"Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyrgð"

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
gullielli
has spoken...
Póstar: 187
Skráði sig: Mið 28. Júl 2010 18:23
Reputation: 0
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
Staða: Ótengdur

"Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyrgð"

Pósturaf gullielli » Mið 05. Mar 2014 09:22

Las þessa frétt, instant facepalm.. #-o ..og svo aftur þegar ég las kommentin #-o

http://www.dv.is/neytendur/2014/3/5/bod ... gd-ADDUT0/

-Cheng

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf KermitTheFrog » Mið 05. Mar 2014 09:25

Fólk virðist ekki gera sér grein fyrir því að aðrir koma líka með tölvurnar sínar í viðgerð... Afhverju ætti hún að fara fremst í röðina afþví hennar tölva er í ábyrgð? Eru ekki fleiri með tölvurnar sínar í ábyrgðarviðgerð? Flott að fólk komist í fjölmiðla með svona.

Líka þegar hún kallar að eiga tölvu í þrjú ár "ekki svo lengi".

Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6795
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 940
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf Viktor » Mið 05. Mar 2014 09:28

Sé ekki hvað er óeðlilegt við það að það taki tíma að fara með rafmagnstæki í gegnum viðgerðarþjónustu.

I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things

Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

audiophile
Bara að hanga
Póstar: 1576
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 129
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf audiophile » Mið 05. Mar 2014 09:57

Já furðulegt hvað fólk heldur alltaf að það sé starfsmaður sem hafi ekkert að gera og bíði bara eftir að fá að byrja að gera við tækið þeirra þegar komið er á versktæðið.

:face

Have spacesuit. Will travel.

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf AntiTrust » Mið 05. Mar 2014 10:07

Best við þetta finnst mér titillinn undir myndinni: "Vera varð fyrir því að tölvan hennar bilaði fyrirvaralaust." Undarlegt maður, ég fæ alltaf símskeyti fyrst.

16þús fyrir flýtigjald er samt sem áður út í hött.

Skjámynd

jericho
Geek
Póstar: 823
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 152
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf jericho » Mið 05. Mar 2014 10:23

Af hverju er ekki boðið upp á lánstölvur á meðan tölvur sem eru í ábyrgð koma í viðgerð?

5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q

Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 833
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 141
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf Hrotti » Mið 05. Mar 2014 10:26

Ég hef ekki pælt í því áður svo að mér yfirsést kannski eitthvað, en er flýtigjald ekki vangefið concept nema að það sé spes crew sem að sér um þær viðgerðir?
Dæmi:
100 manns koma með vélina sína í viðgerð, fyrstu 5 vilja ekki borga flýtigjald vegna þess að biðin hjá þeim er bara 1 dagur en eftir að hinir 95 komu með sínar vélar og borguðu flýtigjald verður biðin hjá fyrstu 5 allt í einu 2 vikur. Mér finnst þetta amk hljóma eins og fjárkúgun, nema auðvitað að það sé standby "flýtiviðgerðarteam" sem að gerir ekki við almennar viðgerðir, þannig að þetta bitni ekki á hinum.

Verðlöggur alltaf velkomnar.

Skjámynd

audiophile
Bara að hanga
Póstar: 1576
Skráði sig: Mið 13. Apr 2005 13:56
Reputation: 129
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf audiophile » Mið 05. Mar 2014 10:31

Flýtimeðferð bitnar alltaf á hinum og líklega ástæðan fyrir háu verði. Til að takmarka fjöldann sem nýti sér það. Finnst það allavega sanngjarnt.

Have spacesuit. Will travel.

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf KermitTheFrog » Mið 05. Mar 2014 10:34

Hrotti skrifaði:Ég hef ekki pælt í því áður svo að mér yfirsést kannski eitthvað, en er flýtigjald ekki vangefið concept nema að það sé spes crew sem að sér um þær viðgerðir?
Dæmi:
100 manns koma með vélina sína í viðgerð, fyrstu 5 vilja ekki borga flýtigjald vegna þess að biðin hjá þeim er bara 1 dagur en eftir að hinir 95 komu með sínar vélar og borguðu flýtigjald verður biðin hjá fyrstu 5 allt í einu 2 vikur. Mér finnst þetta amk hljóma eins og fjárkúgun, nema auðvitað að það sé standby "flýtiviðgerðarteam" sem að gerir ekki við almennar viðgerðir, þannig að þetta bitni ekki á hinum.

