Síða 1 af 3

Besta Star Trek Series

Sent: Mið 30. Apr 2014 19:43
af svanur08
Hvað finnst ykkur besta Star Trek-ið þeir sem hafa séð allt þar að seigja, ég er bara búinn að horfa á The Original Series en ætla taka maraþon á allt. :happy

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Mið 30. Apr 2014 19:52
af GuðjónR
Ég var að klára allar seríurnar 7 af Deep Space Nine ... mjög gott stuff!
Í minningunni er Voyager samt best, merki við það núna en á eftir að horfa á þetta allt aftur.

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Mið 30. Apr 2014 19:56
af svanur08
Ég er orðinn hooked strax á Original Series :megasmile

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Mið 30. Apr 2014 20:09
af GuðjónR
svanur08 skrifaði:Ég er orðinn hooked strax á Original Series :megasmile

Það er það eina sem ég á eftir að sjá af þessu öllu saman, held að þetta sé allt saman á NetFlix.

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Mið 30. Apr 2014 20:16
af Hrotti
ég hef aldrei horft á neitt af þessu, hvar er best að byrja?

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Mið 30. Apr 2014 20:18
af svanur08
Hrotti skrifaði:ég hef aldrei horft á neitt af þessu, hvar er best að byrja?


Frá byrjun eins og ég :D

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Mið 30. Apr 2014 20:30
af HalistaX
svanur08 skrifaði:
Hrotti skrifaði:ég hef aldrei horft á neitt af þessu, hvar er best að byrja?


Frá byrjun eins og ég :D

Í þessari röð semsagt?
Star Trek: The Original Series
Star Trek: The Next Generation
Star Trek: Deep Space Nine
Star Trek: Voyager
Star Trek: Enterprise

Hef aldrei horft á þetta, fyrir utan örfáar mínútur af einhverju þegar það var sýnt á Rúv í gamla daga. Mikið að pæla í að henda þessu í tækið einhvern daginn..

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Mið 30. Apr 2014 20:57
af gorkur
Bara muna að TOS var sýnt 1966 og hefur elst... tjah.. :P

Annars er TNG alltaf í uppáhaldi hjá mér en þetta er allt gott stuff

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Mið 30. Apr 2014 21:01
af Stuffz
mar búinn að horfa á allt 2x sinnum fyrir utan í sjónvarpinu í gamla daga.

ekki samt í HD :P

TNG er best, TOS er gamalt og meira hallærislegt í dag, og hitt yngra efnið of mikið verið að reyna að höfða til breiðari áhorfendahóps *hóst* kvenfólks *hóst* með kaptain Janeway (sem getur allt best) og Cisco ~Emmesary bull og þannig fjarlægjast harða kjarnann DS9 var gott til að byrja með en svo silgdi þetta samsíða VOY og verður eitthvað ofnotað VTD* þunnildi sem svo blæðir svo endanlega út í ENT, já og svo eitthverjum árum seinna þá fá þeir hugmynd að defæla startrek og rugla öllu Roddenberrys systeminu með að láta Kirk og Spock hafa hist fyrr í startrek myndinni þarna 2009 og svo þessi síðast startrek mynd þar sem þeir hitta Khan líka miklu fyrr, maður fær kjánahroll af þessu eins og þegar maður sá Young Indiana Jones, X-men First Class o.s.f. ódýrar bakdyralausnir seinnitíma sjónvarpsefnisgerðarmanna sem hafa ekki 1 frumlega hugmynd í öllum sínum skrokki, hvaða startrek mynd æla þeir útúr sér næst, Startrek: Teen Kirk vs The Zombies from outer space, þ.e.a.s "Kirk og Uppvakningarnir", kannski Ný Dönsk geti séð um tónlistarhliðina https://soundcloud.com/jon-olafsson/n-d ... pvakningar :pjuke

Mynd
*Vælu og Tilfinninga DRAMA

HalistaX skrifaði:
svanur08 skrifaði:
Hrotti skrifaði:ég hef aldrei horft á neitt af þessu, hvar er best að byrja?


Frá byrjun eins og ég :D

Í þessari röð semsagt?
Star Trek: The Original Series
Star Trek: The Next Generation
Star Trek: Deep Space Nine
Star Trek: Voyager
Star Trek: Enterprise

Hef aldrei horft á þetta, fyrir utan örfáar mínútur af einhverju þegar það var sýnt á Rúv í gamla daga. Mikið að pæla í að henda þessu í tækið einhvern daginn..


Gleymdir einni.. TAS https://en.wikipedia.org/wiki/Star_Trek ... ted_Series
Mynd

Star Trek: The Original Series
Star Trek: The Animated Series
Star Trek: The Next Generation
Star Trek: Deep Space Nine
Star Trek: Voyager
Star Trek: Enterprise



E.S. hérna er svo eitthver tilraun til að halda áfram með TOS þættina á kickstarter fyrir þá sem hafa áhuga https://www.kickstarter.com/projects/12 ... -webseries

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Mið 30. Apr 2014 22:02
af capteinninn
Ég hef aldrei klárað alveg alla TNG en ég elska þá.

