Síða 1 af 1

Tölvustóll á max 150k

Sent: Þri 27. Maí 2014 20:46
af halldorjonz
Sælir

Er búinn að vera með eitthvern skrifborðsstóls sem ég keypti árið 2007 á 18þúsund
Og helvítis púðarnir eru gjörsamlega farnir í þessu drasli, eins og hann er nú vel byggður og vel þungur stóllinn
þá er þetta algjört junk sem maður situr á byrjaður að fá í rassinn og bakið á því að sitja í þessu...

En þar sem maður er að setja á meðaltali svona 5 tíma á dag í tölvunni og maður er búinn að vera vinna þá ákvað ég að
nú væri kominn tími til að kaupa sér eitthvern mjög góðan stól og þar sem ég veit ekki neitt um stóla,
nema bara að ég hef heyrt Aeron frá Herman Miller séu víst alveg ótrúlegir en þeir kosta yfir 300k þannig það er out of my range.

Þá spyr ég ykkur vaktarar: Hvaða stól ætti ég að fá mér?! :D LINKS, og hvað á ég að prufa, og hvar etc.
Langar í eitthvað sem endist vel og er þæginlegt og gott fyrir líkamann. :happy

Verðhugmynd 0 og max 150þúsund sirka.

Re: Tölvustóll á max 150k

Sent: Þri 27. Maí 2014 21:02
af Plushy
Þetta eiga víst að vera svona alvöru "tölvu" stólar. http://www.dxracer.com/

veit ekki með hvort þetta séu samt það góðir stólar, en eru víst sérhannaðir fyrir gaming.

Annars myndi ég skoða úrvalið hjá Pennanum upp á góða skrifborðsstóla penninn.is/husgogn/skrifbordsstolar/

Re: Tölvustóll á max 150k

Sent: Þri 27. Maí 2014 22:44
af rapport
http://penninn.is/nanar/?productid=ab11 ... 73807aa52b

Fékk svona á 3500 í Góða hirðinum í seinustu viku. Eftir að vinur minn hafði fengið svona fyrr í vetur þá datt mér í hug að reka inn hausinn og fór bara að hlæja þegar ég sá hann...

Þurfti smá þrif en allt stellið virkar...

Re: Tölvustóll á max 150k

Sent: Mið 28. Maí 2014 01:41
af RobertSaedal
Sá í Tölvutek

http://www.tolvutek.is/vorur/husgogn?

Veit ekki hversu góðir þeir eru en fékk að prufa að sitja.. Comfy cozy

Re: Tölvustóll á max 150k

Sent: Mið 28. Maí 2014 01:59
af vesley
rapport skrifaði:http://penninn.is/nanar/?productid=ab117574-e5bd-407c-9f66-d373807aa52b

Fékk svona á 3500 í Góða hirðinum í seinustu viku. Eftir að vinur minn hafði fengið svona fyrr í vetur þá datt mér í hug að reka inn hausinn og fór bara að hlæja þegar ég sá hann...

Þurfti smá þrif en allt stellið virkar...



Er með svona stól í vinnunni, rosalega góður stóll til að sitja lengi í, gefur mikinn stuðning við bak og hægt að stilla hann á allar vegur.

En myndi ég eyða 160 þús kall í hann ?

Ekki séns..

Re: Tölvustóll á max 150k

Sent: Mið 28. Maí 2014 07:21
af Benzmann
myndi checka á þeim í GÁ húsgögn, ég fékk stólinn minn þar fyrir c.a 10 árum síðan og ég er enþá að nota hann í dag, hann klikkar ekki!

Ég var orðinn vel þreyttur á því að vera alltaf að kaupa mér nýjann skrifborðsstól frá Ikea og Rúmfó 5-6 mánaða fresti, þeir entust mér ekki lengur en það miðað við hvað ég notaði þá mikið. voru að brotna, arma draslið var að detta af og svona. Þar til að ég nennti þessu ekki lengur og fór í GÁ og keypti mér stól í dýrari kantinum, kostaði eh 50þús kr þá!! sem var liggur við brjálæði hehe, en ég býst við að þessi stóll í dag kosti eh um 120-150þús nýr í dag sem ég er með.

Re: Tölvustóll á max 150k

Sent: Mið 28. Maí 2014 07:25
af chaplin
Ef þú getur platað þá til að gefa þér betra verð eða vilt auka budgetið og vera með einn sá lang besta stól sem þú getur fengið, http://innx.is/?item=150&v=item. Mæli amk. með því að prufa hann.

Re: Tölvustóll á max 150k

Sent: Fim 29. Maí 2014 20:29
af halldorjonz
chaplin skrifaði:Ef þú getur platað þá til að gefa þér betra verð eða vilt auka budgetið og vera með einn sá lang besta stól sem þú getur fengið, http://innx.is/?item=150&v=item. Mæli amk. með því að prufa hann.


lýst helviti vel a þennan .. ætla prufa hann

Re: Tölvustóll á max 150k

Sent: Fös 30. Maí 2014 03:48
af g0tlife
búinn að eiga þennann í mörg mörg ár http://www.ikea.is/products/618 frábær stóll