Tbot skrifaði:dori skrifaði:biturk skrifaði:Ja ísland gerðu þetta skylst mér, enda þeirra hagsmunir að ljúga fôlk uppfullt
Þú ert að setja þetta of augljóslega upp fyrir skot til baka. Ég nenni ekki einu sinni að bíta.
Segðu mér samt af hverju það þarf að ljúga fólk uppfullt til að það sætti sig ekki við að stjórnmálamenn svíki loforð sem voru margítrekuð bæði fyrir og eftir kosningar? Fyrir mjög mörgum er það það sem þetta snýst um. Þeir sem mæta á Austurvöll eru reyndar væntanlega mun ákveðnari í því að þeir vilja fá að kjósa og fá að kjósa já.
Mér finnst það virkilega leiðinlegt samt þegar fólk kemur með svona komment eins og þú (þetta kemur úr báðum áttum). Þú verður að sýna því virðingu að það geti verið að það sé fólk sem telji sínum hagsmunum (og jafnvel hagsmunum fjöldans) betur borgið innan ESB og það geta verið margar ástæður fyrir því. Ef þú ert ósammála ættirðu frekar að segja af hverju heldur en að móðga fólk.
Bara til að minna fólk á að það var samspillingin sem ákvað að fara í aðlögunarviðræður án þess að spyrja landsmenn. Þetta eru ekki aðildarviðræður því málið snýst um hvað þarf að breyta Íslenskum lögum svo þau séu samstíga EU. VG gaf út að þeir væru á móti EU og fengu ansi mörg atkvæði í kosningum 2009 út á það.
Þegar ákveðið var á alþingi að fara í þessar viðræður komu fram breytingartillögur að setja í þjóðaratkvæði hvort það ætti að hefja þessa vegferð. Bæði samspilling og VG sögðu nei við þjóðaratkvæði þá.
Heldur ætlaðu þeir að hafa þjóðaratkvæði þegar samningur væri kominn. Smá ábending - engum lögum var breytt svo það þyrfti( þjóðaratkvæði) heldur værum við upp á náð og miskun þessa liðs hvort það mæti sem svo að nú ætti að spyrja fólkið.
=> Ekki gleyma því að samspilling og VG fengu rassskellingu í síðustu alþingiskosningum.
Þú gerir svo lítið úr því sem þú ert að segja með því að nota uppnefni. "Samspilling", "FLokkurinn" og annað sem maður sér oftast í kommentakerfi DV eða á blog.is er bara svo hrikalega asnalegt að það er erfitt að taka mark á þeim sem nota þetta.
Ég er ekkert fylgjandi Samfylkingar eða VG og það er margt sem sú ríkisstjórn gerði sem ég er mjög ósammála. Hins vegar ertu þar með tvo flokka sem voru á öndverðum meiði með þetta en ætluðu að láta reyna á það að starfa saman í ríkisstjórn og gerðu mjög margt mjög vel. En í
stjórnarsáttmálanum þeirra sagði:
Stjórnarsáttmáli 8. maí 2009 skrifaði:Ákvörðun um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði í höndum íslensku þjóðarinnar sem
mun greiða atkvæði um samning í þjóðaratkvæðagreiðslu að loknum aðildarviðræðum.
Utanríkisráðherra mun leggja fram á Alþingi tillögu um aðildarumsókn að
Evrópusambandinu á vorþingi.
Þannig að það kemur engum á óvart að þeir hefðu aðilarviðræðurnar. Hins vegar eru ríkisstjórnin núna og
báðir ríkisstjórnarflokkarnir búnir að segja bæði fyrir og eftir kosningar að það muni verða kosið núna á þessu kjörtímabili og að það muni gerast fyrr en síðar. Háttsettir aðilar (Bjarni Ben, minnir mig) tala um meðfram sveitastjórnarkosningum.
Þú hlýtur að sjá hvernig þetta er bara tvennt gjörólíkt, er það ekki? Fyrir utan það að öll rökin þeirra fyrir því að draga umsóknina til baka eru kengþroskaheft. Ég hef ekkert á móti því að þessir flokkar haldi ekki áfram með þetta. En af hverju að draga þetta til baka?
ESB vill að við tökum afstöðu. - Ok, segið að þið ætlið ekki að halda áfram með þetta og geymið bara umsóknina eins og Sviss hefur gert í milljón ár.
Við vorum kosin og fólk kaus okkur
út á stefnu okkar í evrópumálum. - Nah, frekar óskýr og villanda stefna greinilega (kannski sett þannig upp í byrjun) og framsókn var af flestum kosin fyrir loforð um skuldarniðurfellingar og ekkert annað. Sem er líka það sem öll kosningarbaráttan hjá mörgum flokkum snerist um.
Það eru breyttar aðstæður síðan við sögðum þetta. - Já, svo að kosningarloforðið var bara sett inn sem þrautavari ef þú skyldir mynda ríkisstjórn með flokki sem er ósammála þér en gildir ekki ef þú ert með flokki sem er sammála þér... Það er frekar heimskuleg pæling (Sjá
hér)
Ég man ekki fleira en öll rökin sem þeir hafa komið með og ég hef séð er eitthvað sem stenst ekki skoðun. Vil samt endilega hafa rangt fyrir mér og sjá eitthvað sem meikar sense.