Síða 1 af 1
Má senda hákarl í pósti til útlanda?
Sent: Þri 18. Feb 2014 16:25
af hakkarin
Sendi eina litla plasdós af hákarli til Ashens
http://www.youtube.com/user/ashensOg eina til Spoony:
http://spoonyexperiment.com/Verður þetta nokkur stoppað í tollinum? Lét skrá þetta sem "fisk" til að vera safe. Þetta eru bara svona litlar 100 grama dollur sem voru settar í svona brúna papírspoka.
Önnur spurning líka, ég lét senda þetta sem skráð bréf en hefði líklega ekki átt að gera það þar sem að þetta er sent í "PO BOX" eða eitthvað þannig (leigð pósthólf skilst mér). Er það nokkuð mikið vandamál eða kemur þetta í veg fyrir að þetta komist á áfangastað?
Re: Má senda hákarl í pósti til útlanda?
Sent: Þri 18. Feb 2014 16:30
af dori
Ég held að skráð bréf sé þannig að þeir fái þá bara tilkynningu um að þeir eigi bréf og sæki það svo (eða fái sendil til sín). Svona svipað og þegar þú færð pakka hérna heima.
Re: Má senda hákarl í pósti til útlanda?
Sent: Þri 18. Feb 2014 16:30
af sakaxxx
Vel gert! Ég hef séð allt sem Ashens hefur gefið frá sér vonandi borðar hann hákarlinn
Re: Má senda hákarl í pósti til útlanda?
Sent: Þri 18. Feb 2014 16:36
af hakkarin
sakaxxx skrifaði:Vel gert! Ég hef séð allt sem Ashens hefur gefið frá sér vonandi borðar hann hákarlinn
Spurning hvort að hann geri það ef hann fær hann samt. Hann borðaði allavega ekki Surstrummingið sem hann fékk sent. En hákarl er svosem ekki eins frægur. Það eina sem að ég hef áhyggjur af er hvort að þetta verði tekið í tollinum. Efa reyndar að það verði gert við pakkan hans ashens þar sem að ég held að ég hafi séð eitthvern breskan kokk éta þetta í sjónvarpinu. Þá hef ég líka séð Amerikana éta þetta á youtube þannig að kanski er allt í lagi að flytja þetta inn. Vill bara spyrja að því að forvitnin er að drepa mig :/
EDIT: OK ég var á wikipedia og þar stendur að hákarl sé skilgreindur sem fiskur en ekki hvalur eins og ég óttaðist. Þá getur þetta varla verið mikið mál. Eða ég vona það allavega.
Re: Má senda hákarl í pósti til útlanda?
Sent: Þri 18. Feb 2014 16:48
af Hrotti
hakkarin skrifaði: "ég var á wikipedia og þar stendur að hákarl sé skilgreindur sem fiskur en ekki hvalur eins og ég óttaðist."
Re: Má senda hákarl í pósti til útlanda?
Sent: Þri 18. Feb 2014 17:12
af GuðjónR
hakkarin skrifaði:Sendi eina litla plasdós af hákarli til Ashens
Fíkniefnahundarnir eiga eftir að tryllast!
Þú verður hugsanlega kærður fyrir hryðjuverk.
Re: Má senda hákarl í pósti til útlanda?
Sent: Þri 18. Feb 2014 17:33
af gullielli
GuðjónR skrifaði:hakkarin skrifaði:Sendi eina litla plasdós af hákarli til Ashens
Fíkniefnahundarnir eiga eftir að tryllast!
Þú verður hugsanlega kærður fyrir hryðjuverk.
i loled