Síða 1 af 1

Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Fös 11. Júl 2014 13:11
af hakkarin
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/ ... fa_thetta/

Fyrst að þá að þá var ég frekar glaður en svo sá ég þetta:

Skil­yrðin snúa til dæm­is að sölu­tíma áfeng­is í versl­un­um, en ekki verður heim­ilt að selja áfengi eft­ir klukk­an átta á kvöld­in. Þá verður áfengið selt í af­mörkuðu rými inn­an versl­ana

Þannig að ekkert myndi í rauninni breytast nema að álagning myndi líklega hækka (er bara 10% í ríkinu)? Helvítis rugl er þetta :mad

Hver er tilgangurinn með því að einkavæða þetta ef að maður getur svo ekki keypt eftir 8 eða reddað sér bjór út í sjoppu hvort eð er? :thumbsd

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Fös 11. Júl 2014 13:16
af Plushy
Pointið er að þá þarf ég ekki að gera mér sér ferð í einhverja vínbúð þegar ég er búinn í bónus eða hagkaup.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Fös 11. Júl 2014 13:42
af rapport
Þetta frumvarp er búið að vera árlegur viðburður í næstum 10 ár...

Þessir flokkar sem eru núna í ríkisstjórn þykjast vilja einkavæðingu en þora þessu ekki en vilja frekar einakvæða velferðakerfið.

Ef þeir geta ekki selt vín og tóbak í gegnum einkaaðila, þá munu þeir aldrei geta komið neinu í verk á skikkanlega hátt.

Enda hefur einkavæðingin verið fólgin í að afhenda vinum og vandamönnum ríkisfyrirtæki sbr. Bankana, Frumherja, Skýrr, ÍAV ofl.

Ísland er of lítið til að hér geti verið virkur markaður með svona stórar eignir.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Fös 11. Júl 2014 14:18
af Skari
Þetta er nú svona hérna í Noregi, ekki hægt að kaupa eftir kl 20:00 og þeir eru mjög strangir með það, skiptir ekki máli þótt þú hafir verið að bíða í röð í 5 mínutur til að komast að kassanum..

Um helgar er það svo lokað eftir 18:00 og svo eru nánast allt lokað á sunnudögum.

Get lofað þér því að þetta venst, fyrst fannst mér hallærislegt að það væri lokað allstaðar á sunnudögum og með áfengið að ekki væri hægt að kaupa eftir 20:00 þótt verslunin væri opin lengur.
Hef bara þurft að skipuleggja helgarnar þá betur og það venst.

Er þetta ekki annars alltaf svona, viljum allt NÚNA og að það kosti ENGANN pening og það að skipuleggja 1 -2 dag fram í tímann er óhugsandi.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Fös 11. Júl 2014 14:26
af hakkarin
Plushy skrifaði:Pointið er að þá þarf ég ekki að gera mér sér ferð í einhverja vínbúð þegar ég er búinn í bónus eða hagkaup. Þá er eflaust líka hægt að kaupa á sunnudögum til átta þegar vínbúðirnar eru almennt lokaðar t.d.


En eru vínbúðinar samt ekki oftast nálægt hvort eð er? Ég er svona eina og hálfa mín á keyra í vínbúðina eftir að hafa verslað í bónus eða nettó þar sem að ég á heima. Vill frekar keyra aðeins meira heldur en að borga meira fyrir minna úrval af áfengi.

Skari skrifaði:Þetta er nú svona hérna í Noregi, ekki hægt að kaupa eftir kl 20:00 og þeir eru mjög strangir með það, skiptir ekki máli þótt þú hafir verið að bíða í röð í 5 mínutur til að komast að kassanum..

Um helgar er það svo lokað eftir 18:00 og svo eru nánast allt lokað á sunnudögum.

Get lofað þér því að þetta venst, fyrst fannst mér hallærislegt að það væri lokað allstaðar á sunnudögum og með áfengið að ekki væri hægt að kaupa eftir 20:00 þótt verslunin væri opin lengur.
Hef bara þurft að skipuleggja helgarnar þá betur og það venst.

Er þetta ekki annars alltaf svona, viljum allt NÚNA og að það kosti ENGANN pening og það að skipuleggja 1 -2 dag fram í tímann er óhugsandi.