Verkstæði gefa sér "allt að x dagar þangað til tæknimaður byrjar að vinna í tölvunni" (yfirleitt). Ef það eiga 20 tölvur eftir að fara upp á borð einn daginn þa skapar það ákveðna vinnu fyrir tæknimenn þann daginn. Ef keypt er flytiþjonusta á tölvu(r) fyrir þann dag bætist við þessar 20 tölvur. Það skapar aukið álag á tæknimenn og hugsanlega yfirvinnu.

Það að það sé keypt flytiþjonusta á tölvu gerir það ekki að verkum að tölva sem ekki var keypt flýtiþjónusta á bíði extra dag (eða ætti ekki að gera það ef skipulagið á verkstæðinu er í lagi). Það gæti hins vegar gert það ef það gætu allir fengið flytiþjonustu frítt.

En I þínu tilfelli ertu að gera ráð fyrir því að það sé engin bið á verkstæðinu fyrir fyrstu kúnnana, sem yfirleitt stenst ekki stoð í raunveruleikanum.

AntiTrust
Stjórnandi
Póstar: 6352
Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
Reputation: 160
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf AntiTrust » Mið 05. Mar 2014 10:37

jericho skrifaði:Af hverju er ekki boðið upp á lánstölvur á meðan tölvur sem eru í ábyrgð koma í viðgerð?

Ef ég man rétt þá þarf viðgerðin að dragast á langinn til þess að neytandi hafi rétt á slíku, rámar í að það sé miðað við um tvær vikur.

Gislinn
FanBoy
Póstar: 769
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 01:07
Reputation: 50
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf Gislinn » Mið 05. Mar 2014 10:54

jericho skrifaði:Af hverju er ekki boðið upp á lánstölvur á meðan tölvur sem eru í ábyrgð koma í viðgerð?

Ég get svo sem skilið að fólk vilji fá lánstölvu en ég átta mig ekki alveg á því hvernig það ætti að virkar í praksís ef allir fengu lánstölvu. Væntanlega væri meiri kröfur um lánstölvur ef um er að ræða vinnutölvur þar sem fólk getur orðið fyrir tekjumissi af því að tölvan bili. Ef heimilistölvan bilar þá ætti fólk að geta lifað án facebook í smá tíma meðan tölvan er í viðgerð eða notar símann til að rápa um netið og því minni þörf á lánstölvu.

Flestir myndu væntanlega óska eftir lánstölvu svo þeir geti unnið á meðan tölvan þeirra er í viðgerð, sem er allt í lagi svo lengi sem fólk er að vinna í word, excel eða öðrum standard office forritum. Um leið og það fer út fyrir það (eða að þú ferð að vinna með trúnaðarskjöl) þá gætir þú ekki nýtt lánstölvu til neins nema að þú tryggir að næsti einstaklingur sem fær lánstölvuna í hendurnar komi ekki til með að sjá trúnaðargögn/viðkvæmgögn eða að tölvan myndi ekki fyllast af allskonar forritum sem fólk þarf að nota við sín störf. Það hlítur því að fylgja gífurlegur kostnaður fyrir fyrirtæki að halda úti lánstölvum (tilvik A: eiga allar týpur af tölvum og láta harðadiskinn hjá viðskiptavininum í lánstölvuna á meðan hin er í viðgerð, B: endalaus uppsetning á lánstölvum til að hafa þær ready fyrir næsta, sem yrði líklegast gert með því að eiga bara tilbúið image af harðadisknum). :-k

Sem dæmi gæti ég ekki notað lánstölvu ef vinnutölvan mín myndi bila vegna þeirrar vinnu sem ég þarf að nota tölvuna í.

common sense is not so common.

Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 833
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 141
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re:

Pósturaf Hrotti » Mið 05. Mar 2014 10:56

KermitTheFrog skrifaði:
Hrotti skrifaði:Ég hef ekki pælt í því áður svo að mér yfirsést kannski eitthvað, en er flýtigjald ekki vangefið concept nema að það sé spes crew sem að sér um þær viðgerðir?
Dæmi:
100 manns koma með vélina sína í viðgerð, fyrstu 5 vilja ekki borga flýtigjald vegna þess að biðin hjá þeim er bara 1 dagur en eftir að hinir 95 komu með sínar vélar og borguðu flýtigjald verður biðin hjá fyrstu 5 allt í einu 2 vikur. Mér finnst þetta amk hljóma eins og fjárkúgun, nema auðvitað að það sé standby "flýtiviðgerðarteam" sem að gerir ekki við almennar viðgerðir, þannig að þetta bitni ekki á hinum.

