Síða 1 af 2

Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 09:55
af roadwarrior
Jæja hvernig líst mönnum á þetta??
Það verður gaman að sjá hvað verður útúr þessu, alvöru samkeppni við Síman og Vodafone?
Ein hliðarspurning, veit einhver hvort OZ streymi sé á IPTV eða á venjulega netinu?

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 10:01
af hfwf
Verði úr þessu, er ég farinn frá TAL, því miður. Ekki sjens að ég verði í viðskiptum við 365, ps hvar í andskotanum fær 365 endalausan pening?

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 10:07
af AntiTrust
hfwf skrifaði:Verði úr þessu, er ég farinn frá TAL, því miður. Ekki sjens að ég verði í viðskiptum við 365, ps hvar í andskotanum fær 365 endalausan pening?

Fótboltabullum? Fólki sem kann ekki á Netflix & Co.? :) Ég veit ekki hvernig fólki dettur í hug að greiða þessar upphæðir fyrir sjónvarpsstöðvar, þótt pakkarnir séu reyndar orðnir talsvert raunhæfari með netáskrift líka.

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 10:13
af hfwf
AntiTrust skrifaði:
hfwf skrifaði:Verði úr þessu, er ég farinn frá TAL, því miður. Ekki sjens að ég verði í viðskiptum við 365, ps hvar í andskotanum fær 365 endalausan pening?

Fótboltabullum? Fólki sem kann ekki á Netflix & Co.? :) Ég veit ekki hvernig fólki dettur í hug að greiða þessar upphæðir fyrir sjónvarpsstöðvar, þótt pakkarnir séu reyndar orðnir talsvert raunhæfari með netáskrift líka.

Varla það mikið að geta rekið stöðina og keypt nýjan ISP :), ég er annars "fótboltabulla" en kem ekki nálægt þessu apparati að borga mig inn á áskriftarkerfið þeirra. STrax ódýrara á ári að fá sér disk og sky.

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 10:17
af AntiTrust
Tekið úr fréttinni á Vísi

Verði af sameiningunni munu eigendur Tals, meðal annars Auður I, fagfjárfestasjóður sem er í rekstri hjá Virðingu, eignast hlut í 365 miðlum.

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 10:20
af roadwarrior
Mja 365 hafa allavega verið að reyna að ná sér fótfestu á fjarskiftamarkaðinum, keyptu td EMAX síðastliðið haust, trúlega til að ná þeirri tíðniheimild sem þeir hafa yfir að ráða. Opnar þeim möguleika á að dreifa sjónvarpi gegnum internetið þráðlaust þar sem ekki er ADSL eða ljósleiðari

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 13:15
af Stutturdreki
Eigum við að veðja á hversu langan tíma tekur að loka fyrir Luxus netið núna?

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 16:32
af 121310
Mér líst frekar Illa á þetta. Hverjum hefði getað órað fyrir því að Hive og 365 myndu sameinast á endanum?

Ég mun allavegna skoða það að flytja mig eitthvert annað með mínar áskriftir.

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 17:37
af Frantic
Held að fólk fatti ekki hvað getur gerst ef þessi fyrirtæki sameinast.
Gæti komið nýtt brand eða jafnvel miklu betra 365.
Reynsla Tals hlýtur að geta gert einhverja góða hluti þarna.

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 18:58
af hfwf
Frantic skrifaði:Held að fólk fatti ekki hvað getur gerst ef þessi fyrirtæki sameinast.
Gæti komið nýtt brand eða jafnvel miklu betra 365.
Reynsla Tals hlýtur að geta gert einhverja góða hluti þarna.

Nytt brand í eigu 365 er samt í eigu 365, og það er nóg að minni hálfu

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 20:04
af wicket
Nýr forstjóri 365 er fyrrverandi forstjóri Símans sem er ný hættur þar, eitthvað segir mér að áherslurnar á fjarskiptahlið 365 muni bera þess merki. Hann var það lengi hjá Símanum að fingraför hans eru á öllu sem við höfum verið ósáttir með hér síðustu ár hjá Símanum, já og það við höfum verið ánægðir með.

þetta verður að minnsta kosti mjöööööög áhugavert að fylgjast með þessu.

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 20:34
af akarnid
Petrea var líka framkvæmdastjóri hjá Símanum í nokkur ár. Þannig að þarna eru tveir ex-Síminn aðilar að fara í beina samkeppni. Sp er samt, eru ekki Tal að kaupa heildsöluþjónustu af Símanum?

