Síða 1 af 2

Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Þri 12. Ágú 2014 19:37
af Tiger
Hafið þið eitthvað skoðað aurabod.is ? Svolítið grunsamlegt að síðan skulu alltaf hrynja þegar boðin eru að klárast og allir sem hafa greitt virðast tapa sínu.

Einn eiganda var dæmdur í 3,5ár vegna fjársvika við íbúðalánasjóð og bíður eftir að hefja afplánun. Hentugt much?

Þegar spurt er um þetta er svarið þeirra „Við bara eiginlega viljum ekki blanda því inn í þetta," ](*,)

Fjársvikamaður með uppboðssíðuna Auraboð

Uppboðssíðan Auraboð hrynur enn á ny

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Þri 12. Ágú 2014 19:44
af GuðjónR
Ekki veit ég hvort rétta séð að vorkenna fólki sem lætur glepjast af svona síðum eða hlæja að því.
Mér dettur nú bara þetta í hug:
Good day mister, I'm calling from Microsoft, please give me all your passwords and credit card numbers.

Hey! pant frá nýjan bíl á 6 krónur og 50 aura!

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Þri 12. Ágú 2014 19:52
af Tiger
400 klukkutímar eftir af boðinu, kostar að bjóða þannig að það á eftir að hrúgast inn boð og svo hrynur síðan ........

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Þri 12. Ágú 2014 20:35
af Baldurmar
Sá þessa síðu einmitt "poppa" upp fyrr á árinu, fannst þetta meira en lítið undarlegt..
Sérstaklega skrýtið þegar þeir fóru að kenna hinum og þessum fyrirtækjum um að "þola ekki álagið".

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Þri 12. Ágú 2014 21:12
af GuðjónR
Þetta kallast "penny auctions".
Getið lesið um svona síður:
http://jimmyglaughlin.hubpages.com/hub/ ... e-question
http://www.fraud.org/penny-auctions

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Þri 12. Ágú 2014 21:29
af Haxdal
haha svo ok .. þeir eru að búast við því að 540 manns fari og bjóði í bílinn. "fyrsta boð" kostar 6.000kr, svo 540*6.000 = 3.240.000kr eða meira en bíllinn kostar, svo að auki þá búast þeir við að fólkið fari og bjóði aukalega í bílinn og það gæti farið uppí einhverja hundrað (þús.) kalla. Fínasti gróði í þessu fyrir gaurana á bakvið síðuna ef þetta verður eitthvað vinsælt og nær þessum 540 manns, annars þá bara "fiffa" úrslitin og láta "vin" vinna þetta (og losna við að "kaupa" bílinn) og halda svo öllu sem fólk hefur borgað fyrir að mega bjóða í bílinn.

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Þri 12. Ágú 2014 22:02
af hagur
Mágur minn vann sjónvarp hjá þeim fyrir nokkrum dögum, verður spennandi að sjá hvort hvort hann fái það afhent :-)

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Þri 12. Ágú 2014 23:18
af roadwarrior
Er þetta ekki svipað og þessi síða :
http://www.madbid.com/

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 10:08
af Some0ne
Mér reyndar fannst þetta bara sniðugt concept þegar að ég sá þetta fyrst..

A: Sá sem er að "selja" vöruna fær alltaf sitt
B: Auraboð græða umfram bids
C: Einn aðili fær hlut á brotabrot af því sem hann kostar

Þeir eru með disclaimer núna efst á síðunni hjá sér varðandi það að þeir ætli að skipta um hýsingaraðila.

Ég er in no way tengdur þessu batterí, fannst þetta bara sniðugt þegar að ég sá þetta fyrst.

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 10:18
af natti
Some0ne skrifaði:Mér reyndar fannst þetta bara sniðugt concept þegar að ég sá þetta fyrst..

