Síða 1 af 1
Alþjóðlegur grunnskóli í Reykjavík samþykktur
Sent: Lau 14. Jún 2014 16:42
af hakkarin
"Allt námsefnið, fyrir utan íslenskuna, verður kennt á ensku."Djöfullsins hálvitar.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/ ... r_naudsyn/Hvernig eiga erlent börn að verða meiri hluti af Íslensku samfélagi ef að þau eru aðskilinn öðrum börnum á Íslandi og fá bara að vera á sínum eiginn stað einhversstaðar þar sem að þau þurfa ekkert að umgangast Íslensk börn? Af hverju ekki að senda þau í sama skóla og aðrir fara í? Ýtir þetta ekki bara ennþá meira undir aðskilnað einstaka þjóðarbrota frá Íslensku samfélagi? Ég æta rétt að vona að þess vitleysa verði kaffærð í fæðingu.
Re: Alþjóðlegur grunnskóli í Reykjavík samþykktur
Sent: Lau 14. Jún 2014 17:32
af bjornvil
Hvernig er það... ef að þú ferð til segjum til dæmis Sameinuðu Arabísku Furstadæmanna til að vinna í 1-2 ár og ætlar að taka fjölskylduna þína með. Mundirðu þá vilja setja börnin þín í skóla þar sem allt námsefnið væri á Arabísku? Mér finnst þetta vera flott mál! Alveg nauðsynlegt að vera með svona skóla til að koma til móts við fólk sem kemur hingað til að vinna tímabundið og er ekki tilbúið að fórna heilum og hálfum skólaárum hjá börnunum sínum.
Það er pláss fyrir 30 börn í þessum skóla. Það er ekki eins og allir útlendingar sem hafa flutt hingað til lands fari að senda börnin sín í þennan skóla
Re: Alþjóðlegur grunnskóli í Reykjavík samþykktur
Sent: Lau 14. Jún 2014 17:36
af Viktor
Fögnum fjölbreytileikanum segi ég.
Re: Alþjóðlegur grunnskóli í Reykjavík samþykktur
Sent: Lau 14. Jún 2014 17:49
af hakkarin
bjornvil skrifaði:Alveg nauðsynlegt að vera með svona skóla til að koma til móts við fólk sem kemur hingað til að vinna tímabundið og er ekki tilbúið að fórna heilum og hálfum skólaárum hjá börnunum sínum.
Þessi skóli er ekki bara fyrir erlenda verkamenn.
Sallarólegur skrifaði:Fögnum fjölbreytileikanum segi ég.
Það var fjölbreytileiki í gömlu Yúgóslavíu.
Re: Alþjóðlegur grunnskóli í Reykjavík samþykktur
Sent: Lau 14. Jún 2014 18:06
af Gislinn
hakkarin skrifaði:Sallarólegur skrifaði:Fögnum fjölbreytileikanum segi ég.
Það var fjölbreytileiki í gömlu Yúgóslavíu.
Re: Alþjóðlegur grunnskóli í Reykjavík samþykktur
Sent: Sun 15. Jún 2014 01:03
af CendenZ
Þetta er aðalega fyrir börn starfsmanna sendiráðanna og erlendra fyrirtækja/innlendra sem ráða tímabundið til sín erlenda aðila.
Þetta er nákvæmlega svona erlendis, t.d. í Lúxembourg, Washington og Madríd. Þar hafa íslensk börn verið í svipuðum skóla.
Hér á landi er minnir mig Versló eða MH með svona nám fyrir börn á menntaskóla aldri, mig minnir að það nefnist IBA
Re: Alþjóðlegur grunnskóli í Reykjavík samþykktur
Sent: Sun 15. Jún 2014 09:10
af Bjosep
Það getur stundum verið gott að horfa á hlutina frá fleiru en einu sjónarhorni áður en maður tjáir sig þá.
En ef maður ætlar að taka djúpt á árinni er best að kynna sér ekki neitt og öskra sem hæst!
Re: Alþjóðlegur grunnskóli í Reykjavík samþykktur
Sent: Sun 15. Jún 2014 10:00
af lukkuláki
Hakkarin
Here's your sign.„Èg skal aldrei leggja minn skerf til að ala upp í Íslendingum þjóðernishrokann, montið yfir forfeðrunum og einangrunarheimskuna“ - Hannes Hafstein
Re: Alþjóðlegur grunnskóli í Reykjavík samþykktur
Sent: Sun 15. Jún 2014 15:14
af rapport
Er þetta ekki bara til að aðstoða fólk við að taka fyrsta skrefið svo að það spjari sig svo betur í venjulegum grunnskóla?
Það þurfa ekki allir að taka Equilibrium framtíðarsýn íhaldsins sér til fyrirmyndar...
Re: Alþjóðlegur grunnskóli í Reykjavík samþykktur
Sent: Mán 16. Jún 2014 09:04
af Stutturdreki
Vantar alveg í þessa frétt að hér hefur verið starfræktur skóli undir sömu formerkjum í 10 ár, Alþjóðaskólinn (
http://www.internationalschool.is/).
Re: Alþjóðlegur grunnskóli í Reykjavík samþykktur
Sent: Þri 15. Sep 2020 10:11
af jonsig
Nostalgía :Það var svo gaman þegar hakkarin var hérna.. og Halistax
Re: Alþjóðlegur grunnskóli í Reykjavík samþykktur
Sent: Þri 15. Sep 2020 14:26
af batti01
Var að furða mig á þessu, hélt að þessi skóli hefði verið starfræktur í nokkur ár
Re: Alþjóðlegur grunnskóli í Reykjavík samþykktur
Sent: Þri 15. Sep 2020 14:30
af appel
CendenZ skrifaði:Þetta er aðalega fyrir börn starfsmanna sendiráðanna og erlendra fyrirtækja/innlendra sem ráða tímabundið til sín erlenda aðila.
Þetta er nákvæmlega svona erlendis, t.d. í Lúxembourg, Washington og Madríd. Þar hafa íslensk börn verið í svipuðum skóla.
Hér á landi er minnir mig Versló eða MH með svona nám fyrir börn á menntaskóla aldri, mig minnir að það nefnist IBA
Bingó. Þetta er fyrir börn starfsmanna erlendra sendiráða. Þetta fólk flytur á milli ýmissa landa reglulega, það gengur ekkert upp að segja bara við börnin að þau þurfi að bara læra nýtt tungumál á 1-2ja ára fresti. Enskan er einfaldlega alþjóðlegt mál þannig að það meikar sense að vera með skóla eingöngu á því máli.