Síða 1 af 1

Kemst ísland á HM - straumur

Sent: Sun 15. Jún 2014 16:18
af dreymandi
hæ kunningi minn sem er staddur erlendis vill sjá leikinn island bosnía nuna klukkan fimm en hann ser ekki sendinguna því www.ruv.is streymir því ekki til útlanda sem mér finnst bjánalegt. burt séð frá því er einhver með erlenda free strauma (ekki bet365 eða þannig) ? hef ekki fundið getur einhver hjálpað við að finna ? kv

Re: Kemst ísland á HM - straumur

Sent: Sun 15. Jún 2014 17:14
af SolidFeather
Virkar Hola Unblocker extension-ið fyrir Chrome ekki með RUV.is?

Re: Kemst ísland á HM - straumur

Sent: Sun 15. Jún 2014 17:42
af Viktor
dreymandi skrifaði:því http://www.ruv.is streymir því ekki til útlanda sem mér finnst bjánalegt


Hvort heldur þú að það sé ódýrara að kaupa rétt til þess að sýna leiki fyrir Ísland, eða sýna leiki fyrir allan heiminn? Hvernig í ósköpunum getur þetta verið bjánalegt.

Re: Kemst ísland á HM - straumur

Sent: Mán 16. Jún 2014 00:23
af Cikster
Alveg spurning hvort OZ appið virki ekki vel í þetta ef hann er með síma/spjaldtölvu sem hann getur tengt við sjónvarp.

Re: Kemst ísland á HM - straumur

Sent: Mán 16. Jún 2014 11:35
af benediktkr
Ég veit að þessi leikur er búinn, en segðu honum að senda mér mail á benedikt@lokun.is og ég get græjað fyrir hann fríaðgang eða afslátt á Lokun.

(Lokun gefur þér íslenska IPtölu þannig að ef þú ert í útlöndum þá geturðu horft á RÚV eins og þú værir á íslandi).