Síða 1 af 2
Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 16:54
af hakkarin
Ef að þið gætuð tilnefnt 1 bjór sem er seldur í ríkinu á Íslandi (og BARA 1 bjór) sem besta bjórinn (sem þið hafið smakkað, allavega) og 1 sem hinn versta, hvað mynduð þið velja?
Hjá mér væri valið:
Besti: Carlsberg, finnst hann hafa stert korn bragð einhvernveginn sem að ég fýla.
Versti: löwenbrau, hef ekki drukkið mikið af honum þannig að ég get ekki kommnetað mikið of bragð en það er bara að því að hann er svo vondur :S
Og svo einn auka bónus spurning um léttöl. Af hverju er það svona bragðlítið? Ég veit að það er ekki eins áfengt en af hverju er ekki hægt að hafa sterkt bjórbragð án þess að ölið sé mjög áfengt? Kemur ekki bjórbragðið frá bjórhráefninu frekar en áfenginu?
EDIT: Auka bónus spurning: Ef að ég myndi drekka 2-3 léttbjóra á dag væri það óhollt þrátt fyrir lágt áfengismagn?
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 17:03
af rapport
hakkarin skrifaði:EDIT: Auka bónus spurning: Ef að ég myndi drekka 2-3 léttbjóra á dag væri það óhollt þrátt fyrir lágt áfengismagn?
Eins og allt annað, gott í hófi og svo lengi sem þú ert að brenna því en ekki bæta endalaust á þig...
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 17:12
af urban
Besti, vonlaust fyrir mig að svara þessu
Versti; held að ég verði að segja Egils Gull, ég get ekki drukkið hann
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 17:25
af hakkarin
rapport skrifaði:hakkarin skrifaði:EDIT: Auka bónus spurning: Ef að ég myndi drekka 2-3 léttbjóra á dag væri það óhollt þrátt fyrir lágt áfengismagn?
Eins og allt annað, gott í hófi og svo lengi sem þú ert að brenna því en ekki bæta endalaust á þig...
Ertu þá að meina "bæta við þig fitu"? Þú ert ekki að tala um áfengið sem slíkt eða hvað? Basically það sem ég var að spyrja er hvort að það sé hægt að verða alki með því að drekka of mikið af léttöli.
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 17:33
af Leviathan
Besti: Boli
Versti: Blackdeath
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 17:34
af Daz
Ég get ekki gert upp á milli (Besti)
Víking sumaröl
Leffe blonde
Kaldi
Allir eiga sín réttu andartök (hef líka smakkað Mikkeler beer geek breakfast, hann er góður en ansi dýr.)
Versti
Ekki hugmynd, það var reyndar einn jólabjór 2013 sem mér fannst ganga of langt í kryddblöndu en annars finn ég sjaldan vonda bjóra. Bragðlausa eða leiðinlega kannski, en ekki vonda.
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 17:49
af hakkarin
Búinn að finna skýringuna á bragðleysi léttöls á vísindavefnum:
http://www.visindavefur.is/svar.php?id=29989"Tvær aðferðir eru notaðar til að búa til alkóhóllausan bjór:
gerjun er stoppuð strax í byrjun og verður þá til nokkuð sætur en alkóhóllítill bjór
bjórinn er látinn gerjast en alkóhólið er svo fjarlægt með eimingu eða sérstakri síun
Ef eiming hefur verið notuð er oft bætt í bjórinn eftir á þeim rokgjörnu efnum sem hafa gufað upp með alkóhólinu. Þriðja aðferðin er að framleiða léttbjór eins og þekkt er hér á landi, það er á sama hátt og venjulegur bjór en
minna af korni er notað í hann. Minna korn gefur minna af sykrum sem ákvarða jú alkóhólstyrkinn."
Ekki furða að þetta sé flest bragðlaust drasl. Þetta er bara vatn!
Ég væri til í að smakka léttöl sem er framleitt með leit 1 eða 2.
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 18:12
af Steini B
Ég man ekki hver af þeim, en La Trappe er trúlega með besta bjór sem ég man eftir að hafa fengið mér...
En sá versti er klárlega Calrsberg
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 18:23
af appel
Besti: síbreytilegt, en öl-bjórar eru almennt í uppáhaldi, þá sterkir öl t.d. Fuller's Golden Pride (
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=19373)
Versti: Lowenbrau er arfaslakur að mínu mati, hann er vondur volgur og einnig vondur kaldur sem er mjög óvenjulegt fyrir lager-bjór. Oftast nægir að kæla ódýran lager bjór mikið og hann verður bara fínn. En lowenbrau er 5,2% sem þýðir að hann er með doldið háa alkahól prósentu og það er vonda bragðið sem sker sig svona í gegn í þessum bjór.
Annars fylgja verstu bjórarnir eiginlega bara verðinu, ódýrast = vondast, en lowenbrau sker sig úr þó.
