Síða 1 af 3

Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 01:33
af Hrotti
Ég hef engann áhuga á að byrja einhverjar þrætur um þetta, heldur er ég einfaldlega forvitinn um hvernig þetta skiptist á svona spjallborði.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 03:52
af Nördaklessa
ég er ekki trúaður maður, en er ekki þessi óþolandi atheist með sinn boðskap, ef trúarbrögð hjálpar fólki í gegnum daginn þá er það gott að blessað mín vegna

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 08:36
af KermitTheFrog
Nördaklessa skrifaði:ég er ekki trúaður maður, en er ekki þessi óþolandi atheist með sinn boðskap, ef trúarbrögð hjálpar fólki í gegnum daginn þá er það gott að blessað mín vegna

Jaja svo lengi sem það er í hófi. Ef fólk neitar barninu sínu um lífsnauðsynleg lyf og treystir því að maðurinn í skýinu lækni það finnst mér það ekki vera "gott og blessað".

En ég er eins og þú. Ég er trúlaus en tréð því ekki ofan í kjaftinn á hverjum sem er það ekki.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 08:52
af Viktor
Allt er best í hófi. Er ekki trúaður en hef ekkert á móti trú.

Var þó að vinna á Landspítalanum, en þar getur maður séð skuggahliðar trúar. Til dæmis var ein stúlka sem missti mikið blóð, en það þurfti að svipta hana sjálfræði til þess að gefa henni blóð, vegna hennar trúar. Það var ekki gert, en í stað þess var henni gefin einhver dýrustu lyf sem finnast á þessu landi, til þess að hjálpa henni að byggja upp blóðforðan. Minnir að hver tafla hafi kostað um 60 þúsund krónur, og að hún hafi fengið fleiri en eina á dag.

Einnig er oft erfitt fyrir geðlækna að greina á milli hvort fólk sé mjög trúað eða í geðrofi(psychosis).

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 09:06
af Stutturdreki
Alltaf þegar það er talað um að trúlausir séu svo öfgafullir, troðandi sínum óþolandi boðskap ofan í aðra og almennt dónalegir þá þarf að hafa þessa mynd í huga og sögulegu samhengi.

Mynd

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 11:38
af AciD_RaiN
Það er nú alveg hægt að trúa án þess að þurfa að stunda trúarbrögð eða tilbiðja ímyndaða dyrakarma...
Auðvitað hafa allir rétt á sínum skoðunum og trúm en ég hefði nú haldið að lang stæðsti hópurinn hérna inni séu rökhugsunarmenn sem horfa í staðreyndir...

Mín SKOÐUN og trú er sú að þetta sé meira spurning um að vera ekki æðsta afl alheimssins. Eitthvað sem er meira en ég, orkan sem knýr þetta alheimsbatterý og lætur það funkera á þann hátt sem það gerir og svo er bara spurning um að reyna að koma sem mestri jákvæðri orku frá sér til að getað fengið jákvætt til baka. Karma er bæði í Hindúisma og Búddisma, svo Biblían: Luke 6:31 Do to others as you would have them do to you.

Við höfum lang mestu stjórnina í okkar lífum en það er til afl sem er meira en við... Þetta er svona eitthvað sem mér gæti funndist meika einhvern sense af þessu öllu og sé ekki tilgang í að stunda eitthvað trúarbragð þegar manni hentar sem endar svo í blóðbaði annaðhvort af beinum völdum mismunandi trúarbragða eða ríkisstjórnarinnar sem reynir að láta það allavegana líta soldið þannig út :P

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 11:52
af Moldvarpan
Skemmtileg pæling.

Fannst skemmtilegt hvernig þetta var sett upp í þætti í nýjum þætti Through the wormhole, Is God an Alien Concept?
Hægt að horfa á hann hér; http://www.dailymotion.com/video/x1hexc7_is-god-an-alien-concept_shortfilms

Þetta hjálpar sumu fólki að trúa því að allt sé ekki á þeirra herðum, heldur en að það sé eitthver drottnari eða guð, sem stjórnar alheiminum og þetta sé hans áætlun.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 12:08
af appel
Að "trúa" á eitthvað einsog "Guð" finnst mér bara ekki vera gáfulegt. Það er til margt sem hjálpar fólki en er ekki gáfulegt.

