Auknar líkur eru taldar á eldsumbrotum í Bárðarbungu vegna viðvarandi landsigs í öskju eldfjallsins. Þróun mála þar veldur Almannavörnum og jarðvísindamönnum miklum áhyggjum. Stjórnendur Almannavarna hyggjast greina forsætisráðherra frá stöðu mála á morgun.
http://ruv.is/frett/hafa-miklar-ahyggju ... ardarbungu
Svo er Holuhraunsgosið orðið það gosmesta síðan á 19. öld á Íslandi.
Maður veltir fyrir sér hvað gerist ef það allsvakalegasta gerist þarna. Erum við að sjá fram á ný móðuharðindi? Mun verða hér gráhvít slekja yfir öllu landinu í nokkur ár og hitastig lækka um 4-6°c?
Ég er að bíða eftir að Sigmundur muni ávarpa þjóðina á morgun.