Síða 1 af 1

Spurning um áfengi og skotglös

Sent: Mið 05. Mar 2014 23:17
af hakkarin
Oft þegar ég reyni að hella úr áfengisflöskum í glass og þá sérstaklega skotglass sullast oft allt út um allt. Ég hef tekið eftir því að barir hafa oft eitthvað drasl upp á flöskunni sem að kemur í veg fyrir að allt fari út um allt. Veit eitthvað hvað það er og hvar maður getur nálgast slíkt?

Re: Spurning um áfengi og skotglös

Sent: Mið 05. Mar 2014 23:31
af elfaralfreds
Þetta heitir því skemmtilega nafni "Skenkjari" á íslensku.

Örruglega hægt að fá þetta í búðum eins og Ámuni

Re: Spurning um áfengi og skotglös

Sent: Mið 05. Mar 2014 23:53
af littli-Jake
spes byrgjar gætu verið með þetta. Skilst að Salt og Pipar ættu að vera með þetta.

Annars eru Vífilfell pottþétt með þetta. Hljóta að geta selt þér ;)

Re: Spurning um áfengi og skotglös

Sent: Fim 06. Mar 2014 00:05
af hfwf
plís, þetta fæst í rúmfatalagernum eða tiger á klínk.

Re: Spurning um áfengi og skotglös

Sent: Fim 06. Mar 2014 00:23
af Nuketown
ég veit ekkert hvað ég á að segja hérna

Re: Spurning um áfengi og skotglös

Sent: Fim 06. Mar 2014 00:39
af rapport
Ertu ekki að tala um svipaða stúta og eru á hvítlauksolíunni á næsta pizzastað?

Re: Spurning um áfengi og skotglös

Sent: Fim 06. Mar 2014 20:52
af hakkarin
rapport skrifaði:Ertu ekki að tala um svipaða stúta og eru á hvítlauksolíunni á næsta pizzastað?


Mann ekki 100% hvernig þetta lýtur út. Veit bara að þetta er rautt á litinn og er úr plasti.

Re: Spurning um áfengi og skotglös

Sent: Fim 06. Mar 2014 21:21
af Xovius

Re: Spurning um áfengi og skotglös

Sent: Fim 06. Mar 2014 21:38
af svanur08
hakkarin skrifaði:Oft þegar ég reyni að hella úr áfengisflöskum í glass og þá sérstaklega skotglass sullast oft allt út um allt. Ég hef tekið eftir því að barir hafa oft eitthvað drasl upp á flöskunni sem að kemur í veg fyrir að allt fari út um allt. Veit eitthvað hvað það er og hvar maður getur nálgast slíkt?


Ertu að tala um svona?

https://www.google.is/search?q=speed+po ... h&imgdii=_

Re: Spurning um áfengi og skotglös

Sent: Fim 06. Mar 2014 22:43
af Hannesinn
Stútar, eða pourers. Fást 12 í pakka hjá K. Karlsson.

Re: Spurning um áfengi og skotglös

Sent: Fim 06. Mar 2014 22:48
af hakkarin
svanur08 skrifaði:
hakkarin skrifaði:Oft þegar ég reyni að hella úr áfengisflöskum í glass og þá sérstaklega skotglass sullast oft allt út um allt. Ég hef tekið eftir því að barir hafa oft eitthvað drasl upp á flöskunni sem að kemur í veg fyrir að allt fari út um allt. Veit eitthvað hvað það er og hvar maður getur nálgast slíkt?


Ertu að tala um svona?

https://www.google.is/search?q=speed+po ... h&imgdii=_


Já eitthvað svona!

Hannesinn skrifaði:Stútar, eða pourers. Fást 12 í pakka hjá K. Karlsson.


Hvar finn ég þá verslun?

Re: Spurning um áfengi og skotglös

Sent: Fim 06. Mar 2014 22:58
af Gislinn
hakkarin skrifaði:
Hannesinn skrifaði:Stútar, eða pourers. Fást 12 í pakka hjá K. Karlsson.


Hvar finn ég þá verslun?


Prufað þetta.

Re: Spurning um áfengi og skotglös

Sent: Fös 07. Mar 2014 14:28
af Hannesinn
Ef þig vantar bara örfá stykki af þessu, þá geturðu örugglega keypt þetta í byggt og búið eða álíka verslun. En ef þig vantar fleiri en 3-4, prufaðu að hringja í K. Karlsson. Þetta eru svona svartir plaststútar, 12 í poka og eru mjög fínir.

Ég keypti einhverja 6 poka af þessu fyrir nokkrum árum og þeir eru mjög fínir. Hef ekki hugmynd um verðið á þessu í dag, en man að örfá stykki í lausu voru fljót að ná pokanum.