Síða 1 af 4

Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 00:04
af rapport
Einhverjir með skemmtilegar sögur á bakvið nikkin sín?

Fékk þetta orð "rapport" á heilann líklega um 1992-3 þegar ég var sendur á heimspekinámskeið og í einhverjum leiðbeiningum á ensku var talað um að hópurinn þyrfti að ná "rapport" og það eina sem mér datt í hug var klámblað og ég þorði ekki að spurja kennarann út í málið og enginn krakkana heldur.

Þurfti að fletta því upp þegar ég kom heim...

Fyrir þá sem ekki vita, þá er nikkið mitt ekki til höfuðs klámblaðinu heldur þessu - http://en.wikipedia.org/wiki/Rapport

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 00:26
af I-JohnMatrix-I
Ég nota þetta nick í BF, svo er Arnold í miklu uppáhaldi og þá sérstaklega í myndinni Commando. Characterinn sem Arnold leikur í Commando heitir John Matrix. :happy

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 00:29
af Orri
Ótrúlegt en satt, þá heiti ég Orri í alvörunni líka! :megasmile
Frumleikinn var greinilega í hámarki þegar ég skráði mig á þetta spjallborð fyrir tæpum 7 árum :)

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 00:32
af J1nX
köttur vonda gaursins í inspector gadget heitir Jinx

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 00:38
af MrSparklez
Það var í einhverjum þætti í the simpsons, held ég í seríu fimm sem að það var mynd af honum Homer sem svona lukkudýr á asísku þvottaefni, í auglýsingum var hann kallaður MrSparklez.

http://imgur.com/AZww3P4

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 00:59
af Plushy
Heiti þetta í nánast öllum leikjum sem ég hef spilað í gegnum tíðina. Forums, reddit, miðlum ofl. ef nafnið er ekki tekið.

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 01:00
af Tesy
Hét alltaf Tesy í öllum leikjum en því miður er þetta nafn aldrei laust í dag.

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 01:05
af MrSparklez
Plushy skrifaði:Heiti þetta í nánast öllum leikjum sem ég hef spilað í gegnum tíðina. Forums, reddit, miðlum ofl. ef nafnið er ekki tekið.

Nett uppskrift hjá þér, http://www.reddit.com/user/Plushy .

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 01:11
af Danni V8
Ég notaði alltaf bara nikkið mitt, Danni, á öllum forums. Ég er meira að segja með danni hjá símnet emailið. Ég átti einhverntíman nikkið danni hérna líka, fyrir ca 10 árum. En ég póstaði aldrei og stein gleymdi síðan passwordinu. Síðan ætlaði ég að restarta passwordið en þá var ég hættur með emailið sem ég notaði til að skrá mig á síðuna fyrst, eða meira e-mail þjónustan var hætt. Svo ég bjó til nýjan account og bætti við V8 útaf því að ég er alveg ótrúlega mikill bílaáhugamaður og V8 vélar hafa alltaf verið í uppáhaldi hjá mér. Einnig hafði ég nýlega keypt mér minn fyrsta V8 bíl.

Síðan byrjaði ég að kalla mig DanniV8 í öllum leikjum og þannig og þetta nikk er alltaf laust á öllum síðum, sem Danni er ekki, ekki einusinni erlendum. Svo ég bara hélt mig við það :)

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 02:24
af Viktor
Ekki hugmynd.

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 02:46
af HalistaX
Var að spila Team Fortress 2 fyrir einhverjum 5-7 árum og á sumum serverunum stóð hlstatsx og ég bar það alltaf fram Halistax(enda bara lesblind smápíka þá).

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 07:10
af mercury
ef ég man rétt þá fann ég mercury í lotukerfinu eða allavegana í náttúrufræðitíma :D, þegar ég var í 7bekk eða svo.

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 07:54
af trausti164
Trausti er alltaf tekið á öllum síðum þannig að einhverntíman notaði ég random number generator og fék 164 og hef notað þá tölu fyrir aftan nafnið mitt síðan.

