Síða 1 af 1

iPhone 6

Sent: Þri 09. Sep 2014 19:05
af Joi
Hvað finnst ykkur um nýja iPhoneinn https://www.apple.com/iphone-6/? Mér persónulega finnst þeir of stórir og þeir ættu að halda sér við stærðinna á iPhone 5.

Re: iPhone 6

Sent: Þri 09. Sep 2014 19:07
af GuðjónR
Kemst ekki á apple.com

Access Denied

You don't have permission to access "http://www.apple.com/" on this server.
Reference #18.cb75f8d5.1410289607.135b6cd

Re: iPhone 6

Sent: Þri 09. Sep 2014 19:11
af Joi
Það er öruglega hálf plánettan á apple síðunni núna :-k

Re: iPhone 6

Sent: Þri 09. Sep 2014 19:41
af Tiger
Ég er hrifinn af honum og mun kaupa við fyrsta tækifæri (ekkert suprice þar). Vona líka að Apple Pay komi hingað sem fyrst og víðast. En Apple Watch er svona la la, veit ekki hvað ég held (þarf mikið til að ég skipti út Raymond Weil úrinu).

Sammála með stærðina, hefði viljað að þeir héldu sig við 4" og hefðu möguleika á 4,7" sem + týpa.

Re: iPhone 6

Sent: Þri 09. Sep 2014 21:54
af Viktor
Ég vil alls ekki stærri síma - svo ég er sáttur með 5S í bili :)

Re: iPhone 6

Sent: Þri 09. Sep 2014 22:26
af upg8
Ég fagna stærðinni, nú loksins get ég notað iPhone með mínar stóru hendur. Er að verða brjálaður á 4S símanum mínum.

Annars eru þetta ótrúlega lélegir spekkar, lágt PPI og lélegar rafhlöður og þeir voga sér að nota marketing BS eins og Retina HD og láta eins og það sé eitthvað merkilegt þegar nær allir samkeppnisaðilar bjóða uppá það sama eða betra. Annars er skemmtilegt hvað þeir hafa orðið fyrir miklum áhrifum af Nokia 925 og HTC M8

Annars segi ég takk fyrir að halda heiminum ekki lengur í gíslingu með að berjast gegn NFC og nú eru sumir stórir fjölmiðlar farnir að láta það hljóma eins og það sé eitthvað nýtt að borga fyrir vörur með farsímum.

Re: iPhone 6

Sent: Þri 09. Sep 2014 22:42
af stefhauk
Ég mun alveg 100% fá mér hann þar sem ég er búinn að selja galaxy s4 símann en veit ekki hvort ég fari í 5.5 síminn hugsa að ég láti minni útgáfuna duga.

Re: iPhone 6

Sent: Þri 09. Sep 2014 23:28
af halldorjonz
Þvílíka djókið að 6 síminn sem er 4.7" er með miklu léglegri specca heldur en 5.5" síminn, basicly verið að neyða mann í þann síma, sem mér finnst alltof stór, 4.7" hafði verið svo perfect! wtf sko

Re: iPhone 6

Sent: Þri 09. Sep 2014 23:39
af Tesy
halldorjonz skrifaði:Þvílíka djókið að 6 síminn sem er 4.7" er með miklu léglegri specca heldur en 5.5" síminn, basicly verið að neyða mann í þann síma, sem mér finnst alltof stór, 4.7" hafði verið svo perfect! wtf sko


Sammála, sammála og aftur.. sammála!

Re: iPhone 6

Sent: Þri 09. Sep 2014 23:46
af AntiTrust
Miklu lélegri spekka? Hvaða kynningu voruð þið að horfa á?

Eini teljanlegi munurinn er skjárinn og aðeins betra batterý í plúsinum.

Re: iPhone 6

Sent: Þri 09. Sep 2014 23:53
af Viktor
upg8 skrifaði:Annars eru þetta ótrúlega lélegir spekkar, lágt PPI og lélegar rafhlöður og þeir voga sér að nota marketing BS eins og Retina HD og láta eins og það sé eitthvað merkilegt þegar nær allir samkeppnisaðilar bjóða uppá það sama eða betra. Annars er skemmtilegt hvað þeir hafa orðið fyrir miklum áhrifum af Nokia 925 og HTC M8


Hahaha, mér finnst líka magnað að þeir nái að plata fólk til þess að halda að þeir séu að finna upp 802.11ac WIFI :)

Re: iPhone 6

Sent: Mið 10. Sep 2014 00:09
af viddi
:-"

Re: iPhone 6

Sent: Mið 10. Sep 2014 00:37
af Tesy
AntiTrust skrifaði:Miklu lélegri spekka? Hvaða kynningu voruð þið að horfa á?