Verkstæði gefa sér "allt að x dagar þangað til tæknimaður byrjar að vinna í tölvunni" (yfirleitt). Ef það eiga 20 tölvur eftir að fara upp á borð einn daginn þa skapar það ákveðna vinnu fyrir tæknimenn þann daginn. Ef keypt er flytiþjonusta á tölvu(r) fyrir þann dag bætist við þessar 20 tölvur. Það skapar aukið álag á tæknimenn og hugsanlega yfirvinnu.

Yfirvinna er vissulega kostnaðarauki og sjálfsagt að það komi til gjald vegna þess, álag á tæknimenn er það hinsvegar ekki nema að þeir rukki hærri laun á álagstímum.

KermitTheFrog skrifaði:Það að það sé keypt flytiþjonusta á tölvu gerir það ekki að verkum að tölva sem ekki var keypt flýtiþjónusta á bíði extra dag (eða ætti ekki að gera það ef skipulagið á verkstæðinu er í lagi). Það gæti hins vegar gert það ef það gætu allir fengið flytiþjonustu frítt.

Aftur, yfirvinna er löggild afsökun fyrir kostnaðinum en án hennar stenst þetta ekki skoðun. Það að gefa sér einhvern tíma áður en maður byrjar að vinna þýðir ekki að maður eigi að fullnýta hann, maður byrjar um leið og tími losnar. Eðlileg fyrirtæki klára hluti bara eins hratt og þau geta,án þess að það fari að kosta þau meira. Það heitir bara þjónusta en ekki flýtiþjónusta.

Verðlöggur alltaf velkomnar.

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf KermitTheFrog » Mið 05. Mar 2014 11:01

Hrotti skrifaði:

Aukið álag á tæknimenn til lengri tíma getur skilað sér í minna productivity.

En eins og ég sagði "allt að x dagar", að sjálfsögðu byrjar viðgerð um leið og tími losnar. Þessi biðtími er til kominn vegna annarra tölva sem eru þegar í viðgerð.

Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4192
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1323
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf Klemmi » Mið 05. Mar 2014 11:18

Svo að það komi fram, þá á fólk rétt á sambærilegri lánstölvu ef áætlað er að viðgerðartími fari yfir viku og auðvitað á þetta eingöngu við tölvur innan ábyrgðar.

Sem fyrrverandi starfsmaður í móttöku og verkstæði að þá get ég staðfest að lang stærstur hópur kúnna finnst mjög, mjög mikilvægt að fá tölvuna til baka sem fyrst. Tölvur bila víst alltaf á versta tíma, þegar skila á mikilvægu verkefni, þegar mikið er að gerast í vinnunni. Samkvæmt viðskiptavini liggur almennt meira á hans tölvu heldur en tölvunum sem nú þegar eru á verkstæðinu, það er bara þannig.

Hins vegar er ótrúlega lágt hlutfall af fólki sem vill borga flýtigjald. Hjá okkur var fremur lágt flýtigjald, 5.000kr.-, og þá átti vélin að fara upp á borð sama dag og reynt eins og hægt var að klára hana samdægurs, sem fer þó eftir bilun vélarinnar. Um leið og maður nefnir flýtigjald, þá liggur ekki jafn mikið á. Tölvu sem lá svakalega mikið á og þurfti helst að vera búið að gera við í gær, lá ekki lengur jafn mikið á og mátti alveg vera klár eftir 3-5 daga.

Hugsunin með flýtigjaldi er í mínum huga tvíþætt. Annars vegar til að sortera út þá sem virkilega finnst þeim liggja á vélinni, það mikið að þeir séu tilbúnir til að borga aukalega til að sporna við tapaðri vinnu og þess háttar, hins vegar til þess að koma á móts við verkstæðið, því eins og komið hefur fram hér að ofan, þá eru þær vélar sem nú þegar eru í vinnslu eða eiga að fara upp á borð sama dag ekkert bara skellt niður á gólf og hætt að spá í þeim. Það er fundinn tími fyrir þær vélar sem komu í flýtimeðferð og þeim sinnt, mögulega með yfirvinnu ef þess þarf.

