Síða 1 af 1
Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fim 24. Apr 2014 19:56
af 121310
Hef oft lent í að siðan loki á mig en ég held samt að ég hafi ekki lent i því áður að hún fatti að ég se að nota proxi. Eru aðrir að lenda í þessu líka eða er þetta bara timabundið?
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fim 24. Apr 2014 20:06
af Stuffz
Vá!
og hvað átti þetta að endast nákvæmlega lengi, skv formúlinni?
E.S. Hvernig er það á Vodaphone Tal?
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fim 24. Apr 2014 20:07
af CendenZ
Eruði að nota þetta forreal
Ég nennessu veseni ekki, miklu einfaldara að downloada á eztv og horfa í TV-inu.
Þessir höfundaréttardoods eru svo löngu löngu búnir að tapa þessari baráttu að það er hlægilegt
ps. pottþétt einhver innlendur hagsmunaaðili sem hefur kvartað undan þessu til Hulu
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fim 24. Apr 2014 20:46
af blitz
Sama vesen hér.
Ég sendi tölvupóst á Tal útaf þessu, sjáum hvort að þeir svari.
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fim 24. Apr 2014 20:50
af worghal
mikið einfaldara að streama bara á tv-ið úr tölvunni en að fara í gegnum netflix eða hulu
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fim 24. Apr 2014 22:16
af CendenZ
worghal skrifaði:mikið einfaldara að streama bara á tv-ið úr tölvunni en að fara í gegnum netflix eða hulu
Þetta er laukrétt, það er mikið auðveldara að setja upp plex server á gamla vél og downloada gegnum web-guið í torrentclientinum.
Tengir svo smartsjónvarpið þitt beint á plex eða með topboxi sem fást fyrir slikk.
Svo bara ná í nýjasta þáttinn á meðan poppið poppar, það tekur 3 mín, allt klárt svo..
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fim 24. Apr 2014 23:11
af Minuz1
ef þú ert að horfa á þetta í tölvuskjá þá getur þú notað chrome addonið "hola" sem er með svona vpn þjónustu, var að nota þetta á netflix, mjög sniðugt, virkar líka á síma.
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fim 24. Apr 2014 23:36
af Garri
En kemur samt sem erlent niðurhal, ekki satt?
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fös 25. Apr 2014 01:12
af Minuz1
Garri skrifaði:En kemur samt sem erlent niðurhal, ekki satt?
Örugglega, er hjá hringdu, hef ekki áhyggjur af utanlandstraffík.
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fös 25. Apr 2014 02:02
af AntiTrust
Kemur líka hjá mér með MediaHint og með því að nota Unotelly DNS. En svo lengi sem þetta kemur ekki Netflix og Amazon Prime er mér sama, fyrir það litla sem ég nota það í.
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fös 25. Apr 2014 13:04
af Vaktari
Hulu er víst mjög duglegt í því að vera alltaf að gera einhverjar breytingar hjá sér.
Þetta er víst allt komið í skoðun hjá Tal.
Vonandi að þetta detti bara í gagnið sem fyrst.
Vodafone á ekki Tal.
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Lau 26. Apr 2014 22:58
af CendenZ
http://www.pcmag.com/article2/0,2817,2457170,00.aspHulu Begins to Block VPNs from Accessing Streaming Content
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Sun 27. Apr 2014 00:12
af Stuffz
Vaktari skrifaði:Hulu er víst mjög duglegt í því að vera alltaf að gera einhverjar breytingar hjá sér.
Þetta er víst allt komið í skoðun hjá Tal.
Vonandi að þetta detti bara í gagnið sem fyrst.
Vodafone á ekki Tal.
Já alveg rétt
Vodafone reyndi að taka Tal yfir 2011 en samkeppniseftirlitið leyfði það víst ekki.
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Þri 29. Apr 2014 12:10
af Plushy
Þjónustan fyrir Hulu á Lúxusnetinu ætti að vera orðin virk
Látiði endilega vita ef það koma upp fleiri vandamál.
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Þri 29. Apr 2014 15:16
af 121310
Komið
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fim 01. Maí 2014 20:43
af blitz
Núna virkar Netflix ekki en Hulu gerir það þó...
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fim 01. Maí 2014 22:49
af Vaktari
Netflix virkar fínt hjá mér á lúxusnetinu.
Búinn að endurræsa öllum netbúnaði og athuga hvort það geri eitthvað?
Ef vandamálið er til staðar ennþá þar að segja.
Re: Er lúxusnetið hjá tal.is búið að vera?
Sent: Fim 01. Maí 2014 22:53
af Plushy
blitz skrifaði:Núna virkar Netflix ekki en Hulu gerir það þó...
Spurning líka hvort þú sért að nota í gegnum Roku, Apple TV eða tölvu og hvort þetta sé þá að gerast á öllum tækjum heimilisins?