Síða 1 af 1

Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 18:11
af GuðjónR
Allt í einu kom í status að ég væri búinn selja 3.18 AUR, þ.e. kom debet færsla.
Hvernig getur það gerst? Ég hef ekki selt neitt. Klukkutíma eftir að ég keypti síðustu 31.8 þá gerist þetta.

Veskið er læst og encrypted, hvernig getur þetta gerst??

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 18:13
af worghal
Liklegast nadist ekki ad confirma thessa coins?

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 18:16
af GuðjónR
Það kom bara debet færsla ... enginn viðtakandi tilgreindur enda var ég ekki að senda á neinn.
Ekki traustvekjandi.

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 18:30
af GuðjónR
Þetta virðist vera paperwallet sem ég keypti af Hnykill hérna á vaktinni.

Þetta virðist vera adressan sem AURINN minn er að fara á:

AYXFyZbiMGmGWZWkan8rKic5sYetcdJr9b

Er einhver hérna á Vaktinni með þessa adressu?

Ef hann hefur óvart látið fleiri en enn hafa sama PRIVATE key getur þetta þá gerst?

http://blockexplorer.auroracoin.eu/addr ... sYetcdJr9b

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 18:33
af Hnykill
bíddu nú við.. ég var að selja strák áðan 2 skammta.. ekki gat ég selt þinn líka ???


viewtopic.php?f=86&t=60336

talaðu við þennann... ég var að selja honum .. skil samt ekki hvernig þetta gæti hafa gerst :klessa

lét bara þig hafa þennan key..

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 18:37
af GuðjónR
Hnykill skrifaði:bíddu nú við.. ég var að selja strák áðan 2 skammta.. ekki gat ég selt þinn líka ???


viewtopic.php?f=86&t=60336

talaðu við þennann... ég var að selja honum .. skil samt ekki hvernig þetta gæti hafa gerst :klessa

lét bara þig hafa þennan key..


Einhvernvegin gat það gerst, AURinn fór úr veskinu mínu.
Þú hefur látið hann hafa sama private key og þú lést mig hafa.

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 18:37
af Hnykill
AYXFyZbiMGmGWZWkan8rKic5sYetcdJr9b


það er hann :-k ...skil samt ekki hvernig ég fór að þessu ??? hann verður þá bara að senda 31.8 aftur á þig og greiðir mér þá bara fyrir það sem átti að fara... er það ekki bara málið ?

ég notaði bara veskið sem ég er að nota.. var að setja inn nýjan lykil áðan.. biðst afsökunar á þessu :Þ ...ætlaði ekki að vera svindla á neinum sko.

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 18:41
af GuðjónR
Hnykill skrifaði:AYXFyZbiMGmGWZWkan8rKic5sYetcdJr9b


það er hann :-k ...skil samt ekki hvernig ég fór að þessu ??? hann verður þá bara að senda 31.8 aftur á þig og greiðir mér þá bara fyrir það sem átti að fara... er það ekki bara málið ?

ég notaði bara veskið sem ég er að nota.. var að setja inn nýjan lykil áðan.. biðst afsökunar á þessu :Þ ...ætlaði ekki að vera svindla á neinum sko.


Hérna sést færslan á pappírsveskinu sem ég keypti af þér fyrir tveim dögum, og svo færslan út úr veskinu áðan:
http://blockexplorer.auroracoin.eu/addr ... Nc5M6gZq1g

Þú verður bara að millifæra á mig peningnum sem ég borgaði þér, fyrst það er hægt að selja mörgum sama private keyinn.
Eða sá sem seldir að millifæra AURana aftur á mig og þú þá að endurgreiða honum.

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 19:00
af Hnykill
búið að laga þetta. :face

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 19:03
af GuðjónR
Hnykill skrifaði:búið að laga þetta. :face

Takk fyrir skjót viðbrögð.
Þetta var ágæt lexía, pappírsveski virðast eitthvað dúbíus :)

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 19:11
af Hnykill
greinilega :klessa

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 19:37
af KermitTheFrog
Er það bara ég eða er private key ekki bara fyrir þig? Þú átt ekki að láta neinn fá private key-inn þinn.

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 19:40
af Hnykill
Guðjón fékk hann frá mér og importaði í veski... en seinna þegar ég færði úr veskinu frá mér með öðrum lykli, þá hvarf hans ! ..þessvegna skil ég ekki hvernig þetta gat gerst ??

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 20:00
af KermitTheFrog
Er ekki sniðugra að seljandi leggi bara inn á public address hjá kaupanda?

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 20:43
af hdpolarbear
ef maður er með encryptað veski...hvað þýðir það :) ég hef aldrei verið beðinn um pw sem ég setti inn....er það bara þegar maður sendir AUR annað eða?

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 20:48
af HalistaX
hdpolarbear skrifaði:ef maður er með encryptað veski...hvað þýðir það :) ég hef aldrei verið beðinn um pw sem ég setti inn....er það bara þegar maður sendir AUR annað eða?

Bara þegar þú sendir, þá ertu beðinn um pw

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Sun 30. Mar 2014 20:48
af hdpolarbear
ah k , hélt það væri eitthvað þannig. Takk fyrir svarið

Re: Getur AUR farið sjálfkrafa úr veski?

Sent: Mán 31. Mar 2014 00:50
af HarriOrri
Ef þú færð paper wallet, alltaf færðu auranna úr því yfir á þitt eigið einka myntfang, þú veist aldrei hvort aðilinn sem gaf þér paper walletið hafi skrifað niður private keyinn eða gefið öðrum hann