Síða 1 af 1

Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 16:03
af JammingHobo
Sælir notendur.
Er einhver að kaupa aura?
Hvað fær maður fyrir 31,8 aura eins og staðan er núna?

Re: Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 16:05
af HalistaX
Ert heppinn ef þú færð 1200-1300 kall

Re: Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 16:12
af JammingHobo
ok,þessi zimmi btc óðinsson býður 1748 kall fyrir 31,8 aur

Re: Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 16:16
af GuðjónR
HalistaX skrifaði:Ert heppinn ef þú færð 1200-1300 kall

Já ef þú ert mjöööög heppinn.
Þú þarft að selja, borga þóknun, færa yfir á annan stað og borga þóknun fyrir withdraw, borgar svo þóknun þegar þú selur btc, svo borgaðu þóknun fyrir millifærslu milli landa.

Ég skal kaupa þetta af þér á 500kr. þá geturðu fengið þér samloku og kók á Aktu Taktu.

Re: Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 16:18
af JammingHobo
En ef ég segi þér að ég búi í Grindavík..
Splæsiru þá í taxa fyrir mig svo ég komist á aktu taktu?

Re: Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 17:08
af GuðjónR
JammingHobo skrifaði:En ef ég segi þér að ég búi í Grindavík..
Splæsiru þá í taxa fyrir mig svo ég komist á aktu taktu?

Finnst þér það líklegt?

Re: Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 18:32
af olafurfo
Bara að forvitnast, náði fólk á tíma að selja þetta á 30-40 þúsund krónur ?

Re: Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 18:39
af Viktor
GuðjónR skrifaði: þá geturðu fengið þér samloku og kók á Aktu Taktu.


Eru þeir búnir að lækka verðin hjá sér? Hélt að svona kostaði hátt í 1500 kr.

Re: Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 18:50
af GuðjónR
Sallarólegur skrifaði:
GuðjónR skrifaði: þá geturðu fengið þér samloku og kók á Aktu Taktu.


Eru þeir búnir að lækka verðin hjá sér? Hélt að svona kostaði hátt í 1500 kr.


499. kr tilboð.

Re: Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 18:52
af Moldvarpan
Það mesta sem ég fékk fyrir 31.8 aur, var 26.500 inn komið á bankareikning.

Svo voru hinar sölurnar eh lægri, eh um 21.000 komið á reikning.


Mér fannst þetta fínt, frír peningur, svo núna er ég alveg hættur að fylgjast nokkuð með þessu :)

Re: Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 19:58
af mundivalur
Mér finnst ekkert að því að borga 1500-2000kr fyrir 31.8aur það tekur bara tíma að græða eitthvað á því 1-30dagar en það þarf að fylgjast með poloniex og mintpal á hverju kvöldi og þá er hægt að fá 10þ+-

Re: Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 20:42
af HarriOrri
olafurfo skrifaði:Bara að forvitnast, náði fólk á tíma að selja þetta á 30-40 þúsund krónur ?


Ég náði að losa mig við 7 skammta á 30-40k hvern

Re: Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 22:59
af gorkur
mundivalur skrifaði:Mér finnst ekkert að því að borga 1500-2000kr fyrir 31.8aur það tekur bara tíma að græða eitthvað á því 1-30dagar en það þarf að fylgjast með poloniex og mintpal á hverju kvöldi og þá er hægt að fá 10þ+-


Polo virðist vera dautt :dontpressthatbutton

Re: Er einhver að kaupa aura ennþá?

Sent: Fös 02. Maí 2014 23:27
af mundivalur
Það er niðri eins og er það er eitthvað mikið hacking í gangi :thumbsd