Ég vill ekki meina að þetta sé eitthvað stórmál. Mér finnst það bara asnalegt að vilja einkavæða áfengið en setja síðan á reglur sem að þýða að þetta breytir mjög litlu.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Fös 11. Júl 2014 14:36
af Skari
Ég vill ekki meina að þetta sé eitthvað stórmál. Mér finnst það bara asnalegt að vilja einkavæða áfengið en setja síðan á reglur sem að þýða að þetta breytir mjög litlu.[/quote]

Fyrigefðu en litlu? Bara að fá þetta í verslanirnar finnst mér breyta mjög miklu, veistu hvað það er ótrúlega þægilegt að þurfa ekki að fara í sér áfengisverslun lengur nema maður vilji fá eitthvað sterkara ? Þetta er frábært og ætti að vera löngu komið heima.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Fös 11. Júl 2014 14:49
af hakkarin
Skari skrifaði:Fyrigefðu en litlu? Bara að fá þetta í verslanirnar finnst mér breyta mjög miklu, veistu hvað það er ótrúlega þægilegt að þurfa ekki að fara í sér áfengisverslun lengur nema maður vilji fá eitthvað sterkara ? Þetta er frábært og ætti að vera löngu komið heima.


Mér hefur aldrei fundist það vera neitt mikið mál að eyða auka 5 mín í að kaupa sér áfengi einu sinni í viku. Stærsta vandamálið finnst mér er að opnunartíminn er oft stuttur og það er lokað á sunnudögum. Ef að veslanir verða að loka klukkan 8 og ekki verður hægt að selja til dæmis bjór í litlum búðum eða sjoppum að þá munn þetta breyta næstum engu fyrir mig persónulega. Eina sem að ég fengi út úr þessu yrði líklega minna úrval og hærri álagning.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Fös 11. Júl 2014 15:37
af siggik
eitthvað verður þetta snúið, 16 ára krakkar fá valla að selja einn kaldan á kassa

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Fös 11. Júl 2014 16:05
af vesley
siggik skrifaði:eitthvað verður þetta snúið, 16 ára krakkar fá valla að selja einn kaldan á kassa



Þá verður áfengið selt í af­mörkuðu rými inn­an versl­ana og sá sem af­greiðir þarf að hafa náð til­skild­um aldri


Myndi byrja á að lesa alla fréttina.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Fös 11. Júl 2014 18:42
af snaeji
Það verður athyglisvert að sjá hvernig Bónus tekur á þessu ef til kemur.
Neyðast þeir ekki þá bara til þess að fara selja sígarettur og áfengi ?

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Fös 11. Júl 2014 19:16
af stefhauk
Ég er algjörlega með því að þetta verði leyft en mér yrði samt alveg sama ef sterka vínið sé selt áfram í ríknu allavegana fá bjórinn í matvöruverslanir.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Fös 11. Júl 2014 19:45
af brain
Ef þetta verður leyft, þá því miður verða ekki nema 3-4 bjórtegundir og 1-2 rauð og hvít til sölu.

Og þetta verða ekki endilega það vinsælasta, heldur það sem verslunin fær mest út úr.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Fös 11. Júl 2014 21:55
af beatmaster
Ef að menn eru svona æstir í að vaða í eitthvað úrval af áfengi þá er klárlega rekstrargrundvöllur fyrir einhvern til að opna verslun sem leggur áherslu á að vera með úrval af áfengi til að kaupa

Legg til að í framhaldinu verði gerð reynsla á að breyta ÁTVR í THCVR og nota þann infrastrúktur sem er til þar fyrir til að selja kannabisefni og minnka svarta hagkerfið á íslandi talsvert og fá krónur í ríkiskassann í leiðinni, ekki amalegt það

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Lau 12. Júl 2014 09:49
af brain
Eitt sem er í frumvarpinu, það er ekki verið að gefa sölu áfengis frjálsa, eingöngu matvöruverslanir virðast mega bæta þessu í úrval. Allaveg miðað við textann í frumvarpinu.

Það er sem sagt ekki hægt að opna búð sem selur eingöngu áfengi.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Lau 12. Júl 2014 19:19
af JohnnyRingo
brain skrifaði:Eitt sem er í frumvarpinu, það er ekki verið að gefa sölu áfengis frjálsa, eingöngu matvöruverslanir virðast mega bæta þessu í úrval. Allaveg miðað við textann í frumvarpinu.

Það er sem sagt ekki hægt að opna búð sem selur eingöngu áfengi.


