Síða 1 af 1

Mahjong og önnur borðspil

Sent: Sun 04. Maí 2014 14:48
af Blackz
Kunna einhverjir hérna mahjong? hér er ég að tala um alvöru mahjong, ekki netleikina sem er búið að stafla mahjong kubbum.

Veit einhver hvar maður getur keypt sér mahjong kubba? fann þá hvorki á heimasíðunni hjá spilavinir né nexus. Kannski maður þurfi að panta þá frá útlöndum, langar helst ekkert í notað sett, svosem ekki líklegt að margir eigi mahjong kubba sem eru ekki mahjong fans. Erum stundum með borðspila kvöld félagarnir og held að mahjong gæti veriðð skemmtileg viðbót.

Annars hvaða borðspil fílar fólk mest?
mitt uppáhaldsspil er klárlega Catan, Munchkin er líka snilld.

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Sun 04. Maí 2014 14:54
af Heidar222
Er sjálfur að panta Cards Against Humanity, hef heyrt margt gott um það :)
https://www.youtube.com/watch?v=NEg-wWRcLdI

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Sun 04. Maí 2014 15:34
af Pandemic
Catan fer ekki úr spilahillunni hjá mér þessa dagana, mörg mun betri spil komið síðan það var gefið út.
Ef ég vil strategy þá myndi ég velja Game of Thrones sem er með betri strategy spilum sem hafa komið út síðustu ár að mínu mati.
Co-op spil hafa líka verið að gera góða hluti eins og Forbidden Desert, Pandemic og Eldritch Horror(best að mínu mati).
Svo er fjölskylduhittarinn klárlega Relic Runners sem er pjúra snilld.
Mæli líka með X-Wing ef fólk er að fíla Star Wars og módel leiki.
Annars er erfitt að segja hvað er best, fer allt eftir spilahópnum og stemningu.

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Sun 04. Maí 2014 16:30
af worghal
battlestar galactica!!
sjúkt spil á alla vegu!

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Sun 04. Maí 2014 19:33
af Blackz
Ég var pínu búinn að pæla í að kaupa mér cards against humanity en hætti við þegar ég sá að það kostaði 10þúsund, finnst
það ekki nógu spennandi fyrir slíkan pening. Er búinn að heyra mjög góða hluti um GoT spilið en er ekki mikill GoT fan og þess
vegna er ég ekkert spenntur fyrir að kaupa mér það. Efst á lista núna eru held ég Mahjong og eitthvað Coop spil

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Sun 04. Maí 2014 19:45
af worghal
Battlestar er besta coop spil sem eg hef spilad

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Sun 04. Maí 2014 21:36
af beini
Í gær var ég að spila castle panic með góðum hóp. Náðum að vernda "kastalann". Castle panic er mjög skemmtilegt co-op spil. Munchkin er einnig afar skemmtilegt þegar maður hefur góðan og stóran hóp til að spila með.
Annars hef ég lúmskt gaman af dungeonquest, hef náð að komast að fjársjóðnum og til baka (gamla útg.). Þetta spil gerir mann krikk við hvert einasta skref sem maður tekur og er það lukka ein ef maður kemst lifandi af.

Annars, þá er alltaf skemmtilegt að taka spil sem er auðvelt að setja upp og spila eins og desert island/desert. Tsuro og bohnanza :happy

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Mán 05. Maí 2014 00:12
af Blackz
Já, hef horft svolítið á Tabletop með Wil Wheaton(mæli með þeim ef þið eruð að pæla í einhverju ákveðnu spili). Af þeim þáttum að
dæma fannst mér desert island, Tsuro og Castle panic looka skemmtilegt. Fannst reyndar Tsuro of the seas looka skemmtilegra en
upprunalega spilið. Þarf að tjekka á Battlestar galactica.

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Mán 05. Maí 2014 00:29
af trausti164
Risk er náttúrulega klassískt og ég hef heyrt góða hluti um Small World og Axis&Allies.

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Mán 05. Maí 2014 14:26
af Jón Ragnar
Blackz skrifaði:Ég var pínu búinn að pæla í að kaupa mér cards against humanity en hætti við þegar ég sá að það kostaði 10þúsund, finnst
það ekki nógu spennandi fyrir slíkan pening. Er búinn að heyra mjög góða hluti um GoT spilið en er ekki mikill GoT fan og þess
vegna er ég ekkert spenntur fyrir að kaupa mér það. Efst á lista núna eru held ég Mahjong og eitthvað Coop spil

Trust me. Það er þess virði.

Besta partyspilið

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Mán 05. Maí 2014 14:50
af Heidar222
Jón Ragnar skrifaði:

Mæli með að kaupa það af Amazon.com og fá einhvern til að taka það fyrir þig heim ef þú átt möguleika á því, kostar rúmlega 4000 þar.

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Mán 05. Maí 2014 18:13
af trausti164
Heidar222 skrifaði:

Svo er það náttúrulega open source og hægt að downloada því af cards against humanity síðunni til prentunar.

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Mán 05. Maí 2014 23:32
af beini
haha, já, Tabletop eru fínustu þættir. Hafði þá þó ekki í huga þegar ég var að mæla með þessum spilum en fínasta auglýsing fyrir Will Wheaton :megasmile

Ég veit ekki alveg með Tsuro of the seas, hef ekki spilað það. Man þó eftir Will Wheaton spila en fannst vera flækja örlítið einfalt spil. Ætla mér að spila það einn daginn :8)

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Þri 06. Maí 2014 20:54
af Blackz
Já, held ég kíkji í spilavini á morgun í tilefni þess að próftíð er lokið. En veit enginn hvar hægt er að fá Mahjong? Ég á ekki bíl nenni tæplega að hjóla um allan bæ í leit af því ef einhver hefur rekist á það einhversstaðar.

Re: Mahjong og önnur borðspil

Sent: Þri 06. Maí 2014 21:30
af trausti164
Blackz skrifaði:Já, held ég kíkji í spilavini á morgun í tilefni þess að próftíð er lokið. En veit enginn hvar hægt er að fá Mahjong? Ég á ekki bíl nenni tæplega að hjóla um allan bæ í leit af því ef einhver hefur rekist á það einhversstaðar.

Getur pantað í gegnum Nexus.