Eini teljanlegi munurinn er skjárinn og aðeins betra batterý í plúsinum.


iPhone 6 er ekki með optical image stabilization eins og 6 plus hefur og ekki með þetta landscape support sem getur verið mjög þæginlegt fyrir sum öpp eins og mail og sms. Þegar ég eyði meira en 100þ fyrir það nýjasta vil ekki að sjá 750p skjá. Þeir hefðu átt að hafa specs á iPhone 6 og 6 plus alveg eins fyrir utan batterýið vegna þess að plus er augljóslega stærri sími.

Ég mun samt kaupa hann nonetheless því að mér finnst persónulega iOS þæginlegasta stýrikerfið.

iPhone 6

Sent: Mið 10. Sep 2014 01:00
af AntiTrust
viddi skrifaði::-"


Var akkúrat að handleika gamla Nexus 4jann minn til að rifja upp feelið. Ég fór akkúrat úr honum í 5s útaf stærðinni, finnst 4.0 svo hentug stærð fyrir single hand use.

En þessi samanburður er ekkert annað en fyndinn, og pínu sad á sama tíma. Segir eiginlega bara mest um hvað marketing teamið hjá Google hefur feilað.

Re: iPhone 6

Sent: Mið 10. Sep 2014 10:47
af KermitTheFrog
Tiger skrifaði:Vona líka að Apple Pay komi hingað sem fyrst og víðast..


Nú hef ég ekki kynnt mér þetta neitt, en er Apple Pay eitthvað sérstakt? Er það ekki bara NFC payments? Þurfa búðir að vera með einhvern sérstakan búnað til að virka með Apple Pay sem aðrir NFC símar geta ekki notað?

Re: iPhone 6

Sent: Mið 10. Sep 2014 15:34
af GuðjónR
Það sem ég sakna mest er "VÁ factorinn" ...
Þegar Steve Jobs var og hét þá var endalaust eitthvað nýtt og flott að koma frá Apple.
Það var oft þannig að maður sagði "VÁ" þetta verð ég að eignast, í dag eru þetta bara endurtekningar, engin "VÁ" factor því miður.

Þeir eru jú að endurbæta hluti sem þegar voru til en maður er alltaf að bíða eftir þessum Vá-factor aftur, líklerga svipað og heróinistinn sem endalaust leitar af kickinu sem hann fékk úr fyrstu sprautunni.

Re: iPhone 6

Sent: Mið 10. Sep 2014 20:37
af þorri69
:-"

Capture.JPG
Capture.JPG (268.5 KiB) Skoðað 5164 sinnum

Re: iPhone 6

Sent: Mið 10. Sep 2014 20:45
af AntiTrust
Uppfærslan úr 5s í 6 verður alltaf meira og meira óspennandi.

Re: iPhone 6

Sent: Mið 10. Sep 2014 21:20
af GuðjónR
AntiTrust skrifaði:Uppfærslan úr 5s í 6 verður alltaf meira og meira óspennandi.

Er með 4S og dettur ekki í hug að uppfæra, til hvers? Til að fá 240 fps cameru? Akkúrat það sem allir þurfa. :face
Og fáránlegt að þeir hækki ekki gólfið úr 16GB í amk. 32GB á iPhone og iPad.

Re: iPhone 6

Sent: Mið 10. Sep 2014 22:34
af krissdadi

Re: iPhone 6

Sent: Fös 12. Sep 2014 11:30
af stefhauk
krissdadi skrifaði:https://www.youtube.com/watch?v=O99m7lebirE&feature=player_embedded



Þetta er bara þrýsingur frá meirhlutanum að fá stærri skjáii. mér fannst samsung galaxy s4 hafa perfect skjá stærð svo minni útgáfan af iphone 6 verður perfect


En samkvæmt þessari mynd þarna uppi er hann ekki að bjóða uppá 4g ?

Re: iPhone 6

Sent: Fös 12. Sep 2014 11:40
af Tiger
Check! Svo kemur bara í ljós úti hvort hann sé Unlocked eins og 5s var í upphafi frá T-Mobile, ef ekki þá bara skila ég honum án vandræða.

Screen Shot 2014-09-12 at 11.38.06.png
Screen Shot 2014-09-12 at 11.38.06.png (52.73 KiB) Skoðað 4883 sinnum

Re: iPhone 6

Sent: Fös 12. Sep 2014 11:45
af Arkidas
Tiger skrifaði:Check! Svo kemur bara í ljós úti hvort hann sé Unlocked eins og 5s var í upphafi frá T-Mobile, ef ekki þá bara skila ég honum án vandræða.

Screen Shot 2014-09-12 at 11.38.06.png


Ertu að nota shipitto eða slíka þjónustu eða býrðu úti? Ekkert mál að nota íslenskt kort?

Re: iPhone 6

Sent: Fös 12. Sep 2014 12:00
af Tiger
Sendi á kunningja minn úti. Var ekkert mál að nota íslenskt kort þegar ég keypti 5s allavegana, er bara með secondary billingadressu á Visa sömu og shipping address er.

Kemur í ljós hvort þetta virki aftur eða ekki :)