Síða 1 af 1
Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Mið 12. Feb 2014 22:52
af hakkarin
Var að spjalla við eitthvern gaur á netinu um áfengi og var að tala um það hversu slappir sumir barþjónar á Íslandi væru þegar það kæmi að því að búa til kokteila. Hann stakk upp á því að ég færi bara á "kokteil bar" eða "cocktail bar" eins og hann orðaði það. Er þetta eitthvað svona spes erlent fyrirbærir eða eru til svona "cocktail bars" á Íslandi?
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Mið 12. Feb 2014 23:13
af worghal
hef nú lítið pælt í því sjálfur með þessa kokteil bari, en mér finnst eins og ísland hefur engann áhuga á þeim með okkar "GET WASTED!!" hugarástand
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Mið 12. Feb 2014 23:15
af vesley
Það er nú bara kokteila helgi núna þessa helgi.
Slippbarinn eru góðir í kokteilum og svo er nýr veitingastaður að opna á Skólavörðustíg (Kol)
https://www.facebook.com/kolrestaurant sem verður með allskonar kokteila.
Loftið eiga líka að vera nokkuð sniðugir.
Annars hef ég kynnt mér þetta alltof lítið miðað við að hafa unnið slatta í 101RVK
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Mið 12. Feb 2014 23:21
af dori
Eru það ekki bara barir sem gera sig útá að búa til drykki en ekki bara bjór á dælu+highballs?
Ég veit ekki, Kopar (reyndar veitingastaður en held að þeir hafi metnað í svona) eða Loftið (þó svo að þeir hafi náð að koma sér í fjölmiðla fyrir frekar vandræðalega hluti). Svo örugglega slatti af aðeins betri veitingastöðum.
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Mið 12. Feb 2014 23:24
af Opes
Já, t.d. Sushi Samba og Slippbarinn.
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Mið 12. Feb 2014 23:34
af gullielli
rant on
fer í mínar fínustu þegar fólk skrifar/segir "eitthvern" .... hvað á "eitthvern" að þýða eiginlega? þetta er ekki íslenska
/rant off
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Mið 12. Feb 2014 23:54
af Gunnar
Ég fer bara á eitthvern bar og fæ mér einn skítkaldann viking ef það er til annars eitthvern skítkaldan á krana bara. Fínn kokteill!
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Mið 12. Feb 2014 23:58
af snaeji
Getur fengið Kokteil á þúsund krónur í hörpunni á Kolabrautinni á milli 5-7. Virkilega vandaðir og góðir.
Sumir þeirra eru vel undir kostnaðarverði á þessu verði!
Veit að það er ekki kokteil bar en ekki slæm dægrastytting þrátt fyrir það.
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Fim 13. Feb 2014 09:24
af Jón Ragnar
Það er mikil aukning í flottum börum í 101.
Mikið af stöðum sem eru farnir að gera flotta kokteila.
Og einnig er bjórúrval orðið awesome
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Fim 13. Feb 2014 09:46
af paze
Þetta land er svo illa krambúlerað í svona málum. Landi í kók er þjóðarkokteillinn. Það er engin drykkjumenning hérna, bara drykkja. Fólk hellir sig bara blindfullt, hagar sér eins og algjörir fávitar (og fremja að jafnaði glæpi í leiðinni) og gerir lífið almennt ömurlegt fyrir alla aðra.
Ég amk. læt ekki sjá mig niðri í bæ...Fyrir þá sem hafa ekki upplifað svona venjulega drykkjumenningu þá verðið þið bara að take my word for it.
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Fim 13. Feb 2014 10:44
af biturk
Kokteilarnir á hilton hótel barnum eru geðveikt góðir
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Fim 13. Feb 2014 18:00
af Bjosep
paze skrifaði:Þetta land er svo illa krambúlerað í svona málum. Landi í kók er þjóðarkokteillinn. Það er engin drykkjumenning hérna, bara drykkja. Fólk hellir sig bara blindfullt, hagar sér eins og algjörir fávitar (og fremja að jafnaði glæpi í leiðinni) og gerir lífið almennt ömurlegt fyrir alla aðra.
Ég amk. læt ekki sjá mig niðri í bæ...Fyrir þá sem hafa ekki upplifað svona venjulega drykkjumenningu þá verðið þið bara að take my word for it.
Þetta er náttúrulega bara bundið við Ísland ...
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Fim 13. Feb 2014 18:58
af tdog
Bjosep skrifaði:Þetta er náttúrulega bara bundið við Ísland ...
Ok ok ok... og Grænland.
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Fim 13. Feb 2014 21:15
af hakkarin
Bjosep skrifaði:paze skrifaði:Þetta land er svo illa krambúlerað í svona málum. Landi í kók er þjóðarkokteillinn. Það er engin drykkjumenning hérna, bara drykkja. Fólk hellir sig bara blindfullt, hagar sér eins og algjörir fávitar (og fremja að jafnaði glæpi í leiðinni) og gerir lífið almennt ömurlegt fyrir alla aðra.
Ég amk. læt ekki sjá mig niðri í bæ...Fyrir þá sem hafa ekki upplifað svona venjulega drykkjumenningu þá verðið þið bara að take my word for it.
Þetta er náttúrulega bara bundið við Ísland ...