A: Sá sem er að "selja" vöruna fær alltaf sitt
B: Auraboð græða umfram bids
C: Einn aðili fær hlut á brotabrot af því sem hann kostar

Þeir eru með disclaimer núna efst á síðunni hjá sér varðandi það að þeir ætli að skipta um hýsingaraðila.

Ég er in no way tengdur þessu batterí, fannst þetta bara sniðugt þegar að ég sá þetta fyrst.

C-liður getur farið á báða bóga, gætir allt eins endað í að borga mun meira en hluturinn kostar, og til dæmu um slíkt á sambærilegum síðum.
Því þú endar svo í þeirri lúppu að þú *verður* að vinna, því annars ertu bara að gefa pening og færð ekkert í staðinn.
Það er ekki beint að ástæðulausu að fólk er varað við síðum sem hafa þetta fyrirkomulag.

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 10:36
af dori
Þetta er góð hugmynd á sama hátt og smálán eru góð hugmynd -> Engan vegin.

Á yfirborðinu hljómar þetta kannski vel... Þú getur fengið vöru fyrir lítinn hlut af því hvað hún kostar. En það eru bara gríðarlega litlar líkur á því og þetta á miklu meira skylt við tengingakast en raunverulegt uppboð.

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 11:11
af hagur
Er þetta í raun ekki bara enn eitt formið af gambling/happadrætti/lottó ?

Þú ert reiðubúinn til að borga XXX upphæð gegn því að eiga séns á að vinna hærri upphæð og/eða vöru.

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 11:41
af dori
hagur skrifaði:Er þetta í raun ekki bara enn eitt formið af gambling/happadrætti/lottó ?

Þú ert reiðubúinn til að borga XXX upphæð gegn því að eiga séns á að vinna hærri upphæð og/eða vöru.

Algjörlega. En fólk á bakvið svona mun berjast gegn því með öllum ráðum til að þurfa ekki að hlýta lögjöf sem á að ná yfir happadrætti. Svo er alltaf efinn um að þessir þremenningar á bakvið þennan tiltekna vef séu heiðarlegir. Ég myndi ekki treysta því.

Svo er þetta alltaf að vinna á því að fólk sem skilur ekki tölur taki þátt í þessu. Ég hata hluti eins og þetta (og t.d. smálán) sem byggja á því að gefa fólki villandi upplýsingar þannig að það fattar ekki að það er verið að fara illa með það.

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 12:26
af Tiger
Some0ne skrifaði:Þeir eru með disclaimer núna efst á síðunni hjá sér varðandi það að þeir ætli að skipta um hýsingaraðila.

Ég er in no way tengdur þessu batterí, fannst þetta bara sniðugt þegar að ég sá þetta fyrst.

Það er búið að vera síðan í júlí..og er síðan búin að "hrynja" síðan þeir fóru til nýja aðilans samkvæmt þessu.

En ef fólk er í þessu af einhverji alvöru, þá tekur það ekki dæmdan fjárglæpamann sem bíður eftir afplánun með sér í svona.....eins og að fá Steingrím Njálsson með sér í að opna leikskóla.

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 12:48
af GuðjónR
Hefur einhver hérna unnið eitthvað þarna?
Eða þekkiði einhvern sem hefur unnið?

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 12:51
af Some0ne
natti skrifaði:C-liður getur farið á báða bóga, gætir allt eins endað í að borga mun meira en hluturinn kostar, og til dæmu um slíkt á sambærilegum síðum.
Því þú endar svo í þeirri lúppu að þú *verður* að vinna, því annars ertu bara að gefa pening og færð ekkert í staðinn.
Það er ekki beint að ástæðulausu að fólk er varað við síðum sem hafa þetta fyrirkomulag.

Sko, miðað við dæmin um erlendu síðurnar sem að ég las þá voru "bids" miklu hærri tölur, og þá væri auðvelt að rjúka umfram raunvirði hlutarins.
Þarna ertu hinsvegar bara að borga startgjald, mismikið eftir verði hlutar, og svo ertu að bjóða aura/einakrónur, það er ekki fræðilegur að þú náir að fara umfram verð á flestum hlutum þarna.

