Síða 1 af 1

HM 2014

Sent: Fim 12. Jún 2014 17:12
af svanur08
Menn ekkert orðnir spenntir fyrir HM? Hvaða land ætli taki þessa képpni núna, hvað finnst ykkur?

Re: HM 2014

Sent: Fim 12. Jún 2014 18:17
af I-JohnMatrix-I


:guy

Re: HM 2014

Sent: Fim 12. Jún 2014 23:06
af svanur08
Svona mikill fótbolta áhugi á vaktinni.........

Re: HM 2014

Sent: Fim 12. Jún 2014 23:59
af Xberg
[youtube]https://www.youtube.com/watch?v=LJtRSfDxlvo&list=UUMjd-1F53XKknIcMPtAOmJQ[/youtube]

:svekktur

edit* youtube linkur ekki að virka

---> https://www.youtube.com/watch?v=LJtRSfDxlvo&list=UUMjd-1F53XKknIcMPtAOmJQ

Re: HM 2014

Sent: Fös 13. Jún 2014 00:36
af J1nX
nokkuð viss um að það verði land frá Suður Ameríku.. Brasilía, Argentína, Úrúgvæ koma sterk inn

Re: HM 2014

Sent: Mán 23. Jún 2014 15:58
af chaplin
Okey strákar, hvernig verður þetta í kvöld þar sem tveir leikir eru nuna kl 16 og tveir kl 20 og skv. því sem ég best veit á Rúv réttindi á alla leiki fyrir kl 22. Ekki er Rúv með tvær útsendingar?

Re: HM 2014

Sent: Mán 23. Jún 2014 16:10
af Tesy
chaplin skrifaði:Okey strákar, hvernig verður þetta í kvöld þar sem tveir leikir eru nuna kl 16 og tveir kl 20 og skv. því sem ég best veit á Rúv réttindi á alla leiki fyrir kl 22. Ekki er Rúv með tvær útsendingar?


Rúv mun sýna
15:50 Holland - Chile
19:50 Króatía - Mexíkó

Og þeir endursýna
00:20 Kamerún - Brasilía
02:05 Ástralía - Spánn

Yfirleitt þegar það er leikur klukkan 22, þá sýnir Rúv það klukkan 00 (12)

Re: HM 2014

Sent: Mán 23. Jún 2014 16:12
af ponzer
chaplin skrifaði:Okey strákar, hvernig verður þetta í kvöld þar sem tveir leikir eru nuna kl 16 og tveir kl 20 og skv. því sem ég best veit á Rúv réttindi á alla leiki fyrir kl 22. Ekki er Rúv með tvær útsendingar?


https://www.dropbox.com/s/dqokhcdbpse1c0o/HM2014.pdf

Rúv er með eina útsendingu og Stöð2 með hina

Re: HM 2014

Sent: Mán 23. Jún 2014 17:48
af bigggan
Þið getur horft á leikirnar beint herna, þau ykkar sem ekki er með stöð2:

http://gofirstrow.eu/

Re: HM 2014

Sent: Þri 24. Jún 2014 16:11
af capteinninn
Þetta hefur verið frábært mót, nokkuð um dómararugl að mínu mati samt sem áður en annars fínt mót.

En ég tel að það þurfi að hrósa Rúv fyrir að hafa loksins uppfært servera eða hvað það er sem var vandamálið að það var ekki hægt að horfa á neina stórleiki á ruv.is fyrir ekki svo löngu síðan, ég var mjög stressaður fyrir mótið að geta ekki horft á leikina á ruv.is án þess að það laggaði í tætlur eða í hörmulegum gæðum því ég er ekki með loftnet hjá mér.

Ég get næstum fyrirgefið þeim að selja leikina til Stöð 2 Sport í lokaða dagskrá útaf þessu

Re: HM 2014

Sent: Þri 08. Júl 2014 00:58
af Labtec
Sé að menn eru að missa sig yfir HM hér á vaktin.is

Re: HM 2014

Sent: Þri 08. Júl 2014 01:15
af svanur08
Labtec skrifaði:Sé að menn eru að missa sig yfir HM hér á vaktin.is


Hehe ákkurat, en hvað finnst þér hverjir fara í úrslitaleikinn?

Re: HM 2014

Sent: Þri 08. Júl 2014 02:41
af capteinninn
Labtec skrifaði:Sé að menn eru að missa sig yfir HM hér á vaktin.is


Ég held að það séu allir að tala um þetta bara í sínum vinahópum eða grúppum og nenna ekki að tala um það á fleiri stöðum.

Allavegana tvær facebook groupur hjá mér eru endalaust að tala um HM.

Ég held að þetta verði Þýskaland - Holland, Brasilía án Neymars er frekar illa stödd. Holland finnst mér vera búnir að vera miklu líklegri í öllum leikjunum hingað til, þeir eru líka liðið mitt þannig að ég er kannski biased

Re: HM 2014

Sent: Þri 08. Júl 2014 09:40
af Labtec
Allavegana sé fyrir mér Þýskaland vs Argentina í úrslít (þó svo ég væri ekkert á móti sjá Brasíl frekar)

Re: HM 2014

Sent: Þri 08. Júl 2014 11:17
af Tesy
Ég spái að Þýskaland og Holland fari í úrslit.
Brasilía mun spila án Neymars og Thiago Silva í kvöld og ég held að þeir tapi útaf því, en allt getur gerst í fótbolta.
Argentína spilar án Di Maria og Hollendingar án De Jong. Mér finnst samt lið Hollendingar sterkari í ár.

Re: HM 2014

Sent: Þri 08. Júl 2014 11:32
af DaRKSTaR
þýskaland - argentína í úrslitum.

messi klárar holland.

Re: HM 2014

Sent: Þri 08. Júl 2014 12:58
af svanur08
Ég vil sjá Þýskaland og Holland í úrslitum.

Re: HM 2014

Sent: Þri 08. Júl 2014 22:19
af Labtec
Ætla vera fyrstur til að segja það



VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ



Vorkenni Brasiliumönnum

Re: HM 2014

Sent: Þri 08. Júl 2014 22:25
af Tesy
Það gískaði enginn á 7-1 :)

Re: HM 2014

Sent: Þri 08. Júl 2014 22:39
af halldorjonz
Tesy skrifaði:Það gískaði enginn á 7-1 :)


að þýskaland myndi skora meira en 3 mörk í 90 mín held ég bara að mjög fáir hafi bettað á,