Síða 1 af 1
Pæling með Einkamal.is
Sent: Mið 19. Feb 2014 12:29
af Bjarni44
Þar sem ég á mjög fyndna vini þá ákváðu þeir að búa til prófíl fyrir mig inná einkamal.is, þeir notuðu emailið mitt til að skrá sig þannig að það var ekkert mál fyrir mig að breyta passwordinu og eyða þessu en það sem ég var að spá er hvort ég gæti einhvernveginn komist aðþví hver það var sem bjó þetta til til að byrja með?
Re: Pæling með Einkamal.is
Sent: Mið 19. Feb 2014 12:33
af dori
Voða erfitt... Hugsanlega gæti einkamal.is gefið þér einhverjar vísbendingar (þó ég efi að þeir myndu láta þig fá nokkuð) en nema þú sért með mad skillz eða vinir þínir mökk heimskir þá ertu ekkert að fara að fá úr því. Getur samt prófað að hafa samband við einkamal.is og spurt þá. Það skaðar allavega ekki.
Re: Pæling með Einkamal.is
Sent: Mið 19. Feb 2014 12:47
af Bjarni44
Jáá búinn að hafa samband við þá, eru frekar lengi að svara og ég er ekkert rosalega þolinmóður
Re: Pæling með Einkamal.is
Sent: Mið 19. Feb 2014 18:54
af Viktor
Re: Pæling með Einkamal.is
Sent: Fim 20. Feb 2014 12:40
af Squinchy
Þeir þurfa að taka upp bland aðferðina, heimta bankareikning við skráningu
Re: Pæling með Einkamal.is
Sent: Fim 20. Feb 2014 12:53
af Stutturdreki
Ef það er ekki, þá ætti þeir amk. að fara fram á email verification. Þá hefði Bjarni44 td. sloppið, eða amk. vinir hans ekki geta notað emailið hans.
Re: Pæling með Einkamal.is
Sent: Fim 20. Feb 2014 16:04
af gissur1
Setur inn kennitölu við skráningu, færð rafrænt skjal í heimabankann með staðfestingarkóða sem þú svo stimplar inn til að byrja að perrast
Re: Pæling með Einkamal.is
Sent: Fim 20. Feb 2014 17:32
af Bjosep
Ég ætla rétt að vona að þú sért að reyna að komast að þessu til þess að vita hvern þú eigir að hrekkja til baka en ekki til þess að púlla Maríu Birtu.
P.s. gætir hrekkt hann með sígilda sundlaugarleiknum "í hvaða skáp setti ég fötin þín"