að leita að dýru professional djobbi þannig að það sjáist ekki að það sé búið að bletta bílinn heldur bara þinnig að ryðmyndunin verði stoppuð og bíllinn verði sæmilega fjarskafagur.

Geta einhverjir vaktarar mælt með góðu verkstæði eða manni?

Re: Ryðbletta bíl

Sent: Fös 19. Sep 2014 02:54
af halli7
Væri flott að sjá mynd af þessu til þess að geta gefið ráð.

Re: Ryðbletta bíl

Sent: Fös 19. Sep 2014 17:05
af FriðrikH
Svona lítur þetta út. Ætli þetta sé orðið of slæmt til að hægt sé að redda þessu tiltölulega ódýrt?

Mynd

Re: Ryðbletta bíl

Sent: Fös 19. Sep 2014 18:24
af morsi
Hjólboginn að neðan virðist vera ónýtur, komin göt í gegn og ryð að innanverðu.
Held þetta verði aldrei ódýrt verk, kemur alltaf meira ryð í ljós þegar er byrjað að vinna í þessu.

Re: Ryðbletta bíl

Sent: Fös 19. Sep 2014 18:32
af Yawnk
morsi skrifaði:Hjólboginn að neðan virðist vera ónýtur, komin göt í gegn og ryð að innanverðu.
Held þetta verði aldrei ódýrt verk, kemur alltaf meira ryð í ljós þegar er byrjað að vinna í þessu.

Ónýtt, ekki ónýtt, alltaf hægt að ''redda'' þessu, ekkert sem sparsl og trebbi getur ekki fixað :megasmile

Re: Ryðbletta bíl

Sent: Fös 19. Sep 2014 18:55
af FriðrikH
Já, ég er nefnilega ekki að leitast eftir að fá þetta 100% bjútífúl, bara ná að stoppa ryðið og setja réttan lit á þetta. Eru ekki einhverjir sem taka að sér svoleiðis djobb, eru ekki til allskonar efni til að sparsla upp í göt á svona dóteríi?

Re: Ryðbletta bíl

Sent: Fös 19. Sep 2014 20:33
af biturk
Hvar ertu a landinu?

Re: Ryðbletta bíl

Sent: Fös 19. Sep 2014 21:54
af FriðrikH
Reykjavík