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 22:14
af mainman
Má heldur ekki gleima að 365 var líka að versla emax svo þeir eiga nánast allann sumarbústaðarmarkaðinn og loftlínuna sem er að verða fjandi útbreidd.
Eru þeir þá ekki komnir með slatta ?

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 22:39
af hagur
roadwarrior skrifaði:Ein hliðarspurning, veit einhver hvort OZ streymi sé á IPTV eða á venjulega netinu?

Venjulega netinu ....

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 22:49
af Frantic
mainman skrifaði:Má heldur ekki gleima að 365 var líka að versla emax svo þeir eiga nánast allann sumarbústaðarmarkaðinn og loftlínuna sem er að verða fjandi útbreidd.
Eru þeir þá ekki komnir með slatta ?

Þá er bara spurning hvort það verði góð útkoma úr þessari uppskrift.
Verður spennandi að vita.

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 23:06
af mainman
Ég er búinn að vera með dsl hjá mér fyrir heimilið frá tal í mörg ár, er hjá hringdu í dag en samhliða því hef ég haft mjög öfluga loftlínu frá emax og það hefur verið ofsalega stabíl tenging sem ég hef bara notað fyrir serverinn hjá mér og í einhvern leikaraskap.
Þjónustan hjá emax hefur verið frábær öll árin sem ég var með hana og aldrei neitt vandamál og ef ég þurfti að ná í einhvern þá hringdi ég bara og lenti alltaf á tæknimanni sem gat reddað öllu nánast samstundis og allt starfsfólkið sem ég hef lent á þarna hefur verið með mikla þjónustulund og aldrei nein vandamál til hjá þeim, öllu bara reddað um leið.
Ég hef alltaf farið í bústaðinn minn í rúmann mánuð á hverju sumri og þá hafa þeir alltaf lánað mér loftnet sem ég hef hengt utan á bústaðinn og þá hef ég verið með svakalega öflugt og gott net í bústaðnum á meðan, ég hef síðan bara borgað fyrir netið þann tíma sem ég hef haft loftnetið að láni og borgað fyrir allt niðurhalið og svoleiðis.
Síðan allt í einu einn góðann veðurdag þurfti ég eitthvað að ná í þá og hringdi í númerið þeirra og það hringdi út aftur og aftur og þetta gekk á í tvo daga minnir mig.
Eftir tveggja daga tilraunir við að ná í þá kom allt í einu símsvari sem bauð mig velkominn til 365 og að ég væri númer 30 og eitthvað í röðinni, semsagt ekki hægt að ná í neinn.
Ég sagði öllu upp hjá þeim dagin eftir með email þar sem mér tókst ekki heldur að ná í þá símleiðis þann daginn.
Þar með var allt sem hét þjónusta farið og engin ástæða til að vera lengur hjá þeim.
And the moral of this story is................. Veit ekki, langaði bara að nefna hvernig breytingin varð á þjónustunni hjá svona fyrirtæki við það að renna inn í þetta stóra battery.

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Þri 22. Júl 2014 23:55
af brain
hfwf skrifaði:Verði úr þessu, er ég farinn frá TAL, því miður. Ekki sjens að ég verði í viðskiptum við 365, ps hvar í andskotanum fær 365 endalausan pening?

Peningarnir koma frá Jóni Ásgeiri Jóhannsyni með ránsfeng frá Tortola eyjum.

Og auðvitað allt eftir löglegum leiðum gegnum konu og vini, með fjárfestingleið Seðlabankans.

Hef og mun aldrei versla við þetta fyrirtæki meðan hann situr þarna.

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Mið 23. Júl 2014 17:45
af roadwarrior
hagur skrifaði:
roadwarrior skrifaði:Ein hliðarspurning, veit einhver hvort OZ streymi sé á IPTV eða á venjulega netinu?

Venjulega netinu ....

