Síða 1 af 1

Fríska upp á gamla Hátalara.

Sent: Fim 13. Feb 2014 16:44
af Snorrmund
Sælir, ég er með gamla Pioneer hátalara sem eru með svona matt svartri áferð. En þó þeir hljómi vel þrátt fyrir að vera nokkura áratuga gamlir þá eru þeir orðnir frekar sjúskaðir að utan. Ég var að hugsa um að reyna að ná svipaðri áferð aftur svona matt svart.
Hvernig er best að gera þetta ? Er ekki nóg að pússa aðeins gamla lakkið upp og rúlla þetta svo með einhverri fínni rúllu?

Re: Fríska upp á gamla Hátalara.

Sent: Fim 13. Feb 2014 16:45
af vesley
Pússa þá upp, grunna og rúlla með mjög fínni svamprúllu eða bara spreyja með spreybrúsa.

Re: Fríska upp á gamla Hátalara.

Sent: Fim 13. Feb 2014 16:48
af Snorrmund
Já sama pæling og ég var með, gleymdi að taka framm grunninn ;) Er bara ekki með almennilega aðstöðu þannig að ég verð víst að láta reyna á að rúlla þá bara. Of mikill subbuskapur í því að spreyja.

Re: Fríska upp á gamla Hátalara.

Sent: Fim 13. Feb 2014 16:49
af vesley
Snorrmund skrifaði:Já sama pæling og ég var með, gleymdi að taka framm grunninn ;) Er bara ekki með almennilega aðstöðu þannig að ég verð víst að láta reyna á að rúlla þá bara. Of mikill subbuskapur í því að spreyja.



Hægt að fá mjög slétta og góða áferð með því að rúlla, vera með fína rúllu og rúlla mjög hægt! ef þú ert að flýta þér þá koma loftbólur í lakkið.

Re: Fríska upp á gamla Hátalara.

Sent: Fim 13. Feb 2014 23:45
af Squinchy
sma offtopic en hvaða týpu að Pioneer

kv. Pioneer fanboy :sleezyjoe

Re: Fríska upp á gamla Hátalara.

Sent: Fös 14. Feb 2014 12:41
af Snorrmund
Þetta eru Pioneer HPM50 hátalarar og síðan er ég með Pioneer SA8100 magnara, svosum ekkert brjálaðislega öflugir hátalarar en miklu meira en nóg fyrir mig eins og staðan er á íbúðarmálum hjá mér í dag ;)