Síða 1 af 1

Tölvuleikur á Unglingalandsmóti?

Sent: Mið 28. Maí 2014 14:40
af SolviKarlsson
Tók eftir að það verður keppt í "tölvuleik" á Unglingalandsmóti UMFÍ. Veit einhver hvaða leikur þetta er?

Annars hvað finnst ykkur um þetta?

http://umfi.is/unglingalandsmot-2014

Re: Tölvuleikur á Unglingalandsmóti?

Sent: Mið 28. Maí 2014 14:45
af AntiTrust
Ég hef oft sagt þetta og segi það enn - Það er vissulega hægt að keppa í tölvuleikjum, en þetta verður seint íþróttagrein.

Finnst vægast sagt kjánalegt að hafa þetta með á UMFÍ. Sama má segja um skák, stafsetningu og upplestur sem er í listanum þarna.

Re: Tölvuleikur á Unglingalandsmóti?

Sent: Mið 28. Maí 2014 14:52
af robakri
unglingalandsmót skorðar sig ekki eingöngu við íþróttir, þannig þú getur bara sleppt því að kalla þetta íþrótt og lifað hamingjusamur

Re: Tölvuleikur á Unglingalandsmóti?

Sent: Mið 28. Maí 2014 14:58
af AntiTrust
robakri skrifaði:unglingalandsmót skorðar sig ekki eingöngu við íþróttir, þannig þú getur bara sleppt því að kalla þetta íþrótt og lifað hamingjusamur


UMFÍ er "íþrótta- og heilsuhátíð". Það er ekkert heilsusamlegt við tölvuleiki, og lítið íþróttalegt. Með því að setja tölvuleiki, stafsetningu og upplestur með eru þeir að bregða sér vel út fyrir það svið.

Re: Tölvuleikur á Unglingalandsmóti?

Sent: Mið 28. Maí 2014 15:02
af robakri
Gott fyrir geðheilsuna

Re: Tölvuleikur á Unglingalandsmóti?

Sent: Mið 28. Maí 2014 15:15
af Plushy
AntiTrust skrifaði:
robakri skrifaði:unglingalandsmót skorðar sig ekki eingöngu við íþróttir, þannig þú getur bara sleppt því að kalla þetta íþrótt og lifað hamingjusamur


UMFÍ er "íþrótta- og heilsuhátíð". Það er ekkert heilsusamlegt við tölvuleiki, og lítið íþróttalegt. Með því að setja tölvuleiki, stafsetningu og upplestur með eru þeir að bregða sér vel út fyrir það svið.


UMFÍ er reyndar Ungmannafélag Íslands og hátíðin sem þetta félag er íþrótta- og heilsuhátíð. Mér finnst amk flott að það sé verið að bjóða uppá sem flest og það hefur verið að sýna sig að tölvuleikir er eitthvað sem hægt er að keppa í.

Svona til að finna eitthvað skemmtilegt, þá er opnumyndin á síðunni hjá þeim alveg frekar mikið fyndin. Svona eins og flestar íþróttamyndir þá eru alltaf skemmtilegir svipir á fólki :)

Re: Tölvuleikur á Unglingalandsmóti?

Sent: Mið 28. Maí 2014 15:31
af Gislinn
AntiTrust skrifaði:UMFÍ er "íþrótta- og heilsuhátíð". Það er ekkert heilsusamlegt við tölvuleiki, og lítið íþróttalegt. Með því að setja tölvuleiki, stafsetningu og upplestur með eru þeir að bregða sér vel út fyrir það svið.


Hvað meinar þú? Ertu að segja að pönnukökubakstur og jurtagreining séu ekki íþróttir. :guy

Re: Tölvuleikur á Unglingalandsmóti?

Sent: Mið 28. Maí 2014 15:55
af Perks
Mín skoðun er að það er frábært að það sé verið að reyna koma til móts við krakkana með þessu.
En að pósta þessu á vaktinni sem ég áætla að séu margir hverjir hlynntir tölvuleikjum þá var það fyrsta sem mér datt í hug

you-came-to-the-wrong-neighborhood-sweetheart.jpg
you-came-to-the-wrong-neighborhood-sweetheart.jpg (81.77 KiB) Skoðað 1239 sinnum

Re: Tölvuleikur á Unglingalandsmóti?

Sent: Mið 28. Maí 2014 15:59
af AntiTrust
Perks skrifaði:Mín skoðun er að það er frábært að það sé verið að reyna koma til móts við krakkana með þessu.
En að pósta þessu á vaktinni sem ég áætla að séu margir hverjir hlynntir tölvuleikjum þá var það fyrsta sem mér datt í hug

you-came-to-the-wrong-neighborhood-sweetheart.jpg


Ég er nefnilega ekki sammála um að það sé sniðugt að vera að koma á móts við þá með þetta. Við eigum að vera að ýta undir hreyfingu, ekki þessa leti-rafvespumenningu sem er að myndast.

Re: Tölvuleikur á Unglingalandsmóti?

Sent: Mið 28. Maí 2014 16:02
af Perks
Ég myndi halda að fleiri krakkar myndu mæta (óneyddir) ef það er boðið uppá eitthvað svona. Væntanlega verða þeir svo virkjaðir í fleiri activities um helgina.

Re: Tölvuleikur á Unglingalandsmóti?

Sent: Mið 28. Maí 2014 16:08
af robakri
AntiTrust Það eru fullt af sjónarmiðum í þessu, og það eru alveg til rök sem styðja þína skoðun og margt rétt í því. Mér finnst þetta jákvætt í heildina, þrátt fyrir að hafa eitthvað neikvætt í fari sér.

T.d. má segja að með því að koma til móts við "nördana" eða hvað við viljum kalla þá, þá er mögulega búið að smala hópi ungmenna, sem annars hefði verið heima hjá sér, á athöfn, þar sem íþróttir eru fyrirrúmi (allavega ennþá) og mikið af leikjum og uppákomum eru í gangi, sem bjóða upp á hreyfingu. Hver veit nema það að sýna aðeins áhugamálum þessa hóps jákvætt viðhorf og bjóða þeim að vera með vekji áhuga / hvetji til hreyfingar.

Mér finnst þetta allavega afar jákvætt, þetta eru ekki beinlínis ólympíuleikar og tilgangur mótsins sennilega að efla félagslíf ungmenna, og þetta eru að mínu mati góð skref í áttina að því.

Re: Tölvuleikur á Unglingalandsmóti?

Sent: Fim 29. Maí 2014 11:00
af SolviKarlsson
En veit einhver hvaða leik verður keppt í?

Re: Tölvuleikur á Unglingalandsmóti?

Sent: Fim 29. Maí 2014 12:49
af Bjosep
AntiTrust skrifaði:
Perks skrifaði:Mín skoðun er að það er frábært að það sé verið að reyna koma til móts við krakkana með þessu.
En að pósta þessu á vaktinni sem ég áætla að séu margir hverjir hlynntir tölvuleikjum þá var það fyrsta sem mér datt í hug

you-came-to-the-wrong-neighborhood-sweetheart.jpg


Ég er nefnilega ekki sammála um að það sé sniðugt að vera að koma á móts við þá með þetta. Við eigum að vera að ýta undir hreyfingu, ekki þessa leti-rafvespumenningu sem er að myndast.


Tölvuleikir og íþróttaiðkun er ekki eitthvað sem er ósamrýmanlegt (e: mutually exclusive). Ekki frekar en margt annað þarna sem krefst ekki mikillar hreyfingar.