Síða 1 af 1
Heilsugæsla sem er opin um helgar?
Sent: Lau 16. Ágú 2014 14:22
af capteinninn
Vitið hvort það sé einhver heilsugæsla sem er opin um helgar fyrir utan læknavaktina?
Nenni ekki að bíða þar í 2 tíma eftir 5 mínútna heimsókn eða fara uppá slysó og bíða þar í 5 tíma.
Re: Heilsugæsla sem er opin um helgar?
Sent: Sun 17. Ágú 2014 03:38
af Viktor
Ef þú nennir ekki að bíða þá er þetta ekki svo mikilvægt að þú getir ekki klárað þetta á virkum degi
Re: Heilsugæsla sem er opin um helgar?
Sent: Sun 17. Ágú 2014 06:22
af worghal
læknavaktin í smáratorgi er opin held ég
Re: Heilsugæsla sem er opin um helgar?
Sent: Sun 17. Ágú 2014 12:14
af capteinninn
Sallarólegur skrifaði:Ef þú nennir ekki að bíða þá er þetta ekki svo mikilvægt að þú getir ekki klárað þetta á virkum degi
Haha já þetta eru bara umbúðir eftir sauma sem ég ætlaði að láta líta á, mig langar svo í sund eða eitthvað en get það ekki með umbúðirnar.
Fer bara á morgun.
FYI ekki treysta túristum á bílum
Re: Heilsugæsla sem er opin um helgar?
Sent: Sun 17. Ágú 2014 13:30
af GuðjónR
capteinninn skrifaði:Haha já þetta eru bara umbúðir eftir sauma...
...FYI ekki treysta túristum á bílum
Var útlendingur að keyra á þig?
Re: Heilsugæsla sem er opin um helgar?
Sent: Sun 17. Ágú 2014 18:44
af capteinninn
Var á mótorhjólinu og túristar keyrðu beint í veg fyrir mig.
Náði að sleppa framhjá bílnum en missti stjórn á hjólinu rétt eftir það og lenti í jörðinni.
Var í 100% rétti, þetta var bara klassískt SMIDSY.
Þurfti nokkra sauma á hnéð og hjólið eyðilagðist. Get ekki farið í sund eða hreyft mig of mikið útaf umbúðunum sem eru og mig langaði að losna við umbúðirnar fyrir helgi eða um helgina svo ég gæti gert eitthvað en það bíður bara þangað til á morgun.