Byrjaði svo á Deep Space Nine en fór ekki lengra en þátt 3 eða eitthvað, eru þeir mjög góðir eða ?

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Fim 01. Maí 2014 00:53
af rapport
Ég byrjaði 1.jan 2013 á TNG 1:1 og kláraði það, DS9 og Voyager núna í lok mars... = c.a. 3x26x7 = 546 þættir...

DS9 eru klárlega bestir + ég elska þetta lag...



Man eftir að hafa lamið bróðir minn tímanlega c.a. kl. 18:56 - 18:59 as clockwork alla sunnudaga svo hann mundi vera vælandi inní herbergi en hvergi nálægt mér kl.19 þegar þátturinn byrjaði...

Nú fær maður smá samviskubit + hann orðinn stærri og sterkari en ég... :guy

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Fim 01. Maí 2014 01:14
af Hvati
Mín röð lítur svona út:
TNG
TOS
DS9
TAS
VOY
ENT

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Fim 01. Maí 2014 03:10
af appel
Star Trek er gott stuff, hef horft á allar seríurnar.

1. Ég kaus TNG sem bestu af nokkrum ástæðum:
- Picard er einfaldlega besti kapteinnin
- Flottasta geimskipið
- Skemmtilegir karakterar, Data, Worf o.s.frv. (að undanskildum Wesley Crusher!!)
- Þættirnir eru ekta Gene Roddenberry, þeir fjalla um siðferðisleg málefni, hvað er rétt og rangt, reflekta á fáránleika okkar veruleika
- Þættirnir að mestu stakir, standalone saga í hverjum þætti, maður þarf ekki að vera búinn að horfa á allt saman til að vita hvar maður er staddur
- Q


2. DS9 er næstbestur
- Góð heildarsaga
- Góð karakter-þróun
- Mikið um action, geim-bardaga og svona
- Sýnir meira frá "federation" geim-svæðinu, þ.e. Kardassians, Romulans, Klingons o.s.frv. Þetta er Star Trek orgía.
- Garak
- Worf

3. VOY er þriðjibestur.
- Kósí þættir, eitthvað sem maður ímyndar sér að horfa á í flensu með kakó-bolla í hönd. Karakterarnir eru svolitlir ömmustrákar. Janeway er eitthvað svo móðurleg og hlý :)
- Borg
- Seven of Nine
- Annars bara ágætt Star Trek.

4. TOS fjórðibesti
- Sá þá einu sinni, það var nóg. Eru einfaldlega orðnir of gamlir.
- Fínar siðferðislegar ádeilur og spurningar í þáttunum.
- Spock.

5. ENT er ... verstur
- Ég hataði ENT, fílaði þá ekki neitt. Eina sæmilega í þeim var held ég... æi nei mér dettur ekkert í hug.. jú T'pol var flott, en léleg leikkona. Langdregnir geimþættir þegar þú ert ekki með transportera :) þeir reyndar gáfust upp á því að láta þá alltaf fara í skutlum og byrjuðu að nota transporterana í síðasta seasoni.
- Ekki mjög Star Trek-legir þættir, mjög heiladauðir þættir, bara tilgangslaust þvaður og heimskur söguþráður.

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Fim 01. Maí 2014 15:01
af hfwf
Ef ég á að þröngva mér í að segja hver er best, þá veðrur það að vera VOY, því miður fyrir TNG, en mér finnst samt TNG langbesta serían , útaf picard , data og riker, eina sem VOY hefur er janeway og paris, tuvok er fínn, en annars heilt í allt þá er VOY, en ég horfi mun meira á TNG , er t.d að endurhorfa á TNG í líklega 10 skiptið í dag, ekki gert það nema við VOY í 2-3 skipti. TNG er með betri sögur, en VOY meira action, DS9 hinsvegar er með bæði , en er short 3rd í dæminu. SKammast mín klárlega að hafa ekki horft á TOS ennþá.

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Lau 10. Maí 2014 04:27
af svanur08
Ágætt að henda þessu inn á okkur star trek nördana Jim Carrey að ná þessu vel fyrst Original: http://www.youtube.com/watch?v=AphxyjrH4SE

svo hann að herma eftir þessu: http://www.youtube.com/watch?v=nX3KsHDZ1sE

svo er þetta líka gott, hann nær James T Kirk fáranlega vel: http://www.youtube.com/watch?v=52o1d7XPni0

:happy

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Fös 15. Ágú 2014 20:58
af svanur08
Búinn með Next gereration þvílík snilld þessi þættir, næst deep space nine :happy

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Fös 15. Ágú 2014 23:13
af ZiRiuS
appel skrifaði:5. ENT er ... verstur
- Ég hataði ENT, fílaði þá ekki neitt. Eina sæmilega í þeim var held ég... æi nei mér dettur ekkert í hug.. jú T'pol var flott, en léleg leikkona. Langdregnir geimþættir þegar þú ert ekki með transportera :) þeir reyndar gáfust upp á því að láta þá alltaf fara í skutlum og byrjuðu að nota transporterana í síðasta seasoni.
- Ekki mjög Star Trek-legir þættir, mjög heiladauðir þættir, bara tilgangslaust þvaður og heimskur söguþráður.