Skjámynd

jericho
Geek
Póstar: 823
Skráði sig: Mið 21. Jan 2004 14:23
Reputation: 152
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf jericho » Mið 05. Mar 2014 11:29

Gislinn skrifaði:Sem dæmi gæti ég ekki notað lánstölvu ef vinnutölvan mín myndi bila vegna þeirrar vinnu sem ég þarf að nota tölvuna í.

Góður punktur. Tölvur innihalda svo mismunandi forrit milli notenda að það er ómögulegt að bjóða upp á "alveg eins" lánstölvu.

Hins vegar finnst mér að fyrirtæki ættu að bjóða upp á lánstölvu með einhverri default-uppsetningu sem notandi getur sett upp sín forrit á og þegar henni er skilað, þá er hún bara straujuð og default-uppsetning keyrð á hana.

Mín skoðun er sú að fólk er sjálft ábyrgt fyrir því að geyma backup af gögnunum sínum og því finnst mér ekki að tölvufyrirtæki ættu að bjóða upp á að ná í gögn af biluðu tölvunni á meðan hún er á verkstæðinu.

5600x | DH-15 | RTX 3070 FE | MSI B550m Pro-VDH | Samsung Evo 970 1TB | Corsair LPX 2x8GB | Seasonic Prime Fanless 600W | Fractal Meshify C | Asus ROG Swift PG279Q

braudrist
</Snillingur>
Póstar: 1051
Skráði sig: Mán 06. Sep 2004 13:22
Reputation: 58
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf braudrist » Mið 05. Mar 2014 11:35

Nú, ég hélt að Apple tölvur biluðu ekkert :guy :guy

Intel Core-i9 9900k @ 5GHz :: ASUS ROG Maximus XI Formula :: Corsair Vengeance 3200MHz - 32GB DDR4 :: ASUS ROG STRIX RTX 2080 Ti OC :: 1TB Samsung 970 Pro m.2-NVMe :: 27" Acer Predator XB271HU :: Corsair RM850x :: Cooler Master C700m

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf KermitTheFrog » Mið 05. Mar 2014 11:42

braudrist skrifaði:Nú, ég hélt að Apple tölvur biluðu ekkert :guy :guy

Þær gera það víst bara fyrirvaralaust...

Skjámynd

Höfundur
gullielli
has spoken...
Póstar: 187
Skráði sig: Mið 28. Júl 2010 18:23
Reputation: 0
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf gullielli » Mið 05. Mar 2014 11:47

KermitTheFrog skrifaði:
braudrist skrifaði:Nú, ég hélt að Apple tölvur biluðu ekkert :guy :guy

Þær gera það víst bara fyrirvaralaust...

:megasmile :megasmile :megasmile :megasmile =D>

-Cheng

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7501
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1164
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf rapport » Mið 05. Mar 2014 12:39

Er ekki hægt að fá tilkynningu tímanelga fyrir hverja bilun?

sbr. windows update, java update og flash update.... það eru líka tilkynningar um væntalega bilun... þannig séð...

Skjámynd

kizi86
Vaktari
Póstar: 2222
Skráði sig: Lau 26. Sep 2009 18:08
Reputation: 170
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf kizi86 » Mið 05. Mar 2014 13:28

rapport skrifaði:Er ekki hægt að fá tilkynningu tímanelga fyrir hverja bilun?

sbr. windows update, java update og flash update.... það eru líka tilkynningar um væntalega bilun... þannig séð...

þið vitið vel að tölvur koma oft með vissar aðvaranir áður en bila endanlega, td bsod og fleira....

ASRock B650E PG-ITX WiFi AMD Ryzen 9 7950X PowerColor "Red Devil" RX 7900 XTX 24GB G.Skill Trident Z5 RGB 32GB (2 x 16GB) DDR5-6000 stýrikerfi: wd black sn850x 2TB WD RED 4TB WD RED 4TB 65" LG B8 OLED TV

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf KermitTheFrog » Mið 05. Mar 2014 13:53

kizi86 skrifaði:
rapport skrifaði:Er ekki hægt að fá tilkynningu tímanelga fyrir hverja bilun?

sbr. windows update, java update og flash update.... það eru líka tilkynningar um væntalega bilun... þannig séð...