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 18:51
af Frikkasoft
Overall Besti: Bríó
Versti: Freyja (eins og að drekka ilmvatn) og Slots (vatnssull)
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 19:40
af Gummzzi
Ég er algjör nýliði þegar kemur að bjór, ekki liðið eitt ár síðan ég byrjaði að drekka svo ég hef ekki smakkað nema um 10-15 tegundir.
En af þeim verð ég að kjósa Löwenbrau sem besta, eitthvað öðruvísi við hann.
Versti hlítur að bríó..
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 21:07
af Black
Besti þessa stundina, (BOLI)
Versti (VIKING LAGER)
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 23:01
af Bjosep
Menn eru eitthvað svaka mikið að hata bríó. Fyrir mér er þetta bara fínn pale ale bjór. Veit ekki alveg hvort hann er það nákvæmlega en það er þannig sem hann bragðast fyrir mér.
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 23:08
af MrSparklez
Þetta er álíka heimskuleg spurning og ''Hver er besta tónlistin ?'' að mínu mati.
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 23:21
af hakkarin
Bjosep skrifaði:Menn eru eitthvað svaka mikið að hata bríó. Fyrir mér er þetta bara fínn pale ale bjór. Veit ekki alveg hvort hann er það nákvæmlega en það er þannig sem hann bragðast fyrir mér.
Mér finnst hann bara svo súr einhvernveginn. Að vísu að þá hef ég bara prófað að drekka hann beint úr dósinni.
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Þri 02. Sep 2014 23:34
af Bjosep
Pale Ale er ekki endilega allra
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Mið 03. Sep 2014 00:26
af Viktor
MrSparklez skrifaði:Þetta er álíka heimskuleg spurning og ''Hver er besta tónlistin ?'' að mínu mati.
Þetta er álíka heimskulegt svar og "Af því bara." að mínu mati.
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Mið 03. Sep 2014 00:39
af biturk
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Mið 03. Sep 2014 00:47
af hakkarin
Önnur spurning um léttöl: Er hægt að valda sér áfengisskaða með því? Ef að ég myndi til dæmis taka upp á því að fara að drekka það í staðinn fyrir gos eða fá mér nokkrar dósir á hverju kvöldi væri það vont fyrir lifrina?
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Mið 03. Sep 2014 00:54
af svanur08
hakkarin skrifaði:Önnur spurning um léttöl: Er hægt að valda sér áfengisskaða með því? Ef að ég myndi til dæmis taka upp á því að fara að drekka það í staðinn fyrir gos eða fá mér nokkrar dósir á hverju kvöldi væri það vont fyrir lifrina?
Þú hefur svona mikinn áhuga á bjór en samt hefuru áhyggjur af lifrinni hmm....
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Mið 03. Sep 2014 02:18
af hakkarin
svanur08 skrifaði:hakkarin skrifaði:Önnur spurning um léttöl: Er hægt að valda sér áfengisskaða með því? Ef að ég myndi til dæmis taka upp á því að fara að drekka það í staðinn fyrir gos eða fá mér nokkrar dósir á hverju kvöldi væri það vont fyrir lifrina?
Þú hefur svona mikinn áhuga á bjór en samt hefuru áhyggjur af lifrinni hmm....
Mér finnst þetta nú bara vera mjög basic spurning ef að maður ætlar að fara að þamba léttöl. Mér hefur verið sagt að það sé ekki hægt að vera fullur af þessu en það þýðir ekki að þetta sé ekkert óhollt.
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Mið 03. Sep 2014 07:41
af kizi86
Besti: Erdinger, eeeelskaði þennan þegar ég drakk áfengi.
Versti: slots, hryllingur í dós
Og svarið við auka spurningunni: ef ert alltaf að drekka 2-3 létt bjóra á dag, alla daga, þá mun það hafa skelfileg áhrif á lifrina til lengri tíma litið.. Þótt áfengis magnið sé lítið þá er það eitthvað, þannig að lifrin er alltaf a fullu að hreinsa burtu áfengið og fyrir rest þá mun hún ekki hafa undan að gera það og líka sjá um að hreinsa allt hitt draslið sem hún sér um
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Mið 03. Sep 2014 09:01
af I-JohnMatrix-I
Besti: La Trappe bjórarnir(dubbel,trippel,quadruppel).
Versti: Carlsberg
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Mið 03. Sep 2014 17:15
af jagermeister
Bjosep skrifaði:Menn eru eitthvað svaka mikið að hata bríó. Fyrir mér er þetta bara fínn pale ale bjór. Veit ekki alveg hvort hann er það nákvæmlega en það er þannig sem hann bragðast fyrir mér.
Bríó er pilsner bjór..ekki pale ale
Re: Besti og versti bjórinn í rikinu. Og 1 Sp um léttöl...
Sent: Mið 03. Sep 2014 18:29
af Bjosep
jagermeister skrifaði:Bjosep skrifaði:Menn eru eitthvað svaka mikið að hata bríó. Fyrir mér er þetta bara fínn pale ale bjór. Veit ekki alveg hvort hann er það nákvæmlega en það er þannig sem hann bragðast fyrir mér.
Bríó er pilsner bjór..ekki pale ale
Fínn bjór engu að síður