Þannig að þegar Síminn byrjar að telja upp, niður og útá hlið þá eru þeir sem nota OZ yfir internet símans screwd.
Trúlega er þetta ein af þeim ástæðum að Síminn breytir mælingunm sínum er að slátra sjónvarps bissnesinum hjá öðrum en sjálfum sér :sleezyjoe

mainman skrifaði:Ég er búinn að vera með dsl hjá mér fyrir heimilið frá tal í mörg ár, er hjá hringdu í dag en samhliða því hef ég haft mjög öfluga loftlínu frá emax og það hefur verið ofsalega stabíl tenging sem ég hef bara notað fyrir serverinn hjá mér og í einhvern leikaraskap.
Þjónustan hjá emax hefur verið frábær öll árin sem ég var með hana og aldrei neitt vandamál og ef ég þurfti að ná í einhvern þá hringdi ég bara og lenti alltaf á tæknimanni sem gat reddað öllu nánast samstundis og allt starfsfólkið sem ég hef lent á þarna hefur verið með mikla þjónustulund og aldrei nein vandamál til hjá þeim, öllu bara reddað um leið.
Ég hef alltaf farið í bústaðinn minn í rúmann mánuð á hverju sumri og þá hafa þeir alltaf lánað mér loftnet sem ég hef hengt utan á bústaðinn og þá hef ég verið með svakalega öflugt og gott net í bústaðnum á meðan, ég hef síðan bara borgað fyrir netið þann tíma sem ég hef haft loftnetið að láni og borgað fyrir allt niðurhalið og svoleiðis.
Síðan allt í einu einn góðann veðurdag þurfti ég eitthvað að ná í þá og hringdi í númerið þeirra og það hringdi út aftur og aftur og þetta gekk á í tvo daga minnir mig.
Eftir tveggja daga tilraunir við að ná í þá kom allt í einu símsvari sem bauð mig velkominn til 365 og að ég væri númer 30 og eitthvað í röðinni, semsagt ekki hægt að ná í neinn.
Ég sagði öllu upp hjá þeim dagin eftir með email þar sem mér tókst ekki heldur að ná í þá símleiðis þann daginn.
Þar með var allt sem hét þjónusta farið og engin ástæða til að vera lengur hjá þeim.
And the moral of this story is................. Veit ekki, langaði bara að nefna hvernig breytingin varð á þjónustunni hjá svona fyrirtæki við það að renna inn í þetta stóra battery.

Þekki aðeins til Emax. Foreldrar mínir eru með tengingu hjá þeim. Þegar Emax var og hét þá voru þetta nokkrir gaurar sem sinntu tæknimálum/uppsetningu hjá þeim og svöruðu líka símanum þegar þeir gátu þannig að þú talaðir venjulega við einhvern sem var með puttann á púlsinum. Núna eru tæknimennirnir komnir á bak við "þjónustuversvegg" þannig að ef þig vantar meiri hjálp en bara einföldustu mál þá getur það verið major pain in the ass :fly

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Mið 30. Júl 2014 14:08
af Stuffz
þetta hleðst helst upp íhuga:

ÓEÐLILEG HAGSMUNA HJÓNABÖND.

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Mið 30. Júl 2014 15:59
af Moldvarpan
Svo er Auður Capital/Auður 1 búið að sameignast Virðingu fjárfestingarsjóði.

Þessi hópur fjárfesta á því Já ehf, nýbúið að kaupa hlut í 365, og svo er TAL að sameignast 365....
Soldið vafasamt finnst mér að eiga símaskránna, símafyrirtæki og sjónvarpsfyrirtæki.

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Mið 30. Júl 2014 16:41
af Stuffz
Moldvarpan skrifaði:Svo er Auður Capital/Auður 1 búið að sameignast Virðingu fjárfestingarsjóði.

Þessi hópur fjárfesta á því Já ehf, nýbúið að kaupa hlut í 365, og svo er TAL að sameignast 365....
Soldið vafasamt finnst mér að eiga símaskránna, símafyrirtæki og sjónvarpsfyrirtæki.

+1

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Mið 30. Júl 2014 16:49
af GuðjónR
Moldvarpan skrifaði:Svo er Auður Capital/Auður 1 búið að sameignast Virðingu fjárfestingarsjóði.

Þessi hópur fjárfesta á því Já ehf, nýbúið að kaupa hlut í 365, og svo er TAL að sameignast 365....
Soldið vafasamt finnst mér að eiga símaskránna, símafyrirtæki og sjónvarpsfyrirtæki.

Er þetta ekki sama þróun og fyrir hrun?
Örfáir sem gleyptu allt og við vitum hvernig það endaði.

