Síða 1 af 1

Hvað tekur langan tíma að flytja ljósleiðara tengingu ?

Sent: Mið 11. Jún 2014 22:09
af fedora1
Sælir,
Er að flytja, veit einhver hér hvað það tekur langan tíma að flytja ljósleiðarann yfir á nýjan stað ? Sendi fyrirspurn í gegnum heimasíðu hringdu en þeir svöruðu henni ekki.
Það er ljósleiðarabox á nýja staðnum, þannig að þetta er bara að virkja tenginguna á nýja staðnum.
Þurfa þeir 1 dag í þetta eða virku fyrirvara ? Missir maður netið í einhvern tíma eða er þetta bara flipp off, flipp on ?

Re: Hvað tekur langan tíma að flytja ljósleiðara tengingu ?

Sent: Mið 11. Jún 2014 22:22
af billythemule
Ég hef ekki fært tengingu en ég hef pantað nýja og hún var tilbúinn klukkustund seinna. Ég myndi búast við því að þetta sé fljótt ferli.

Re: Hvað tekur langan tíma að flytja ljósleiðara tengingu ?

Sent: Mið 11. Jún 2014 23:15
af Viktor
Fer bara eftir því hvort það sé í lagi með boxið, ef það er allt tilbúið tekur þetta 1-3 daga.

Re: Hvað tekur langan tíma að flytja ljósleiðara tengingu ?

Sent: Mið 11. Jún 2014 23:24
af Nariur
Ég lenti í því að fyrri íbúi hafði ekki sagt upp línunni hjá gagnaveitunni, það tók viku að redda því.
Ef þú lendir ekki í veseni, þá mun þetta ekki taka langan tíma.

Re: Hvað tekur langan tíma að flytja ljósleiðara tengingu ?

Sent: Fim 12. Jún 2014 00:04
af einarth
Sæll.

Eins og hefur svosem komið fram áður - þá tekur enga stund að færa tengingu frá einu ljósleiðara tengdu heimili yfir á annað....svo lengi sem það sé í lagi með tenginguna á nýja staðnum og að það sé ekki annar virkur viðskiptavinur á henni.

Kv, Einar.

Re: Hvað tekur langan tíma að flytja ljósleiðara tengingu ?

Sent: Fim 12. Jún 2014 09:55
af fedora1
Takk, ef það er virkur viðskiptavinur fyrir, þá er þetta varla vandamál fyrir mig :) frítt internet :)
þá hendi ég þessu bara af stað rétt fyrir flutning.

Re: Hvað tekur langan tíma að flytja ljósleiðara tengingu ?

Sent: Fim 12. Jún 2014 14:48
af Nariur
fedora1 skrifaði:Takk, ef það er virkur viðskiptavinur fyrir, þá er þetta varla vandamál fyrir mig :) frítt internet :)
þá hendi ég þessu bara af stað rétt fyrir flutning.


Nei, fólk hefur oftast vit á því að segja tengingunni upp hjá fjarskiptafyrirtækinu, bara ekki línunni hjá gagnaveitunni.

Re: Hvað tekur langan tíma að flytja ljósleiðara tengingu ?

Sent: Fim 12. Jún 2014 16:23
af dabb
einarth skrifaði:Sæll.

Eins og hefur svosem komið fram áður - þá tekur enga stund að færa tengingu frá einu ljósleiðara tengdu heimili yfir á annað....svo lengi sem það sé í lagi með tenginguna á nýja staðnum og að það sé ekki annar virkur viðskiptavinur á henni.

Kv, Einar.



Ó fiber galdrakall, hvað gerir maður ef að notandi er skráður fyrir ljósleiðaraboxi í íbúð sem maður var að flytja í, og það næst ekki í notandann til að biðja hann um að afskrá sig af boxinu?

Re: Hvað tekur langan tíma að flytja ljósleiðara tengingu ?

Sent: Fim 12. Jún 2014 16:33
af Plushy
dabbtech skrifaði:
einarth skrifaði:Sæll.

Eins og hefur svosem komið fram áður - þá tekur enga stund að færa tengingu frá einu ljósleiðara tengdu heimili yfir á annað....svo lengi sem það sé í lagi með tenginguna á nýja staðnum og að það sé ekki annar virkur viðskiptavinur á henni.

Kv, Einar.



Ó fiber galdrakall, hvað gerir maður ef að notandi er skráður fyrir ljósleiðaraboxi í íbúð sem maður var að flytja í, og það næst ekki í notandann til að biðja hann um að afskrá sig af boxinu?


Held að það sé amk hægt að framvísa þinglýstum leigusamningi og fá GR til að segja upp notandanum upp ef hann er ekki með aðsetur í íbúðinni :P