þið vitið vel að tölvur koma oft með vissar aðvaranir áður en bila endanlega, td bsod og fleira....

Þegar þú færð BSOD er eitthvað bilað (hvort það sé hugbúnaður eða vélbúnaður). Þú færð ekki BSOD sem segir "Það er allt í góðu núna en tölvan þín er að fara að bila".

Hins vegar er það alveg satt að tölvur geta gefið aðvaranir áður en þær bila endanlega eða "deyja".

Skjámynd

MrSparklez
Tölvutryllir
Póstar: 635
Skráði sig: Lau 04. Maí 2013 16:01
Reputation: 7
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf MrSparklez » Mið 05. Mar 2014 14:17

Gæti það kannski verið að flýtigjaldið var svo hátt vegna þess að þeir þurftu kannski að panta einhvern íhlut að utan og þurfa að borga extra fyrir fljótari sendingu ?

Skjámynd

GullMoli
Vaktari
Póstar: 2484
Skráði sig: Lau 20. Maí 2006 22:05
Reputation: 235
Staðsetning: NGC 3314.
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf GullMoli » Mið 05. Mar 2014 14:20

MrSparklez skrifaði:Gæti það kannski verið að flýtigjaldið var svo hátt vegna þess að þeir þurftu kannski að panta einhvern íhlut að utan og þurfa að borga extra fyrir fljótari sendingu ?

Flýtigjaldið er einungis til þess að byrjað sé að skoða/vinna í vélinni fyrr. Þeir vita ekkert hvort þeir þurfi svo að panta varahluti fyrr en eftir að þeir hafa litið á vélina.

Main -> || Windows 11 || Ryzen 5600x || Asus ROG B550i || 32GB DDR4 3600 || RTX 3070 || CM 750W SFX || Lian Li TU-150 || 34" IPS 3440x1440 180Hz ||

NAS -> || Truenas Scale || i7 8700 || 64GB DDR4 2666 || 2x 12 TB ||

"It's a magical world, Hobbes, Ol' Buddy... let's go exploring!"

Skjámynd

lukkuláki
Besserwisser
Póstar: 3089
Skráði sig: Fös 30. Nóv 2007 19:06
Reputation: 65
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf lukkuláki » Mið 05. Mar 2014 15:57

Flýtigjaldið er bara til þess að komast fram fyrir röðina þá fer tæknimaður asap í að greina bilun og gera ráðstafanir með hvað skal gera
ef vélin er í ábyrgð og varahluturinn er til þá getur þetta gengið mjög hratt fyrir sig en ef það þarf að panta varahlut í vélina eða hún er EKKI í ábyrgð þá hefur það í rauninni ekkert með flýtigjaldið að gera, það coverar ekkert slíkt.

Það er bara ákveðinn fjöldi flýtigjalda seldur á dag (2-3) það fer bara eftir stöðuni á tæknimönnum og hvort það er einhver tiltækur í djobbið en það er yfirleitt kannað áður en boðið er upp á það.
Sumir bjóða upp á flýtigjald1 og flýtigjald2 munurinn á þessu liggur í hversu fljótt það þarf að byrja á vélinni.
þá kostar flýtigjald 1 kannski 15.000 þá er byrjað innan 2 tíma sé komið með vélina fyrir kl 14 en svo er flýtigjald 2 sem kostar kannski 9900 þá er byrjað á henni næsta virkan dag eða eitthvað sambærilegt.
Þetta bjóða flest verkstæði uppá síðast þegar ég vissi og hefur ekki þótt fréttnæmt til þessa.

If you think patience is a virtue, try surfing the net without high speed Internet.

Skjámynd

KermitTheFrog
Kóngur
Póstar: 4273
Skráði sig: Mán 07. Júl 2008 23:32
Reputation: 67
Staða: Ótengdur

Re: "Boðið að greiða flýtigjald fyrir viðgerð á tölvu í ábyr

Pósturaf KermitTheFrog » Mið 05. Mar 2014 16:09

lukkuláki skrifaði:Þetta bjóða flest verkstæði uppá síðast þegar ég vissi og hefur ekki þótt fréttnæmt til þessa.

Ekki fyrr en einhver kemur og blæs þetta úr öllu samhengi út af óánægju vegna eigin óraunhæfra krafa. Og fær það birt á DV í þokkabót...