Common, Scott Bakula er æðislegur leikari (dýrkaði hann í Quantum Leap, mæli með þeim þáttum).

Ef þetta er ekki svalasta ræða í heimi að þá veit ég ekki hvað!

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Lau 16. Ágú 2014 11:46
af JohnnyRingo
Hrotti skrifaði:ég hef aldrei horft á neitt af þessu, hvar er best að byrja?


The "correct" order.
TOS → TAS → Films (1-6) → TNG → Generations (Film #7) → DS9 → VOY → Films 8-10 → ENT → Films 11-12

http://www.reddit.com/r/startrek/wiki/where_should_i_start

Sjálfur er ég nýbúinn að klára TOS og mér finnst þeir alveg fín skemmtun, sumt er bara hlæginlegt útaf aldri en mér fannst þetta bara fínt.
Er að klára myndirnar (1-6) núna og svo fara byrja á TNG.

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Lau 16. Ágú 2014 14:48
af hfwf
JohnnyRingo skrifaði:
Hrotti skrifaði:ég hef aldrei horft á neitt af þessu, hvar er best að byrja?


The "correct" order.
TOS → TAS → Films (1-6) → TNG → Generations (Film #7) → DS9 → VOY → Films 8-10 → ENT → Films 11-12

http://www.reddit.com/r/startrek/wiki/where_should_i_start

Sjálfur er ég nýbúinn að klára TOS og mér finnst þeir alveg fín skemmtun, sumt er bara hlæginlegt útaf aldri en mér fannst þetta bara fínt.
Er að klára myndirnar (1-6) núna og svo fara byrja á TNG.


x1 , á alltaf eftir að sjá meirihlutan af TOS og TAS, restina er maður ´bunað horfa á few times fyrir utan ent og nýjustu ST.

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Fös 31. Okt 2014 12:05
af svanur08
Er á 3 seríu núna á Deep space nine, vá hvað þessir þættir koma á óvart mjög góðir! :happy

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Fös 31. Okt 2014 19:10
af dabb
svanur08 skrifaði:Er á 3 seríu núna á Deep space nine, vá hvað þessir þættir koma á óvart mjög góðir! :happy


Þeir verða ennþá betri því lengra sem þú ert kominn í DS9. :happy

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Fös 31. Okt 2014 22:55
af jonsig
Svo skrítið hvað ég hataði ST í den , svo núna gjörsamlega elska ég þá !

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Fös 31. Okt 2014 23:57
af HalistaX
Hvernig eru þessir þættir að eldast?

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Lau 01. Nóv 2014 00:53
af Bjosep
Æi þarna gaurinn á undan mér skrifaði:Hvernig eru þessir þættir að eldast?


Ég held að ég geti með fullri virðingu sagt að TOS eldist frekar illa, maður fær á tilfinninguna að áhöfnin sé að vinna með örbylgjuofna. En það ber að hafa í huga að þetta eru hvað 50 ára gamlir þættir og þú verður því að horfa á þá með því hugarfari ef þú vilt gerast star trek njörður.

Ég ætla að leyfa mér að segja að bæði DS9 og Voyager eldist tiltölulega vel. Tæknin lítur framtíðarlega út. Ég horfði síðast á DS9 fyrir nokkrum árum og þessir þættir eru nokkuð traustir með þetta að gera. Voyager hóf göngu sína á svipuðum tíma og ætti því alla jafna að eldast samkvæmt því. Ég hef reyndar ekki séð Voyager síðan þeir voru á RÚV á sínum tíma.

Ég get ekki tjáð mig um The next generation en ég hef ekki heyrt nokkurn einasta mann segja slæman hlut um þá þætti þannig að þeir þjást væntanlega ekki af slæmri elli.

Enterprise ... jahh þeir hófu göngu sína árið 2001 þannig að ellimerkin á þeim eru engin.

Allavega held ég að það eina sem hefur ekki elst vel sé TOS og TAS.

Re: Besta Star Trek Series

Sent: Lau 01. Nóv 2014 03:02
af capteinninn
Ég er búinn að vera að fara í gegnum DS9 og ég fíla það mjög vel en að mínu mati eru TNG langbestu þættirnir. Svo mikið af social commentary sem ég hef ekki ennþá séð í öðrum seríum af Trek. Þeir eru stundum smá dated en hugmyndirnar sem koma fram í þáttunum eldast alltaf vel. Finnst það einmitt alltaf svo skemmtilegt að sjá þessar grunnhugmyndir um mannlegt eðli ræddar í þáttunum því að sci-fi hentar svo vel að fá umræður um það án þess að draga allar þessar fyrirframkomnu hugmyndir um hvað er rétt og rangt inn í það.

Ég er samt ennþá í fyrstu seríu af DS9 þannig að kannski á ég bara eftir alla góðu þættina.