Áfengi myndi ég telja sem matvöru

Ef svo er ekki þá seluru bara líka pizzur og snakk eða einhverja helvitis osta og tada matvöruverslun...

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Mán 14. Júl 2014 01:05
af hakkarin
JohnnyRingo skrifaði:
brain skrifaði:Eitt sem er í frumvarpinu, það er ekki verið að gefa sölu áfengis frjálsa, eingöngu matvöruverslanir virðast mega bæta þessu í úrval. Allaveg miðað við textann í frumvarpinu.

Það er sem sagt ekki hægt að opna búð sem selur eingöngu áfengi.


Áfengi myndi ég telja sem matvöru

Ef svo er ekki þá seluru bara líka pizzur og snakk eða einhverja helvitis osta og tada matvöruverslun...


Þetta er ekki svona einfalt. Meira að segja matvöruverslaninar sjálfar þurfa að smíða alveg sér svæði bara fyrir áfengið til að hafa einhverskonar verslun innan verslunar.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Mán 14. Júl 2014 01:24
af JohnnyRingo
Það er samt sagt í einhverri fréttinni þarna að þetta opni möguleika fyrir verslanir með fancy vín og osta...

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Mán 14. Júl 2014 02:09
af brain
Frumvarpið sem var sett fram síðustu 2 ár. tók mjög skýrt fram að það yrði eingönu leyft að bæta léttvíni og bjór inní úrval matvöruverslana.

Þar var tekið fram að ekki yrði leyft að opna áfengisverslir með öðu ívafi. (meina þá pizzum og ostum :p) Einnig voru pizzastaðir og hamborgarastaðir ekki leyfðir sem söluaðili.

Auðvitað getur einhver farið útí að opna matvöruverslun og vera með gott svæði undir léttvín og bjór, en ég veit ( vinn í fyrirtæki sem rekur stórmarkað) að núverandi verslanir munu fyrst og fremst sjá þetta sem nokkrar teg af hverju, bæði vegna pláss og lagerhalds. Auðvitað mun þetta þróast, en í byrjun verður þetta frekar einfalt.
Þetta hefur verið rætt þ´nokkuð innan matvörugeirans.

ÁTVR mun afgreiða þetta til verslana og lager mun þurfa að vera geymdur á læstum svæðum.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Mán 14. Júl 2014 02:30
af Minuz1
Fullt af vínveitingarstöðum sem selja út vín í take away.

Þetta mun aldrei komast til atkvæðagreiðslu, frekar en fyrri daginn.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Mán 14. Júl 2014 13:01
af Hargo
Bíð nú bara eftir því að x-B banni innflutning á erlendum bjórum og leyfi bara innlenda bjóra. Ísland - über alles!

Svo verður hægt að kaupa íslenskt eðalvín beint frá bónda (íslenskt eðalvín = landi bruggaður út í fjósaskemmunni)

En ég geri mér engar vonir um að léttvín og bjór verði komið í verslanir á næstunni. Eins og einhver sagði, þetta frumvarp er árlegur viðburður á þinginu og svo týnist það bara í sandkassaleiknum þarna.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Mán 14. Júl 2014 13:51
af Pandemic
Ég er bara nokkuð sáttur með ÁTVR eins og það er núna. Eina vandamálið sem ég sé er að geta ekki flutt inn sjálfur áfengi sem fæst ekki hérna á landi.

Re: Vilhjálmur leggur fram fumvarp við frjálsri sölu áfengis

Sent: Mán 14. Júl 2014 17:12
af JohnnyRingo
Pandemic skrifaði:Ég er bara nokkuð sáttur með ÁTVR eins og það er núna. Eina vandamálið sem ég sé er að geta ekki flutt inn sjálfur áfengi sem fæst ekki hérna á landi.


Hmm þú átt alveg að geta það, svo lengi sem þú borgar skattinn.

https://www.vinbudin.is/desktopdefault.aspx/tabid-49/

Hverjir mega flytja inn áfengi?
Allir þeir sem náð hafa tilskyldum aldri (20 ár) mega flytja inn áfengi TIL EIGIN NOTA. Tilskylin gjöld (áfengisgjald, skilagjald og VSK) eru greidd við tollafgreiðslu vörunnar.
Leyfi ríkislögreglustjóra þarf til innflutnings, heildsölu og framleiðslu áfengis í atvinnuskyni