GuðjónR skrifaði:Hefur einhver hérna unnið eitthvað þarna?
Eða þekkiði einhvern sem hefur unnið?

Hagur þarna fyrir ofan segist þekkja einhvern~

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 13:21
af dori
Some0ne skrifaði:

Ekki í boðinu sjálfu. En "gjöldin" fyrir boðið geta hæglega farið upp fyrir það. Og það er einmitt það sem er stóra málið við þetta.

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 13:49
af hagur
Some0ne skrifaði:
natti skrifaði:C-liður getur farið á báða bóga, gætir allt eins endað í að borga mun meira en hluturinn kostar, og til dæmu um slíkt á sambærilegum síðum.
Því þú endar svo í þeirri lúppu að þú *verður* að vinna, því annars ertu bara að gefa pening og færð ekkert í staðinn.
Það er ekki beint að ástæðulausu að fólk er varað við síðum sem hafa þetta fyrirkomulag.

Sko, miðað við dæmin um erlendu síðurnar sem að ég las þá voru "bids" miklu hærri tölur, og þá væri auðvelt að rjúka umfram raunvirði hlutarins.
Þarna ertu hinsvegar bara að borga startgjald, mismikið eftir verði hlutar, og svo ertu að bjóða aura/einakrónur, það er ekki fræðilegur að þú náir að fara umfram verð á flestum hlutum þarna.

GuðjónR skrifaði:Hefur einhver hérna unnið eitthvað þarna?
Eða þekkiði einhvern sem hefur unnið?

Hagur þarna fyrir ofan segist þekkja einhvern~

Hann vann uppboðið á sjónvarpinu, en er ekki búinn að fá það afhent ennþá. Við skulum bíða og sjá :-"

Ég treysti þessu batterí-i varla fyrir horn ....

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 14:04
af Labtec
Ekkert mál að gefa nokkur sjónvarp, apple/ipad tölvur til að láta þetta apparat lita ut fyrir vera legit

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 14:34
af Some0ne
dori skrifaði:Ekki í boðinu sjálfu. En "gjöldin" fyrir boðið geta hæglega farið upp fyrir það. Og það er einmitt það sem er stóra málið við þetta.

Dööö, hvað helduru að fólk sé að gefa vörur sem eru þarna inni?

Auðvitað vilja þeir endursöluaðilar sem láta auraboð selja fyrir sig hluti fá endursöluverð fyrir hlutinn, hver og einn einstaklingur eyðir hinsvegar aldrei einhverri stjarnfræðilegri upphæð.

Labtec skrifaði:Ekkert mál að gefa nokkur sjónvarp, apple/ipad tölvur til að láta þetta apparat lita ut fyrir vera legit

Hugsa að þeir hafi ekki verið að gefa neitt, það hefur næstum alltaf verið lágmarksþáttökufjöldi, sem coverar akkúratt verðið á vörunni.

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 17:04
af slapi
Kom síðan í ljós að einn eiganda var á Facebookinu mínu
Vona að allir séu samþykkir birtingu

Mynd
Mynd

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 17:39
af biturk
Kíktu á hana maður og staðfestu fyrir okkur?

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Mið 13. Ágú 2014 18:03
af slapi
Flutti til útlanda í millitíðinni.... Væri gaman að sjá hvað er að frétta

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Sun 17. Ágú 2014 23:05
af hagur
Jæja, mágur minn er búinn að fá sjónvarpið sem hann vann hjá þeim.

So far so good ....

Re: Auraboð... íbúðaláns svikarinn einn af eigendum

Sent: Sun 17. Ágú 2014 23:35
af intenz
hagur skrifaði:Jæja, mágur minn er búinn að fá sjónvarpið sem hann vann hjá þeim.

So far so good ....

Væri gaman að vita hvað það átti að kosta og hvað hann borgaði í heildina, með öllum boðunum sínum. :)