Síða 1 af 1
Vesen með bílinn
Sent: Lau 01. Feb 2014 18:57
af Krissinn
Í gær kom rafgeymisljósið í mælaborðið og það logar nánast stanslaust og svo kemur svona eins og lágt væl/áreynsluhljóð úr húddinu. Ég hef ekki mikið vit á bílum þannig að ég veit ekkert hvað þetta gæti verið. Hinsvegar fór ég að velta því fyrir mér hvort þetta væri reimin við Alternator-inn, Ég skoðaði hana í dag og mér sýnist hún vera alveg strekkt en samt gefur hún örlítið eftir ef maður togar í hana. Bílinn startar alveg fullkomlega. Þetta er Nissan Almera 99 mdl. Hefur kannski einhver lent í svipuðu og jafnvel með eins bíl? Þeir sem hafa vit á svona löguðu mega endilega reply-a
Re: Vesen með bílinn
Sent: Lau 01. Feb 2014 19:03
af kizi86
hljómar eins og alternatorinn í bílnum sé farinn..
Re: Vesen með bílinn
Sent: Lau 01. Feb 2014 19:30
af demaNtur
Gæti verið að alternator sé búinn.. Ertu með græjur í bílnum? (As in bassabox, stóra hátalara eða annað sem tekur mikið rafmagn)
Myndi skjóta á að alternator sé byrjaður að hlaða of mikið
Re: Vesen með bílinn
Sent: Lau 01. Feb 2014 19:48
af Bjosep
Ef þú kemst yfir rafmagnsmæli þá gætirðu prufað að athuga spennuna á rafgeyminum meðan bíllinn er í gangi til þess að sjá hvort geymirinn hleður. Spennan ætti að vera 13-14 Volt meðan hann hleður (13,2 V minnir mig endilega), einhver ætti að geta staðfest þetta.
Ættir líka að fylgjast með rafalnum og sjá hvort reiminn er að snúa honum, ef ekki þá ertu kannski heppinn og þér nægir að skipta um reim.
Re: Vesen með bílinn
Sent: Lau 01. Feb 2014 20:12
af Arnþór
Farðu á youtube og finndu "how to diagnose a bad alternator". Þegar þú ert búinn að fullvissa þig um að hann sé í ólagi farðu þá á youtube og finndu "how to replace an alternator" og þegar þú ert búinn að því finndu þá notaðan alternator á partasölu og skiptu um kvikindið
Re: Vesen með bílinn
Sent: Lau 01. Feb 2014 20:34
af gullielli
Arnþór skrifaði:Farðu á youtube og finndu "how to diagnose a bad alternator". Þegar þú ert búinn að fullvissa þig um að hann sé í ólagi farðu þá á youtube og finndu "how to replace an alternator" og þegar þú ert búinn að því finndu þá notaðan alternator á partasölu og skiptu um kvikindið
á hann að finna notaðan alternator með að googla það svo ?
Re: Vesen með bílinn
Sent: Lau 01. Feb 2014 21:20
af sakaxxx
gullielli skrifaði:Arnþór skrifaði:Farðu á youtube og finndu "how to diagnose a bad alternator". Þegar þú ert búinn að fullvissa þig um að hann sé í ólagi farðu þá á youtube og finndu "how to replace an alternator" og þegar þú ert búinn að því finndu þá notaðan alternator á partasölu og skiptu um kvikindið
á hann að finna notaðan alternator með að googla það svo ?
það er best að bilanagreina bíl áðurenn maður fer að henda varahluti í hann.
Mæli með að kíkja með hann á
http://www.rafstilling.is ef alternatorinn er bilaður ég hef farið þangað tvisvar mæli með þeim!
Re: Vesen með bílinn
Sent: Sun 02. Feb 2014 02:43
af Sindri A
Brunaðu með bílinn til Kidda í Rafstillingu. Hann reddar þessu.
Re: Vesen með bílinn
Sent: Sun 02. Feb 2014 21:37
af Krissinn
demaNtur skrifaði:Gæti verið að alternator sé búinn.. Ertu með græjur í bílnum? (As in bassabox, stóra hátalara eða annað sem tekur mikið rafmagn)
Myndi skjóta á að alternator sé byrjaður að hlaða of mikið
Er ekki með svona aukadót nei :p
Re: Vesen með bílinn
Sent: Sun 02. Feb 2014 21:41
af Krissinn
Bílinn er nýkominn úr viðgerð, Og svona sólarhring eftir að ég sótti hann þá byrjaði ljósið að koma. Var að láta sjóða smá í hann. Er ekki rétt hjá mér að þá sé tekið rafgeymirinn úr á meðan? Vona að sá sem gerði við bílinn hafi gert það :/ En jú, það er líklegast rétt að þetta sé Alternator - inn :S. Skoðaði þetta betur í dag og þá kom þetta áreynsluhljóð að ég sterklega held frá honum
Svo virðist hann ekki hlaða neitt. Samt sem áður snýst reimin og þannig....
Re: Vesen með bílinn
Sent: Sun 02. Feb 2014 22:54
af Garri
krissi24 skrifaði:Bílinn er nýkominn úr viðgerð, Og svona sólarhring eftir að ég sótti hann þá byrjaði ljósið að koma. Var að láta sjóða smá í hann. Er ekki rétt hjá mér að þá sé tekið rafgeymirinn úr á meðan? Vona að sá sem gerði við bílinn hafi gert það :/ En jú, það er líklegast rétt að þetta sé Alternator - inn :S. Skoðaði þetta betur í dag og þá kom þetta áreynsluhljóð að ég sterklega held frá honum
Svo virðist hann ekki hlaða neitt. Samt sem áður snýst reimin og þannig....
Það er alveg valid spurning hvort eitthvað rafmagns hefur farið þegar soðið var í hann (rafsuða).. mundi inna þá á verkstæðinu eftir því hvort svo geti verið.
Re: Vesen með bílinn
Sent: Mán 03. Feb 2014 06:18
af littli-Jake
Hvar var verið að sjóða í bílinn? Svona hluti er æskilegt að taka fram í opnunarpósti ef þú vilt fá almenileg svör.
Re: Vesen með bílinn
Sent: Mán 03. Feb 2014 07:36
af Diddmaster
rafmagnd ljósið kveiknar þegar kolinn í altannatornum eru farinn bíllinn fer í gang af geimir og hann er greinilega góður e hættu að keira því geimar detta niður um 30-50% ef þú klárar útaf honum
Re: Vesen með bílinn
Sent: Mán 03. Feb 2014 08:57
af Krissinn
littli-Jake skrifaði:Hvar var verið að sjóða í bílinn? Svona hluti er æskilegt að taka fram í opnunarpósti ef þú vilt fá almenileg svör.
Áttaði mig á því, Var bara bent á þetta í gær, biðst afsökunar á því, Það var verið að sjóða í hann í skottinu.
Re: Vesen með bílinn
Sent: Mán 03. Feb 2014 08:59
af Krissinn
Diddmaster skrifaði:rafmagnd ljósið kveiknar þegar kolinn í altannatornum eru farinn bíllinn fer í gang af geimir og hann er greinilega góður e hættu að keira því geimar detta niður um 30-50% ef þú klárar útaf honum
Já ég skil. Ég fékk straum í gær inná geyminn. Vinur minn kom með startkapla og við dældum vel inná geyminn