Síða 1 af 1

Pyngjan - Núna er hægt að borga með símanum

Sent: Þri 15. Júl 2014 21:17
af Frantic
Hvernig er fýlingurinn fyrir pyngjunni?
Mér sýnist allavega öryggishlutinn vera í topp málum hjá þeim sem er bara gott mál.
Á klárlega eftir að nota þetta!
Hefði samt viljað sjá NFC tæknina þarna í stað QR.

http://www.dhs.is/pyngjan-notendur#4f47b1c342299828e

Apple Store
Google Play

Re: Pyngjan

Sent: Þri 15. Júl 2014 21:46
af KermitTheFrog
Kúl konsept, en eins og þú segir þá hefði maður viljað sjá NFC í staðinn. QR kóðar eru oft hvimleiðir og þarf að fókusa rétt til að lesa. En upp á móti eru mun fleiri með síma sem lesa QR heldur en NFC. Nýjustu iPhone símarnir eru ekki einu sinni með NFC.

edit: hm ég fæ þau skilaboð að "borgarinn er ekki aðgengilegur 'rooted' tækjum".

Re: Pyngjan

Sent: Þri 15. Júl 2014 22:06
af Revenant
Flott aðferð til að borga en miklu seinlegri heldur en að borga venjulega.

Plúsar:
Þarft ekki að hafa kort við höndina.
Færð kvittun beint í tækið.

Mínusar:
Tekur lengri tíma að borga (opna app, skanna mynd, velja kort, slá inn pin).
Fáir sem eru með þetta.

Re: Pyngjan

Sent: Mið 16. Júl 2014 09:47
af Frantic
KermitTheFrog skrifaði:Kúl konsept, en eins og þú segir þá hefði maður viljað sjá NFC í staðinn. QR kóðar eru oft hvimleiðir og þarf að fókusa rétt til að lesa. En upp á móti eru mun fleiri með síma sem lesa QR heldur en NFC. Nýjustu iPhone símarnir eru ekki einu sinni með NFC.

edit: hm ég fæ þau skilaboð að "borgarinn er ekki aðgengilegur 'rooted' tækjum".


Áhugavert, Pyngjan átti greinilega að heita Borgarinn fyrst.

Ég get ekki beðið eftir að losna við kortaveskið mitt og að geta notað eingöngu app.
Núna þarf ég bara að fá lyklana mína í símann og þá þarf ég ekki að vera með neitt nema símann þegar ég labba út (og vona að hann verði ekki batteríslaus).

Re: Pyngjan

Sent: Mið 16. Júl 2014 11:56
af Dagur
Revenant skrifaði:Flott aðferð til að borga en miklu seinlegri heldur en að borga venjulega.

Plúsar:
Þarft ekki að hafa kort við höndina.
Færð kvittun beint í tækið.

Mínusar:
Tekur lengri tíma að borga (opna app, skanna mynd, velja kort, slá inn pin).
Fáir sem eru með þetta.


Þetta getur vel flýtt fyrir þótt að þetta taki þig aðeins lengri tíma. Þú gætir bara mætt á staðinn, borgað og beðið eftir að fá vöruna (þ.e.a.s. sloppið við að standa í röð).

Re: Pyngjan

Sent: Mið 16. Júl 2014 15:06
af Viktor
Revenant skrifaði:Flott aðferð til að borga en miklu seinlegri heldur en að borga venjulega.

Plúsar:
Þarft ekki að hafa kort við höndina.
Færð kvittun beint í tækið.

Mínusar:
Tekur lengri tíma að borga (opna app, skanna mynd, velja kort, slá inn pin).
Fáir sem eru með þetta.


Fer það ekki eftir því hvernig við setjum dæmið upp?

Maður er enga stund að finna símann sinn, og flestir eru alltaf með hann á sér - hvað ætli fólk tapi að meðaltali mörgum klukkustundum úr ævinni sinni leitandi að veskjum og kortum?

Re: Pyngjan

Sent: Mið 16. Júl 2014 18:58
af hkr
KermitTheFrog skrifaði:edit: hm ég fæ þau skilaboð að "borgarinn er ekki aðgengilegur 'rooted' tækjum".


Það skoðar hvort að þú sért með Superuser.apk og hvort að kernel'inn sé sign'aður með test-keys.

Spurning afhverju það sé lokað á rooted tæki - maður hefði haldið að það sé nákvæmlega kúnnahópurinn sem þeir séu að leita eftir.

En vonandi tekur þetta við sér - t.d. opnar fyrir venjuleg debitkort, NFC og kemur á fleiri stöðum en þessum 4-5.

Re: Pyngjan - Núna er hægt að borga með símanum

Sent: Mið 16. Júl 2014 20:01
af KermitTheFrog
Sallarólegur skrifaði:
Revenant skrifaði:Flott aðferð til að borga en miklu seinlegri heldur en að borga venjulega.

Plúsar:
Þarft ekki að hafa kort við höndina.
Færð kvittun beint í tækið.

Mínusar:
Tekur lengri tíma að borga (opna app, skanna mynd, velja kort, slá inn pin).
Fáir sem eru með þetta.


Fer það ekki eftir því hvernig við setjum dæmið upp?

Maður er enga stund að finna símann sinn, og flestir eru alltaf með hann á sér - hvað ætli fólk tapi að meðaltali mörgum klukkustundum úr ævinni sinni leitandi að veskjum og kortum?


