Síða 1 af 2
Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Lau 09. Ágú 2014 22:43
af hagur
Hæ,
Heimskuleg spurning ....
Keypti tvöfaldan utanáliggjandi rafmagnstengil og ætlaði að fara að tengja hann. Opnaði hann og sé bara ekki almennilega hvar rafmagnsvírinn á að tengjast í þetta dót
Hérna er mynd af honum:
http://i.imgur.com/Seaug4S.jpgVæntanlega á að tengja í þetta græna á endanum? En hvert fer jörðin? Í eitthvað eitt af þessum 8 götum þarna í miðjunni? Afhverju eru 8 göt? Afhverju í ósköpunum eru svo ekki skrúfur til að herða að vírnum? Þarf ég að stinga einhverju oddmjóu þarna innundir og klemma vírinn?
Er nýbúinn að skipta út c.a 40 Ticino tenglum og rofum í húsinu og það var einfaldara en þessi bölvaði tengill
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Lau 09. Ágú 2014 22:46
af kfc
Jörðin (gul/græini vírinn) fer í grænatengið
Svarti/Brúni fer síðan öðrumegin og Blái hinum megin
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Lau 09. Ágú 2014 22:57
af hagur
Já ok, takk.
En hvernig festi ég vírana?
http://i.imgur.com/RSiMOPm.jpgÉg sting væntanlega vírunum ofan í götin, þarf ég svo að klemma þetta einhvernveginn saman, stinga einhverju inn í götin þarna undir?
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Lau 09. Ágú 2014 22:58
af axyne
Þetta eru stungutengi, þarf ekkert að herða neinar skrúfur eða stíngu neinu ofaní. klemman undir er væntanlega til að ýta á til að losa vírinn aftur frá.
passaðu bara að afeingangra vírinn nógu langt en ekki svo mikið að ber vírinn standi út, kápann á að ganga pínku inní holuna, ~8-10mm
Ástæðan fyrir afhverju það eru svona mörg göt er sú að ef þú vilt tengja áfram í næsta tengil.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Lau 09. Ágú 2014 23:00
af hagur
Ahh ok. Prófa þetta, takk!
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 15:47
af hagur
Ehhh vesen að stinga fjölþátta vír (tækjasnúru) í þetta drasl. Er gert ráð fyrir að maður sé bara með ídráttarvír í þessu? Eitthvað trick? Reyndi að lóða endann á vírnum til að gera eina heild úr honum (so to speak) en finnst þetta voðalega flimsy eitthvað.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 16:34
af Oak
þetta er ekki fyrir fínþáttan vír. er það eina sem þú átt?
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 16:53
af tdog
Klemman í þessum tengli er nógu sterk til þess að klippa fjölþátta vír í sundur, svo það er ekki góð hugmynd að nota fjölþáttung.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 17:56
af hagur
Ja ég keypti slatta af slíkum vír, í góðri trú.
En ég á búta af ídráttarvír sem ég get notað í þetta og svo tengt fínþátta vírinn við hann. Kannski smá mix en ætti að ganga.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 20:53
af kfc
hagur skrifaði:Ja ég keypti slatta af slíkum vír, í góðri trú.
En ég á búta af ídráttarvír sem ég get notað í þetta og svo tengt fínþátta vírinn við hann. Kannski smá mix en ætti að ganga.
EKKI FÚSKA, þetta er ekki fyrir fínþættan vír og ætti ekki að nota hann í þetta
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 21:07
af brain
Fjölþátta vír er ekki fyrir AC straum.
ekki nema stuttar vegalengdir
Verður að nota einþátta í lagnir.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 21:38
af hagur
Ok, vissi það ekki. Takk fyrir ábendinguna. Er semsagt hægt að kaupa svona snúru (í metravís)
http://thumbs.dreamstime.com/z/electric-cable-25625211.jpg sem er með einþátta vírum?
Best bara að ég lýsi vandamálinu .... er með 20fm herbergi þar sem er rafmagnstengill í einu horninu. Ég þarf að fá rafmagnstengil akkúrat í hornið ská á móti. Ég ætlaði bara að leggja kapal úr tenglinum niður við gólfið og útí hitt hornið og festa þar þennan utanáliggjandi tengil á vegginn. Hvernig mælið þið þá með því að ég geri þetta? Þetta er c.a 6-7 metra vegalengd.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 21:53
af ljoskar
brain skrifaði:Fjölþátta vír er ekki fyrir AC straum.
ekki nema stuttar vegalengdir
Verður að nota einþátta í lagnir.
What??
Fjölþátta vír er alveg jafn hæfur fyrir AC eing og einþáttúngur.
Einþátta vír er notaður í fastalögnum sem ekki hreyfast mikið.
Fjölþátta vír er notaður í flest öllu (Mest í iðnaði, kapallinn inn í húsið hjá þér og fleira)
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 22:15
af axyne
Getur alveg notað þennan kapall sem þú keyptir og notað ídráttarvír bútana sem þú átt og tengd saman í sexvíratengi ef það er pláss fyrir tengin inní dósinni. ljótt mix en ekkert meiriháttar fúsk ef það er vel gert.
