Xberg skrifaði:Gúrú skrifaði:...
Meira vælið alltaf í þér af það er ekki allt 100%
Hvenar hefur aldþingi stoppað heimskuna í íslenskri lögreglu og ríkisbubbum. Lekamálið hjá löggunni það nýasta og sérstakur saksóknari með ólöglegar símahlerarnir.
Ég var nú líka bara pósta þessu hérna inn til að benda fólki á þetta, fyrst það er svona flókið hérna er þá ekki bara best að fara á bland og tala við mömmurnar þar.
Þó svo að Gúrú geti verið bráður og erfiður í samskiptum, þá breytir það því ekki að gagnrýni hans á "heimurinn er að farast" sýnina þína var alveg viðeigandi.
Það má alveg ræða svona hluti og þróunina í þessum málefnum, það hjálpar þó engum að vera með heimatilbúinn æsing.
Xberg skrifaði:Ég skrifaði ekki þessa grein á mbl og get lítið gert í þeirri grein, vantar betri heimildir í hana og um hvað málið sníst, hvað á að fara hlera og afhverju.
Þessi frétt er spunnin út frá því að í síðustu viku voru tvær ráðstefnur þar sem komið var inn á þessi mál, og rætt um að þetta hafi verið gert erlendis. (Og öll NSA umræðan ætti ekki að hafa farið framhjá neinum.)
Og til að "búa til frétt" var einhver spurður álits á því hvort þetta væri hægt hérlendis miðað við núverandi lög.
Það er búið að vera nóg af fréttum af þessu, bæði í innlendum og erlendum miðlum, þannig að ef þú hefur almennt áhuga á svona málum þá geturu ekki borið það fyrir þig að vita ekki "um hvað málið snýst"
Innlegg þitt virðist hafa haft þann eina tilgang að búa til einhvern æsing úr engu. Og það er líklega rétt hjá þér að slíkt á frekar heima á bland.
Og að öðru, það er hægt að horfa í gegnum fingur sér með innsláttar- og einfaldar/algengar stafsetningarvillur og það er enganveginn gerð krafa um óaðfinnanlegt málfar eða stafsetningu, en það er sjálfsögð kurteisi að huga aðeins að þessum atriðum.
Nema auðvitað þú viljir halda áfram að nota orð eins og "aldþingi" eða "hvenar", en þá er þér auðvitað velkomið að taka þau með þér yfir á bland.