Þetta concept er bara ekki til í huga mínum, að trúa á eitthvað fyrirbæri. Ég gæti alveg eins ímyndað mér að dýrka snjókall eða tilbiðja fiskinn í sjónum, þetta er bara eitthvað þrugl í hausnum á fólki sem það bítur í sig sem voðalega mikilvægt.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 15:37
af Skippó
Er ekki trúaður en fólk má alveg hafa sín trú útaf fyrir sig og svo lengi sem að það er ekki að koma henni yfir á mig. Ég virði trúskap og boðskap annarra fólks.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 15:52
af SIKk
Skippó skrifaði:Er ekki trúaður en fólk má alveg hafa sín trú útaf fyrir sig og svo lengi sem að það er ekki að koma henni yfir á mig. Ég virði trúskap og boðskap annarra fólks.

Þetta. Svona eiga allir að hugsa :happy

Ég er ótrúaður en það má samt margar lífsreglur temja sér úr trúm, td. það sem kom hér að ofan
AciD_RaiN skrifaði: Luke 6:31 Do to others as you would have them do to you.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 16:22
af Stutturdreki
zjuver skrifaði:
Skippó skrifaði:Er ekki trúaður en fólk má alveg hafa sín trú útaf fyrir sig og svo lengi sem að það er ekki að koma henni yfir á mig. Ég virði trúskap og boðskap annarra fólks.

Þetta. Svona eiga allir að hugsa :happy

Eh.. akkuru? Hvað er svona æðislegt við að umbera allt það slæma sem fylgir flestum trúarbrögðum? Trúarleg meðvirkni er það allra versta sem komið hefur fyrir mannkyn.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 17:42
af SIKk
Stutturdreki skrifaði:
zjuver skrifaði:
Skippó skrifaði:Er ekki trúaður en fólk má alveg hafa sín trú útaf fyrir sig og svo lengi sem að það er ekki að koma henni yfir á mig. Ég virði trúskap og boðskap annarra fólks.

Þetta. Svona eiga allir að hugsa :happy

Eh.. akkuru? Hvað er svona æðislegt við að umbera allt það slæma sem fylgir flestum trúarbrögðum? Trúarleg meðvirkni er það allra versta sem komið hefur fyrir mannkyn.

Fólk hefur bara alveg fullan rétt á að trúa því sem það trúir og hafa það útaf fyrir sig?

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 17:51
af KermitTheFrog
Eg skil það að fólk hafi trúað á guð fyrir 2000 árum. Þá var mjög hentugt að útskýra allt hið óútskýranlega með því. Kannski er ég bara þröngsýnn, en ég skil ekki hvernig trúin er ennþá svona sterk í dag. Auðvitað fjölgar stöðugt í hópi trúleysingja, en mér finnst þetta stórmerkilegt.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 18:18
af AntiTrust
KermitTheFrog skrifaði:Eg skil það að fólk hafi trúað á guð fyrir 2000 árum. Þá var mjög hentugt að útskýra allt hið óútskýranlega með því. Kannski er ég bara þröngsýnn, en ég skil ekki hvernig trúin er ennþá svona sterk í dag. Auðvitað fjölgar stöðugt í hópi trúleysingja, en mér finnst þetta stórmerkilegt.

Ekki þröngsýni, bara mjög rökræn hugsun. Trúað fólk er hinsvegar þröngsýnt. Ég ber enga virðingu fyrir trúuðu fólki, ólíkt sumum umburðarlyndari einstaklingum hér. Horfi á mörg, ef ekki flest trúarbrögð sem eina stærstu plágu mannkynsins í dag, og trúað fólk er rótin að vandamálinu.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 18:41
af tveirmetrar
AntiTrust skrifaði:

heyr heyr

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 18:56
af Yawnk
tveirmetrar skrifaði:

double heyr heyr

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 19:01
af MrSparklez
Yawnk skrifaði:

triple heyr heyr

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 19:02
af Hrotti
Ég verð alltaf mjög hissa þegar að einhver segist vera trúaður, sérstaklega ef að fólk er tiltölulega ungt. Mér finnst það svipað og að einhver fullorðinn segðist trúa á jólasveininn.

Ég lenti samt í vandræðum með að svara könnunni þó að ég hafi búið hana til ](*,) Ég hef nefnilega í raun enga óbeit á trú sem slíkri þó að ég fyrirlíti truarbrögð.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 20:07
af HalistaX
Veit samt einhver hver munurinn er á trú og sértrúar söfnuði(cult)?
Sértrúar safnaðir fá alltaf svo mikið nigg á meðan kristnitrúin fær að vera í friði, as twisted and uncivilized as she is.
Ég trúi á rökhugsun og vísindi en virði samt alla aðra trú, svo lengi sem hún er ekki ''excessive''..