Getur keypt í flestum rafmangsbúðunum nýjan kapall sem er einþáttungur í metravís. Reykjafell, Rafport, Ískraft... ætti líka að vera til í Bykó.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 22:46
af hagur
axyne skrifaði:Getur alveg notað þennan kapall sem þú keyptir og notað ídráttarvír bútana sem þú átt og tengd saman í sexvíratengi ef það er pláss fyrir tengin inní dósinni. ljótt mix en ekkert meiriháttar fúsk ef það er vel gert.
Getur keypt í flestum rafmangsbúðunum nýjan kapall sem er einþáttungur í metravís. Reykjafell, Rafport, Ískraft... ætti líka að vera til í Bykó.
Ég er einmitt búinn að leysa þetta þannig núna, sexvíratengin komust fyrir inní dósinni þannig að þetta sést ekkert og ég held að þetta sé bara í fínu lagi svona.
Takk takk.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 22:51
af Gislinn
axyne skrifaði:Getur alveg notað þennan kapall sem þú keyptir og notað ídráttarvír bútana sem þú átt og tengd saman í sexvíratengi ef það er pláss fyrir tengin inní dósinni. ljótt mix en ekkert meiriháttar fúsk ef það er vel gert.
Getur keypt í flestum rafmangsbúðunum nýjan kapall sem er einþáttungur í metravís. Reykjafell, Rafport, Ískraft... ætti líka að vera til í Bykó.
Reykjafell og Ískraft selja ekki svona kapla í metravís, ég fékk allavega þau svör á föstudaginn síðasta. Ég keypti svona 1.5q kapal í Byko.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 23:13
af roadwarrior
Þegar notaður er fínþátta vír og á að tengja í sexvíratengi, stungutengi og flest önnur tengi og ekki dugar að lóða þá á að nota endahuslur sem líta svona út.
- endahulsur.jpeg (262.35 KiB) Skoðað 4969 sinnum
Reyndar eru til tengi sem má nota fínþáttavír og eru td notað þegar fínþráða og einþáttungur þurfa að tengjast saman. Þau líta svona út, til í nokkrum útgáfum.
- wago.jpg (11.27 KiB) Skoðað 4965 sinnum
Held reyndar að sexvíratenginn séu séríslenskt fyrirbæri. Þau eru allavega framleidd hér á landi.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 23:19
af Blackened
Lang best er auðvitað að hætta að fúska og nota bara vír sem er ætlaður til verksins
(annars hef ég bara lóðað endana til að redda mér.. berja honum bara í eitthvað um leið og þú sleppir lóðboltanum þá verður hann sléttur og fínn
)
Annað.. hvað ertu með svera snúru og hvað ertu að leggja mikið álag á þetta? 0.75q snúra þolir ekkert álag tildæmis
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 23:49
af hagur
Minnir að þetta sé 1.0q snúra, hvað þolir slík? Höndlar það ekki alveg 10A? Hef ekki lagt saman dótið sem verður á þessu, en það eru amk tvær tölvur og svo eitthvað smotterí (Ekki skjáir).
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Sun 10. Ágú 2014 23:59
af kfc
hagur skrifaði:Minnir að þetta sé 1.0q snúra, hvað þolir slík? Höndlar það ekki alveg 10A? Hef ekki lagt saman dótið sem verður á þessu, en það eru amk tvær tölvur og svo eitthvað smotterí (Ekki skjáir).
1.0q snúra er ekki nó fyrir 10A. Það sem getur gerst er að þegar það er komið mikið álag á þetta þá hitnar snúnar og getur valdið bruna.
Hættu nú þessu fúski og fáðu þér kapal sem er 3X1,5q (ekki fínþættan). Færð hann í metravís í Byko eða Húsasmiðjunni.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Mán 11. Ágú 2014 00:09
af hagur
Hehe já ég hallast að því að kaupa einþátta vír í þetta og gera þetta almennilega. Bara fúlt að vera búinn að kaupa slatta af þessum vír í Byko á uppsprengdu verði (300 kall per meter c.a)
Vitiði hvar er besta verðið á þessu? Reykjafell selur bara í 100m rúllum, sem dæmi.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Mán 11. Ágú 2014 00:18
af biturk
Verður að vera 1.5q en má vera fínþátta ef þú notar endahulsur og það er ekkert að því
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Mán 11. Ágú 2014 09:33
af Tbot
Fyrir 10A þarf strengurinn að vera 1,5q
Mest allur töfluvír er fjölþættur.
Nota bara endahulsur ef þú notar fjölþættan vír (strengi), lóðun er ekki leyfð.
Athugaðu hvað hvað strengir kosta í Glóey í Ármúla. (568-1620)
Allar heildsölur selja strengi að lámarki í 100m rúllum.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Mán 11. Ágú 2014 13:21
af hagur
Takk strákar, alltaf hægt að treysta á vaktara.
Re: Tengja utanáliggjandi rafmagnstengil
Sent: Mán 11. Ágú 2014 20:20
af jonsig
Vonum bara að ekkert klikki og það kveiki í útfrá fiffinu þínu . Tryggingarnar nýta sér það