Síða 1 af 2

Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Mið 14. Maí 2014 13:41
af hakkarin
Þá er ég að meina bjórar sem að eru ekki Viking, Gull, Tuborg, Carslberg etc.

Það eru svona milljón bjórar í ÁTVR og ég er að reyna að finna þá góðu. Kaldi virðist vera ógætur. Finnst bolli og Bríó ekki spes. Skálfti er fínn en samt ekki eitthvað sem að ég gæti drukkið oft.

Hvað annað?

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Mið 14. Maí 2014 13:54
af Pascal
Guinnes

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Mið 14. Maí 2014 13:56
af worghal
La trappe
Chimay

Geðveikir trappist bjórar

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Mið 14. Maí 2014 14:00
af appel
Það eru til margar gerðir af bjórum, lager, öl, hveitibjór, indian pale ale, stout, o.sfrv.

Góð mynd sem sýnir þetta:
http://haphappy.com/wp-content/uploads/2011/01/beer.jpg

Mér finnst Fuller's bjór mjög fínn. Einstök Ölgerð er líka með fína bjóra.

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Mið 14. Maí 2014 14:08
af oskar9
Weihenstephaner Vitus er frábær en frekar dýr (900kr) Hefe Weissbier frá þeim er ljós hveitibjór, mjög góður
Erdinger bæði ljós og dökkur.
franziskaner: Ljós hveitibjór, mjög sætur og mikið bananabragð af honum, drekkur ekki nema einn vegna hversu sætur hann er, mjög góður líka
La trappe eru líka frábærir, Blond er svona besti drykkjubjórinn frá þeim en mér fannst Dubbel frábær með nautakjöti, Trippel og quadrupel eru svo frekar sterkir með miklu ávaxtabragði og gott að sötra þá ekki ískalda í rólegheitum.

Fyrir mitt álit þá hef ég ekki lent í bjór sem mér finnst vondur frá Belgíu, Austuríki eða Þýskalandi, kannski misgóðir en enginn vondur.

Svo er bara mismunandi smekkur manna á þessu, mér finnst t.d stout bjórar og þannig algjör viðbjóður

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Mið 14. Maí 2014 14:12
af Bjosep
Eins og appel skrifar þá eru til mjög margar mismunandi bjórgerðir og hugtakið "góður bjór" er mjög persónubundið.

Það væri nær lagi fyrir þig að spyrja hvað séu góðar bjórgerðir en aftur, sú spurning er mjög persónubundin. Þú græðir ekkert á þessari spurningu hér nema að fá upptalningu á öllum vörumerkjunum sem eru til staðar í ríkinu, nema náttúrulega bjórsmekkstvíburabróðir þinn sé óvænt hér á spjallinu.

Þú verður bara að gera vel við þig og gera þér ferð í ríkið og kaupa þér nokkra mismunandi bjóra og endurtaka leikinn næst þegar þú ert þyrstur.

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Mið 14. Maí 2014 22:53
af hakkarin
Skil að skekkur fólks skiptir máli. Samt virðast oft sömu bjóranir vera vinsælir hjá mörgum.

Er eitthvað varið í þessa: http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=11697

http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=02968

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Mið 14. Maí 2014 23:02
af ManiO
hakkarin skrifaði:Skil að skekkur fólks skiptir máli. Samt virðast oft sömu bjóranir vera vinsælir hjá mörgum.

Er eitthvað varið í þessa: http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=11697

http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=02968


Millerinn er auðvelt að drekka, bragðið er voða dauft og enginn 'persónuleiki' bakvið það.

Hef ekki smakkað pilsnerinn.

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Mið 14. Maí 2014 23:10
af appel
Prófaðu einhvern af Fuller bjórunum, þeir eru fínir.

Einstök Pale Ale er mjög góður.

Leffe Blond er alveg klassískt góður.

La Trappe bjórarnir eru yndislegir, Chimay líka.

Stout bjórarnir eru ekki margir, og flestir fínir.

IPA og belgískir bjórar eru í uppáhaldi hjá mér, sterkmiklir bjórar er málið.

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Mið 14. Maí 2014 23:29
af vesley
appel skrifaði:Prófaðu einhvern af Fuller bjórunum, þeir eru fínir.

Einstök Pale Ale er mjög góður.

Leffe Blond er alveg klassískt góður.

La Trappe bjórarnir eru yndislegir, Chimay líka.

Stout bjórarnir eru ekki margir, og flestir fínir.

IPA og belgískir bjórar eru í uppáhaldi hjá mér, sterkmiklir bjórar er málið.


Er einmitt í sama pakka núna IPA og belgískir í miklu uppáhaldi,
Finnst voða gott að drekka einn og einn stout en drekk þá sjaldan þar sem þeir eru flestir þungir og mjög bragðmiklir.



@Appel Hefuru prófað Orval ?

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Fim 15. Maí 2014 00:01
af appel
vesley skrifaði:@Appel Hefuru prófað Orval ?


Neibb. Link?

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Fim 15. Maí 2014 02:55
af haywood
fara í bjórsmakk á micro

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Fim 15. Maí 2014 08:31
af vesley
appel skrifaði:
vesley skrifaði:@Appel Hefuru prófað Orval ?


Neibb. Link?