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 08:04
af kizi86
var alltaf kallaður krizzi af mínum vinum back in the day, svo sendi einn vinur minn mér sms og gerði smá stafsetningarvillu og kallaði mig kiza, síðan festist þetta bara við mig, varð nickið mitt á ircinu í ein 10 ár eða svo, svo heiti ég þetta á ÖLLUM forums og síðum og leikjum, og 86 er náttúrulega mitt fæðingarár þar sem ég er svo ógeðslega frumlegur ;)

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 08:18
af FuriousJoe
Rakst á tölvuleikjaspilara fyrir um 6 árum sem kallaði sig SkeletonJack, fór þá að nota FuriousJack, stuttu seinna var það nafn frátekið einhverstaðar svo ég breytti því í FuriousJoe og hef notað það síðan :)

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 08:35
af worghal
ég var aldrei fastur á nafni fyrr en ég fann upp á Worghal, en allir halda að ég hafi stolið þessu úr Lord of the Rings af einhverri ástæðu :-k
en ég fann þetta nafn upp þegar ég var að búa til character í wow í þegar leikurinn kom út og vantaði nafn sem passaði mjög vel við Tauren Warrior, hef heitið þetta síðan þá á öllu.

þegar það er leitað að worghal í wow armory, þá á ég bara sirka 3 af þeim. einhver fífl að stela nafninu mínu! :mad

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 09:19
af C2H5OH
Hrikalega skemmtilegur og fjölhæfur vökvi

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 09:24
af GuðjónR
Valdi mitt af því að a) er sérlega hugmyndaríkur, b) það er gott að vera anonymous á netinu!
:fly

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 09:33
af Stutturdreki
Var kallaður þetta af crushinu mínu í framhaldskóla fyrir tugum ára síðan, eftir að ég var dreginn upp á svið á atburði sem kallaðist Stutt sem fól í sér að spúa eldi (dreki). Kind of stuck.. og er aldrei frátekið neinstaðar þar sem ég hef skráð mig.

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 09:49
af oskar9
Heitir Óskar, og er fæddur 1990 svo Oskar9 var frekar basic...

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 10:53
af rapport
worghal skrifaði:ég var aldrei fastur á nafni fyrr en ég fann upp á Worghal, en allir halda að ég hafi stolið þessu úr Lord of the Rings af einhverri ástæðu :-k
en ég fann þetta nafn upp þegar ég var að búa til character í wow í þegar leikurinn kom út og vantaði nafn sem passaði mjög vel við Tauren Warrior, hef heitið þetta síðan þá á öllu.

þegar það er leitað að worghal í wow armory, þá á ég bara sirka 3 af þeim. einhver fífl að stela nafninu mínu! :mad


Hvernig tengist worghal LOTR?
Er það bara e-h algengur feill hjá fólki?
Tel mig vera smá LOTR nörd og næ a.m.k. ekki að tengja...

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 11:19
af Hnykill
Á sínum tíma þegar Quake 2 FFA var mikið spilað á símnet serverunum var til clan á Suðureyri sem hét "ULP" .. eða Útá Landi Pakk. pabbi gamli var að spila í því með nickið "Bambi".. eitthvað svona lítið og sætt að murka lífið úr öðrum var frekar fyndið þá :Þ ..svo ég fékk nafnið "Hnykill".. svona fluffy lítill Hnykill að rúlla yfir alla \:D/

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 11:48
af urban
Afi minn bar þetta sem ættarnafn.

Ákvað að halda þessu allavega við á einhvern hátt þegar að hann dó kallin í ágúst 2001, hef verið með þetta nick síðan þá semsagt.

byrjaði nær eingöngu sem nick á DC samfélögum til að byrja með, varð síðan fljótlega notað við allt annað líka.

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 12:01
af mikkidan97
Vegna þess að ég heiti Mikael Danielsson og er stundum kallaður Mikki, sem er oft frátekið í leikjum og þá bætti ég við dan og þegar það var frátekið í einhverjum leik fyrir eitthvað mörgum árum notaði ég 97 vegna þess að ég er 97 módel.

Re: Why you picked your nick?

Sent: Mán 01. Sep 2014 12:23
af Daz
Afþví að ég er svo hreinn.

Og svo eru öll nöfn með "Z" í svöl, það vita allir.