Síða 1 af 1

Láta smíða gler í umgjarðir

Sent: Þri 25. Feb 2014 02:48
af Viktor
Sælir.
Keypti gleraugu á netinu sem hafa reynst mér mjög vel. Ég fíla umgjörðina en vandamálið er að 'glerin' eru úr plasti sem rispast.
Velti því fyrir mér hvort ég geti látið smíða gler í mínum styrk einhversstaðar? Hvað kostar það?

Re: Láta smíða gler í umgjarðir

Sent: Þri 25. Feb 2014 06:22
af Danni V8
Þetta ætti að vera hægt í hvaða gleraugnaverslun sem er, svo lengi sem það er hægt með umgjörðinni. Verðið fer allt eftir styrknum og sjónskekkjunni sem þú ert með, ef þú ert með einhverja.

Ég myndi bara kíkja með umgjörðina í næstu gleraugnaverslun og fá öll svör sem þig vantar.

Ég keypti mér RayBan gleraugu erlendis fyrir ca 2 árum síðan. Síðan þegar ég fékk mér ný daily gleraugu hjá Optical Studio í Keflavík þá bjóða þau uppá að fá styrkt gler í sólgleraugu frítt með. Ss. ef maður kaupir sólgleraugu þá þarf maður bara að borga umgjörðina en ef maður kemur með umgjörð sjálfur ef það alveg frítt. Ég nýtti mér það og breytti þessum RayBan's í sólgleraugu með styrk alveg frítt :D