Síða 1 af 1

Bárðarbrunga að gjósa?

Sent: Mið 10. Sep 2014 01:04
af appel
Auknar líkur eru taldar á eldsumbrotum í Bárðarbungu vegna viðvarandi landsigs í öskju eldfjallsins. Þróun mála þar veldur Almannavörnum og jarðvísindamönnum miklum áhyggjum. Stjórnendur Almannavarna hyggjast greina forsætisráðherra frá stöðu mála á morgun.
http://ruv.is/frett/hafa-miklar-ahyggju ... ardarbungu


Svo er Holuhraunsgosið orðið það gosmesta síðan á 19. öld á Íslandi.


Maður veltir fyrir sér hvað gerist ef það allsvakalegasta gerist þarna. Erum við að sjá fram á ný móðuharðindi? Mun verða hér gráhvít slekja yfir öllu landinu í nokkur ár og hitastig lækka um 4-6°c? :shock:

Ég er að bíða eftir að Sigmundur muni ávarpa þjóðina á morgun.

Re: Bárðarbrunga að gjósa?

Sent: Mið 10. Sep 2014 01:38
af rapport
Ef hitastig í heiminum lækkar aðeins, þá erum við a.m.k. að gera okkar gegn global warming...

Re: Bárðarbrunga að gjósa?

Sent: Mið 10. Sep 2014 08:52
af GuðjónR
Þetta er stormur í vatnsglasi.
Löngu farinn að lækka í "ekkifréttunum" þegar þeir byrja að þráhyggjast með þetta aftur og aftur.