Hann er til á Micro bar, fæst ekki í ríkinu þar sem hann er framleiddur í takmörkuðu magni.

Hann er bruggaður í munnkaklaustri í Belgíu og hefur nokkuð sérstakt en mjög gott bragð. 6,2% mjög ljós og fann ég smávegis ávaxtakeim í honum í eftirbragðinu.

http://en.wikipedia.org/wiki/Orval_Brewery

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Fim 15. Maí 2014 10:03
af Pandemic
Ég er sucker fyrir rauð-öli eins og Duchesse de Bourgogne. Ekki fyrir alla en alveg rosalega gott ef þetta er eitthvað sem virkar á ykkur.

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Fös 23. Maí 2014 09:59
af Jón Ragnar
Fyndið.

Spurning um bjóra sem eru ekki mainstream og svo koma Miller og Pilsner. Mest generic bjórar ever :)

Ekkert illa meint samt.


Góðir bjórar að mínu mati

BrewDog Punk IPA
BrewDog JackHammer
Founders All Day IPA
Sierra Nevada Torpedo
Sierra Nevada Pale Ale
Gæðingur Pale Ale
Gæðingur Hveitibjór
Ölvisholt Skaði
Borg Úlfur
Borg Úlfur Úlfur, Eiginlega allir bjórar frá Borg sem eru góðir
Houblon Chouffe
Saison Dupont (að mínu mati LANGBESTI bjórinn)
Erdinger Dunkel
Leffe Brune
Leffe Blonde



Má endalaust telja

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Fös 23. Maí 2014 10:17
af hfwf
Micro bjórar eru ekki mainstream meðan macro bjórar eru mainstream, nóg sagt.

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Fös 23. Maí 2014 10:43
af appel
Góður bjór er bara sá sem þér þykir bestur. Macro, micro, mainstream, eða hvaðeina. Það eru til góðir mainstream bjórar, líka vondir micro bjórar.

Svo fer þetta mjög mikið eftir því umhverfi sem þú ert í. Ég er ekki viss um að Guinnes sé rétti drykkurinn á ströndinni í Mexíkó, á meðan ískaldur Corona í glasi með sítrónu gæti verið það. Ef þú ert á bar í kjallara í belgíu með félögunum gæti verið sniðugt að fá sér trapistu bjór. Ef þú kemur heim til þín eftir erfiðan vinnudag á föstudegi gæti verið gott að fá sér kaldan carlsberg.

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Fös 23. Maí 2014 11:14
af Jón Ragnar
appel skrifaði:Góður bjór er bara sá sem þér þykir bestur. Macro, micro, mainstream, eða hvaðeina. Það eru til góðir mainstream bjórar, líka vondir micro bjórar.

Svo fer þetta mjög mikið eftir því umhverfi sem þú ert í. Ég er ekki viss um að Guinnes sé rétti drykkurinn á ströndinni í Mexíkó, á meðan ískaldur Corona í glasi með sítrónu gæti verið það. Ef þú ert á bar í kjallara í belgíu með félögunum gæti verið sniðugt að fá sér trapistu bjór. Ef þú kemur heim til þín eftir erfiðan vinnudag á föstudegi gæti verið gott að fá sér kaldan carlsberg.



Klárt mál

Besti bjór ever er yfirleitt sá sem passar við augnablikið

Fátt betra en að fá sér ÍSKALDAN Sumarbjór frá Víking eða jafnvel bara Lite með grillinu á sumrin :)

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Fös 23. Maí 2014 11:30
af helgimarbjarna
Svo er bara um að gera að nota appið og skrá hjá sér hvað manni þykir best og verst :happy

https://play.google.com/store/apps/deta ... h.pupuOlut

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Fös 23. Maí 2014 16:25
af svanur08
Hérna er listi yfir bestu----> http://www.beeradvocate.com/lists/top/

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Fös 23. Maí 2014 18:27
af hfwf
svanur08 skrifaði:Hérna er listi yfir bestu----> http://www.beeradvocate.com/lists/top/


Synist vera eingöngu 2 bjorar a listanum sem til eru her.

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Fös 23. Maí 2014 18:33
af svanur08
hfwf skrifaði:
svanur08 skrifaði:Hérna er listi yfir bestu----> http://www.beeradvocate.com/lists/top/


Synist vera eingöngu 2 bjorar a listanum sem til eru her.


Yeps ótrúlegt hvað er til mikið af bjór worldwide.

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Lau 24. Maí 2014 17:42
af intenz
Ég smakkaði Carls í gær, kom mjög skemmtilega á óvart!

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Sun 25. Maí 2014 17:01
af hakkarin
Ok ég smakkað þennan um helgina og munn klárlega kaupa meira af honum: http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=11697

Mér finnst þetta mjög ódýrt miðað við að þetta sé alveg 500ml dós með 4% styrk. Bragðið er að vísu ekkert super classy, and það er samt alveg fínt og algjörlega drykkjuhæft. Samt hef ég aldrei séð neinn drekka þetta. Ætli fólk sé að ruglast á þessu og léttölinu sem er selt í verslunum?

Re: Góðir bjórar sem eru ekki mainstream

Sent: Mán 26. Maí 2014 02:52
af Frikkasoft
Bríó, ég fæ aldrei leið á þér!

Besti... bjór... ever...