Augljóslega fer fólk líka stundum á fillerí í útlöndum, en ég held að hann sé að meina það (og ég er sammála) að hér sé enginn raunveruleg svona "alvöru" áfengismenning, eða þar að segja að fólk sem að drekkur með öðrum gerir það bara fyrir áfengið. Ekkert spjall við annað fólk á börum eða neitt, bara út á lífið og síðan allir blindfullir.
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Fim 13. Feb 2014 21:27
af jagermeister
Kokteilarnir á Grillmarkaðnum eru mjög góðir, þar er líka svona speis þar sem hópar geta setið og fengið sér drykki saman, mæli með því.
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Fim 13. Feb 2014 22:43
af dori
hakkarin skrifaði:Bjosep skrifaði:paze skrifaði:Þetta land er svo illa krambúlerað í svona málum. Landi í kók er þjóðarkokteillinn. Það er engin drykkjumenning hérna, bara drykkja. Fólk hellir sig bara blindfullt, hagar sér eins og algjörir fávitar (og fremja að jafnaði glæpi í leiðinni) og gerir lífið almennt ömurlegt fyrir alla aðra.
Ég amk. læt ekki sjá mig niðri í bæ...Fyrir þá sem hafa ekki upplifað svona venjulega drykkjumenningu þá verðið þið bara að take my word for it.
Þetta er náttúrulega bara bundið við Ísland ...
Augljóslega fer fólk líka stundum á fillerí í útlöndum, en ég held að hann sé að meina það (og ég er sammála) að hér sé enginn raunveruleg svona "alvöru" áfengismenning, eða þar að segja að fólk sem að drekkur með öðrum gerir það bara fyrir áfengið. Ekkert spjall við annað fólk á börum eða neitt, bara út á lífið og síðan allir blindfullir.
Ef það er semi bannað að tala um áfengi opinberlega og þú mátt ekki koma nálægt þessu fyrr en allir eru löngu búnir að því þá er það sem gerist (svo þegar bindindisfólki er bent á þetta segir það að íslendingar séu ekki nógu agaðir eða eitthvað annað bullshit - þetta er svona hænan og eggið dæmi).
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Fim 13. Feb 2014 23:27

Verð reyndar að vera ósammála, það fer bara rosalega eftir því hvert þú ferð, það er hellings "áfengismenning" á Íslandi maður þarf bara að kynna sér hana og vita hvert maður á að fara til að komast í kynni við góða menningu.
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Fim 13. Feb 2014 23:52
af Bjosep
dori skrifaði:hakkarin skrifaði:Bjosep skrifaði:paze skrifaði:Þetta land er svo illa krambúlerað í svona málum. Landi í kók er þjóðarkokteillinn. Það er engin drykkjumenning hérna, bara drykkja. Fólk hellir sig bara blindfullt, hagar sér eins og algjörir fávitar (og fremja að jafnaði glæpi í leiðinni) og gerir lífið almennt ömurlegt fyrir alla aðra.
Ég amk. læt ekki sjá mig niðri í bæ...Fyrir þá sem hafa ekki upplifað svona venjulega drykkjumenningu þá verðið þið bara að take my word for it.
Þetta er náttúrulega bara bundið við Ísland ...
Augljóslega fer fólk líka stundum á fillerí í útlöndum, en ég held að hann sé að meina það (og ég er sammála) að hér sé enginn raunveruleg svona "alvöru" áfengismenning, eða þar að segja að fólk sem að drekkur með öðrum gerir það bara fyrir áfengið. Ekkert spjall við annað fólk á börum eða neitt, bara út á lífið og síðan allir blindfullir.
Ef það er semi bannað að tala um áfengi opinberlega og þú mátt ekki koma nálægt þessu fyrr en allir eru löngu búnir að því þá er það sem gerist (svo þegar bindindisfólki er bent á þetta segir það að íslendingar séu ekki nógu agaðir eða eitthvað annað bullshit - þetta er svona hænan og eggið dæmi).
Fólk kíkir alveg í bjór (eða annað) saman bara til þess að hittast. Sumir kíkja á leik fá sér hamborgara og nokkra bjóra og aðrir fá sér bjór og spjalla. Þú sérð þetta vissulega ekki um helgar eftir miðnætti heldur á virkum dögum eftir kvöldmatarleytið, jú hlutfall útlendinga er eflaust hærra en um helgar og jú ef þú situr að sumbli þangað til barirnir loka þá muntu sjá ölvaða einstaklinga eða verða ölvaður. Það er samt ágætis róleg kráarstemmning á virkum dögum þar sem fólk sest niður og spjallar.
Um helgar eru náttúrulega "allir" á esinu að leita sér að slagsmálum, einhverju utan um hann eða í hana, það ástand er bara ekkert sérstaklega bundið við Ísland.
Menn verða hinsvegar að hafa í huga að hér eru menn að bera saman samfélag þar sem aðgengi að áfengi hefur líklegast alltaf verið takmarkað og neysla þess fyrirlitin opinberlega (bjórinn verður jú 25 ára eftir nokkar vikur) og samfélög þar sem neysla áfengis er svo gott sem jafngömul samfélögunum.
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Lau 15. Feb 2014 18:36
af Minuz1
Re: Er til eitthvað sem að heitir "kokteil bar" á Íslandi?
Sent: Mán 17. Feb 2014 17:57
af Viktor