Síða 1 af 1
Neyðarsími Símans
Sent: Mán 01. Sep 2014 23:02
af MatroX
Er þetta eitthvað djók þarf maður virkilega að vera hjá símanum til að geta hringt í 9077000 núna liggur netið alveg niðri hjá mér og ég fæ bara upp að hann nær ekki sambandi við dsl línuna,
er hjá NOVA og það kemur bara upp að það sé enginn notandi með þetta símanúmer, er ekki að nenna að vera með teathering í símanum mínum til að komast á netið í nótt
Re: Neyðarsími Símans
Sent: Mán 01. Sep 2014 23:08
af Yawnk
Farðu bara að sofa
Re: Neyðarsími Símans
Sent: Mán 01. Sep 2014 23:11
af Viktor
Ég er hjá Vodafone, ég fæ líka 'það er enginn notandi með þetta símanúmer'.
Prufaðu aðra símasnúru og annan símtengil og athugaðu hvort það sé ekki málið. Ef þú ert með heimasíma - taktu hann úr sambandi og tengdu bara router. Ef heimasíminn er tengdur á öðrum stað og virkar - tengdu þá router þar í staðin fyrir símann.
Re: Neyðarsími Símans
Sent: Mán 01. Sep 2014 23:14
af Danni V8
Hvar býrðu? Ég er internetlaus hérna heima, er hjá Símanum og bý uppá Ásbrú (Keflarvíkurflugvelli)
Re: Neyðarsími Símans
Sent: Mán 01. Sep 2014 23:19
af MatroX
Sallarólegur skrifaði:Ég er hjá Vodafone, ég fæ líka 'það er enginn notandi með þetta símanúmer'.
Prufaðu aðra símasnúru og annan símtengil og athugaðu hvort það sé ekki málið. Ef þú ert með heimasíma - taktu hann úr sambandi og tengdu bara router. Ef heimasíminn er tengdur á öðrum stað og virkar - tengdu þá router þar í staðin fyrir símann.
er búinn að prufa það allt saman
Danni V8 skrifaði:Er á ásbrú líka þannig að þetta er örruglega eitthver bilun eða eitthvað
Re: Neyðarsími Símans
Sent: Mán 01. Sep 2014 23:28
af AntiTrust
Ef þú ert synclaus þá er ekkert sem næturvaktin getur gert fyrir þig, bilanatilkynning til mílu færi aldrei til þeirra fyrr en í fyrramálið ef þetta er línuvandamál. Væri annað mál ef þetta væri bara auðkenningarmál, en syncleysi er yfirleitt línutengt eða innanhúsmál.
Re: Neyðarsími Símans
Sent: Mið 03. Sep 2014 00:27
af Viktor
AntiTrust skrifaði:Ef þú ert synclaus þá er ekkert sem næturvaktin getur gert fyrir þig, bilanatilkynning til mílu færi aldrei til þeirra fyrr en í fyrramálið ef þetta er línuvandamál. Væri annað mál ef þetta væri bara auðkenningarmál, en syncleysi er yfirleitt línutengt eða innanhúsmál.
Míla rekur nú ekki allan búnað sem tengir kúnna Símans við netið
Ýmislegt sem þarf að skoða þeim megin og svo hjá notanda áður en það er hægt að senda Mílu á staðinn.
Re: Neyðarsími Símans
Sent: Mið 03. Sep 2014 03:40
af MatroX
ég er en netlaus eitthver fuckaði upp götuskápnum þegar hann var að tengja aðra íbúð í skápinn
Re: Neyðarsími Símans
Sent: Mið 03. Sep 2014 07:42
af Danni V8
Alltof pirrandi! Það er líka svo lélegt 3g net hérna...
Re: Neyðarsími Símans
Sent: Mið 03. Sep 2014 09:10
af AntiTrust
Sallarólegur skrifaði:Míla rekur nú ekki allan búnað sem tengir kúnna Símans við netið
Ýmislegt sem þarf að skoða þeim megin og svo hjá notanda áður en það er hægt að senda Mílu á staðinn.
M.v. að hann var búinn að prufa alla aðra tengla og aðra snúru innanhús voru yfirgnæfandi líkur á því að þetta væri ekki ISP megin. Auðvitað kemur það fyrir að menn eru óvart teknir úr sambandi, sagt upp, línuvíxl og þess háttar en í langflestum tilfellum endar það hjá Mílu, hvort sem þetta er klúður eða bilun.