Síða 1 af 1

Haldiði að það megi flytja þetta inn ?

Sent: Þri 27. Maí 2014 15:13
af MrSparklez
Haldiði að tollurinn sé að fara að stoppa þetta ?

Re: Haldiði að það megi flytja þetta inn ?

Sent: Þri 27. Maí 2014 15:27
af dori
Af hverju myndi tollurinn gera það?

Re: Haldiði að það megi flytja þetta inn ?

Sent: Þri 27. Maí 2014 15:28
af hfwf
Er ekki auðveldara hoppa bara á næstu beinsínstöð og kaupa þetta á þúsara.

Re: Haldiði að það megi flytja þetta inn ?

Sent: Þri 27. Maí 2014 15:39
af appel
Segir nokkuð mikið um haftaeðlið í íslendingum að menn þurfi að spyrja hvort bætur fyrir dekk á reiðhjólum séu leyfileg hér á landi.

Nei, þetta er ekki bannað. Þó kæmi mér það ekki á óvart ef svo væri, við náum einhvernveginn að gera alla vegi ófæra hér af ástæðulausu.

Re: Haldiði að það megi flytja þetta inn ?

Sent: Þri 27. Maí 2014 15:47
af MrSparklez
Ég myndi kaupa þetta hér en ég er að reyna að laga hátalara og þeir á audiokarma mæla með þessu sérstaka merki. Hélt bara að þetta þyrfti að vera CE merkt eða eitthvað þannig.

http://www.audiokarma.org/forums/showth ... 290&page=2

Re: Haldiði að það megi flytja þetta inn ?

Sent: Þri 27. Maí 2014 16:02
af robakri
Ég hef keypt nákvæmlega þetta merki hér á Íslandi, en það var fyrir svona 10 árum, ertu búinn að fara í þessar helstu hjólreiðaverslanir og athuga hvort þetta sé ekki bara til?

Re: Haldiði að það megi flytja þetta inn ?

Sent: Þri 27. Maí 2014 16:31
af einarn
MrSparklez skrifaði:Ég myndi kaupa þetta hér en ég er að reyna að laga hátalara og þeir á audiokarma mæla með þessu sérstaka merki. Hélt bara að þetta þyrfti að vera CE merkt eða eitthvað þannig.

http://www.audiokarma.org/forums/showth ... 290&page=2


Þeir eru virkilega harðir á CE merkingunum. Enn ef þetta hefur sambæralega Vottun frá usa þá taka þeir það gilt.

Re: Haldiði að það megi flytja þetta inn ?

Sent: Þri 27. Maí 2014 16:45
af MrSparklez
robakri skrifaði:Ég hef keypt nákvæmlega þetta merki hér á Íslandi, en það var fyrir svona 10 árum, ertu búinn að fara í þessar helstu hjólreiðaverslanir og athuga hvort þetta sé ekki bara til?

Neibb, geri það örruglega áður en ég panta þetta.

Re: Haldiði að það megi flytja þetta inn ?

Sent: Þri 27. Maí 2014 16:49
af Bjosep
Mér finnst endilega eins og Europris hafi verið með þessar bætur þannig að það er ekki sjálfgefið að nákvæmlega þetta vörumerki sé til en það eru eiginlega nánast allir að selja bætur í dag þannig að þú getur örugglega fundið þetta hvar sem er.

Tékkaðu líka á hagkaup, byko, húsasmiðjunni fyrir utan allar hjólabúðirnar.

Re: Haldiði að það megi flytja þetta inn ?

Sent: Fim 29. Maí 2014 20:22
af Gúrú
REMA er þýskt fyrirtæki skv. íslenska umboðsaðilanum.

Umfram það eru einhver REMA Tip Top efni seld af N1 og hafa verið frá a.m.k. 2009(pdf).

Ætla að skjóta á það að þetta verði ekki stoppað í tollinum.

Re: Haldiði að það megi flytja þetta inn ?

Sent: Fim 29. Maí 2014 20:53
af brain
ath líka Tómstundahúsið.