Manneskja sem þarf að leita að veskinu sínu þarf að öllum líkindum líka að leita að símanum sínum í svipuðum aðstæðum.

Re: Pyngjan - Núna er hægt að borga með símanum

Sent: Fim 17. Júl 2014 11:20
af Halli25
Það eru að koma snertilausar lausnir í kortaviðskiptum sem munu taka þetta í nefið að mínu mati, veifar bara kortinu yfir kortalesaranum og voila búinn að borga kaffið

Re: Pyngjan - Núna er hægt að borga með símanum

Sent: Fim 17. Júl 2014 13:48
af Frantic
Halli25 skrifaði:Það eru að koma snertilausar lausnir í kortaviðskiptum sem munu taka þetta í nefið að mínu mati, veifar bara kortinu yfir kortalesaranum og voila búinn að borga kaffið

Þetta myndi bjóða uppá skemmtilegan leik.
Setur öll kortin þín í veski og veifar veskinu yfir og svo velur lesarinn bara random kort, CreditCard rullette. Like á það.

En ég vill samt losna við það að ganga um með kort...

Re: Pyngjan - Núna er hægt að borga með símanum

Sent: Fim 17. Júl 2014 19:40
af Legolas
"Enn sem komið er getur þú ekki notað Electron debetkort." Fuck this shit.

Re: Pyngjan - Núna er hægt að borga með símanum

Sent: Þri 22. Júl 2014 16:34
af Viktor
KermitTheFrog skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:
Revenant skrifaði:Flott aðferð til að borga en miklu seinlegri heldur en að borga venjulega.

Plúsar:
Þarft ekki að hafa kort við höndina.
Færð kvittun beint í tækið.

Mínusar:
Tekur lengri tíma að borga (opna app, skanna mynd, velja kort, slá inn pin).
Fáir sem eru með þetta.


Fer það ekki eftir því hvernig við setjum dæmið upp?

Maður er enga stund að finna símann sinn, og flestir eru alltaf með hann á sér - hvað ætli fólk tapi að meðaltali mörgum klukkustundum úr ævinni sinni leitandi að veskjum og kortum?


Manneskja sem þarf að leita að veskinu sínu þarf að öllum líkindum líka að leita að símanum sínum í svipuðum aðstæðum.


Ég hef allavega ekki enn fundið veski sem ég get hringt í* ef ég finn það ekki...

Re: Pyngjan - Núna er hægt að borga með símanum

Sent: Þri 22. Júl 2014 17:33
af Frantic
Sallarólegur skrifaði:
KermitTheFrog skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:
Revenant skrifaði:Flott aðferð til að borga en miklu seinlegri heldur en að borga venjulega.

Plúsar:
Þarft ekki að hafa kort við höndina.
Færð kvittun beint í tækið.

Mínusar:
Tekur lengri tíma að borga (opna app, skanna mynd, velja kort, slá inn pin).
Fáir sem eru með þetta.


Fer það ekki eftir því hvernig við setjum dæmið upp?

Maður er enga stund að finna símann sinn, og flestir eru alltaf með hann á sér - hvað ætli fólk tapi að meðaltali mörgum klukkustundum úr ævinni sinni leitandi að veskjum og kortum?


Manneskja sem þarf að leita að veskinu sínu þarf að öllum líkindum líka að leita að símanum sínum í svipuðum aðstæðum.


Ég hef allavega ekki enn fundið veski sem ég get hringt í því ef ég finn það ekki...

Mynd

Re: Pyngjan - Núna er hægt að borga með símanum

Sent: Þri 22. Júl 2014 19:18
af nidur
Forritið virkar fínt á rooted android síma hjá mér, er reyndar ekki búinn að prófa að borga en er með visa kort uppsett.

og að debit sé ekki stutt er bara glatað, nota kreditkort aldrei.

Re: Pyngjan - Núna er hægt að borga með símanum

Sent: Mið 23. Júl 2014 09:01
af natti
nidur skrifaði:og að debit sé ekki stutt er bara glatað, nota kreditkort aldrei.


Getur notað Maestro Debet kort skv síðunni þeirra, svo lengi sem að það sé ekki of gamalt...

http://www.dhs.is/pyngjan-notendur skrifaði:Ekki er hægt að nota Maestro-debetkort sem útgefin eru fyrir júlí 2011.

Re: Pyngjan - Núna er hægt að borga með símanum

Sent: Mið 23. Júl 2014 09:57
af depill
Ekki það að þetta er skref í rétta átt þá hef ég enga trú á þessu því miður. Söluaðili verður að vera í viðskiptum við Borgun og implementa þessari lausn í þokkabót líka. Þetta virkar ekki með öllum núverandi ferlum í kerfum og virkar ekki með núverandi POSA kerfum sem flækir uppgjöf.

Svo fyrir neytandan virkar þetta bara hjá þeim söluaðilum sem hafa implementað þetta svo það er ekki eins og þú ert að fara sleppa við að taka veskið með þér þar sem það er líklegra en ekki að þetta virki ekki. Og svo ofan á það finnst mér hreinlega ekkert þæginlegt við QR kóða. Ég held að um leið og nýjabrumið rennur af þeim sem notar þetta deyr þetta endanlega.

Helsti styrkur Visa, MasterCard og jafnvel Amex er ekkert þessi plastkort það er hvað netið þeirra er viðurstyggilega stórt, það er auðvelt að nota kortin og þau virka allsstaðar. Ef þau virkuðu bara sumstaðar myndi fólk ekki nota þau.