Síða 1 af 1

kostnaður við að panta fot fra HM usa

Sent: Mán 18. Ágú 2014 09:45
af Aimar
Sælir.

Hvernig reikna eg ut kostnað fyrir fot fra Usa?
S.s. tollar osfv.?

Re: kostnaður við að panta fot fra HM usa

Sent: Mán 18. Ágú 2014 10:05
af hagur
Bara bætir 25.5% vaski ofaná verð+flutningskostnað og svo blessuðum tollinum. Eins og við er að búast þá eru skrilljón undirflokkar þegar kemur að fatnaði og fer tollprósentan því mögulega eftir því hvort að þetta eru nærbuxur eða bindi sem þú ert að kaupa.

Edit: Sýnist reyndar í fljótu bragði að flest allir flokkarnir undir "Fatnaður" beri 15% toll.

Nánar hér: http://www.tollur.is/default.asp?cat_id=1700

Re: kostnaður við að panta fot fra HM usa

Sent: Mán 18. Ágú 2014 10:19
af Klemmi
Svo fer eftir því með hvaða flutningsaðila þetta fer hvernig það er með tollskýrslu/umsýslugjald.

Ef þetta er sent með einhverjum generic flutningsmáta, sem sagt ekki DHL, FedEx, UPS o.s.frv. að þá er almennt 550kr.- umsýslugjald hjá póstinum fyrir sendingar undir 30.000kr.- (með flutningskostnaði, tolli og öllu) en rúmar 3.000kr.- fyrir sendingar yfir 30.000kr.- þar sem þá þarf að gera full blown tollskýrslu.