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 21:18
af Hrotti
HalistaX skrifaði:Veit samt einhver hver munurinn er á trú og sértrúar söfnuði(cult)?
Sértrúar safnaðir fá alltaf svo mikið nigg á meðan kristnitrúin fær að vera í friði, as twisted and uncivilized as she is.
Ég trúi á rökhugsun og vísindi en virði samt alla aðra trú, svo lengi sem hún er ekki ''excessive''..

Trú er allt annað en trúarbrögð. Trúarbrögð eru t.d. kristni,islam og gyðingdómur, fólk getur síðan haft allskonar trú an þess að tilheyra einhverjum trúarbrögðum.

Cult þýðir bara að söfnuðurinn sé frábrugðinn norminu, eða með "nýstárlegar"/óvenjulegar hugmyndir um átrúnað.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 21:27
af appel
Hrotti skrifaði:
HalistaX skrifaði:Veit samt einhver hver munurinn er á trú og sértrúar söfnuði(cult)?
Sértrúar safnaðir fá alltaf svo mikið nigg á meðan kristnitrúin fær að vera í friði, as twisted and uncivilized as she is.
Ég trúi á rökhugsun og vísindi en virði samt alla aðra trú, svo lengi sem hún er ekki ''excessive''..

Trú er allt annað en trúarbrögð. Trúarbrögð eru t.d. kristni,islam og gyðingdómur, fólk getur síðan haft allskonar trú an þess að tilheyra einhverjum trúarbrögðum.

Æi, þetta er það sama.

Fólk sem segist "trúað" er bara að segja það af því að það vill ekki vera böggað af fólki sem tilheyrir trúarbrögðum eða að það er ekki búið að viðurkenna fyrir sjálfu sér að það er bara ekki trúað.

Að trúa á eitthvað? Ég trúi ekki á neitt. Ég er "absence of religion". Ég tel að við séum bara efni, efnahvörf, orka, séum sköpun alheimsins og tilheyrum alheiminum og náttúrunni. Þetta er ekki "trú", þetta er bara svona. Þegar fólk er jarðsett er sagt "Af jörðu ertu kominn, Að jörðu skaltu aftur verða. Af jörðu munt þú aftur upp rísa". Eitthvað er til í því, en hvort við rísum aftur, jú kannski, en ekki sem við sjálf, heldur munu aðrar lífverur fá að láni okkar efni.

Trúarbrögð hafa byggt á þessari grundvallarþekkingu mannsins, en tekið hana og snúið út úr með allskyns þvælu um yfirnáttúrulega hluti, Guði og skilaboðasveina hans.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 21:54
af Hrotti
appel skrifaði:

Munurinn á trú og trúarbrögðum er svipaður og munurinn á því að hafa skoðanir og prinsip þegar að kemur að pólitík og því að tilheyra stjórnmálaflokk.

Að öðru leiti hef ég mjög svipaðar skoðanir á þessu og þú.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 22:00
af beatmaster
Mynd

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 22:03
af Orri
Í hefðbundnum skilningi myndi ég ekki flokka sjálfan mig sem trúaðan einstakling.

En ég trúi því ekki að heimurinn sé bara tilviljun.
Ég trúi því að eitthvað/einhver sé á bakvið sköpun heimsins og ástæðu þess sem heimurinn í dag er það sem hann er.
Að mínu mati eru allt of mikið af ótrúlegum smáatriðum í okkur mannverunni, öðrum dýrum, náttúrunni, þróuninni frá upphafi sem og tilverunni í heild sinni til að þetta sé tilviljun ein og sér og að heimurinn sé bara einhver ótrúleg afleiðing sprengingar.

Hvort Guð, Jesú, Búdda, Allah, Óðinn eða geimverur sé á bakvið þetta allt saman hef ég ekki hugmynd, en ég trúi þessu.

Re: Hversu margir eru trúaðir hérna?

Sent: Þri 15. Apr 2014 22:26
af Stutturdreki
Íslendingar eru einmitt svoldið svoleiðis.. trúa á 'eitthvað gott' eða álíka en ef þeir settust niður og virkilega spáðu í því þá ættu þeir enga samleið með kristni þrátt fyrir að ~75% af þjóðinni sé skráð í ríkiskirkjuna.

Td. í tilefni páskana, helgustu hátið kristinna, þá þarf fólk virkilega að trúa og samþykkja það að Jesu Kr. Jósefsson hafi risið upp frá dauðum, labbað um í þrjá daga og svo stigið upp til himna. Ef þú samþykkir það ekki þá ertu ekki kristinn.