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Mið 30. Júl 2014 16:56
af Viktor
GuðjónR skrifaði:

Örfáir er vítt hugtak, pössum okkur að missa okkur ekki í post-crisis gremju eins og "Virkir í athugasemdum" gera svo glatt.

http://www.virding.is/um/

Hluthafar Virðingar hf. 30. júní 2014 – sem eiga yfir 1% hlut í félaginu.
Hluthafi %
KP Capital ehf. (Í eigu Kristínar Pétursdóttur) 9,00%
Lífeyrissjóður Verslunarmanna 8,15%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 8,08%
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir og félag í hennar eigu. 7,10%
Stafir lífeyrissjóður 6,36%
MBA Capital ehf. (Í eigu Ármanns Þorvaldssonar og meðfjárfesta) 4,67%
KJ Eignarhald ehf. (Í eigu Kristínar Jóhannesdóttur og Ásu Karenar Ásgeirsdóttur) 4,09%
Títanía ehf. (Í eigu Berglindar Jónsdóttur) 4,07%
Meson Holding S.A. (Í eigu Vilhjálms Þorsteinssonar) 4,01%
Akkur SI 3,99%
Lífeyrissjóður verkfræðinga 3,42%
Sigurður Sigurgeirsson 3,21%
Eignarhaldsfélagið Tindar ehf 3,09%
Rafiðnaðarsamband Íslands 2,99%
Ragnheiður Jóna Jónsdóttir og félag í hennar eigu. 2,62%
Miðeind ehf. (Í eigu Vilhjálms Þorsteinssonar) 1,9%
Félag iðn-og tæknigreina 1,79%
Ingunn Gyða Wernersdóttir 1,75%
Félag íslenskra rafvirkja 1,69%
VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna 1,66%
MATVÍS 1,53%
Félag bókagerðarmanna 1,53%
Byggiðn – Félag byggingarmanna 1,37%
Lýsi h.f. 1,36%

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Mið 30. Júl 2014 17:17
af GuðjónR
Sallarólegur skrifaði:

Hvort sem þér líkar betur eða verr þá voru "örfáir" aðilar sem fóru í Matador leik fyrir hrun, það vita allir sem komnir voru með punghár fyrir fimm árum.
Og það eru allskonar teikn á lofti að "2007" muni endurtaka sig, því miður.

Re: Sameining TAL og 365

Sent: Mið 30. Júl 2014 17:35
af krat
Sallarólegur skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Svo er Auður Capital/Auður 1 búið að sameignast Virðingu fjárfestingarsjóði.

Þessi hópur fjárfesta á því Já ehf, nýbúið að kaupa hlut í 365, og svo er TAL að sameignast 365....
Soldið vafasamt finnst mér að eiga símaskránna, símafyrirtæki og sjónvarpsfyrirtæki.

Er þetta ekki sama þróun og fyrir hrun?
Örfáir sem gleyptu allt og við vitum hvernig það endaði.

Örfáir er vítt hugtak, pössum okkur að missa okkur ekki í post-crisis gremju eins og "Virkir í athugasemdum" gera svo glatt.

http://www.virding.is/um/

Hluthafar Virðingar hf. 30. júní 2014 – sem eiga yfir 1% hlut í félaginu.
Hluthafi %
KP Capital ehf. (Í eigu Kristínar Pétursdóttur) 9,00%
Lífeyrissjóður Verslunarmanna 8,15%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 8,08%
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir og félag í hennar eigu. 7,10%
Stafir lífeyrissjóður 6,36%
MBA Capital ehf. (Í eigu Ármanns Þorvaldssonar og meðfjárfesta) 4,67%
KJ Eignarhald ehf. (Í eigu Kristínar Jóhannesdóttur og Ásu Karenar Ásgeirsdóttur) 4,09%
Títanía ehf. (Í eigu Berglindar Jónsdóttur) 4,07%
Meson Holding S.A. (Í eigu Vilhjálms Þorsteinssonar) 4,01%
Akkur SI 3,99%
Lífeyrissjóður verkfræðinga 3,42%
Sigurður Sigurgeirsson 3,21%
Eignarhaldsfélagið Tindar ehf 3,09%
Rafiðnaðarsamband Íslands 2,99%
Ragnheiður Jóna Jónsdóttir og félag í hennar eigu. 2,62%
Miðeind ehf. (Í eigu Vilhjálms Þorsteinssonar) 1,9%
Félag iðn-og tæknigreina 1,79%
Ingunn Gyða Wernersdóttir 1,75%
Félag íslenskra rafvirkja 1,69%
VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna 1,66%
MATVÍS 1,53%
Félag bókagerðarmanna 1,53%
Byggiðn – Félag byggingarmanna 1,37%
Lýsi h.f. 1,36%

afhverju varstu að pósta eignarhaldi virðingar ?