Síða 1 af 1
Virkar verðsamkeppni á Íslandi?
Sent: Mið 29. Jan 2014 19:00
af hakkarin
Þegar maður heyrir fréttir af háu matvælaverði, hárri álagningu, verðsamráðum og fleiru að þá spyr maður sig hvort að verðsamkeppni virki eitthvað Íslandi?
Finnst þér að verðsamkeppnin á Íslandi virka vel?
Re: Virkar verðsamkeppni á Íslandi?
Sent: Mið 29. Jan 2014 19:19
af Eythor
hvaða verðsamkeppni?
Re: Virkar verðsamkeppni á Íslandi?
Sent: Mið 29. Jan 2014 19:20
af GuðjónR
Stutta svarið; Nei!
Re: Virkar verðsamkeppni á Íslandi?
Sent: Mið 29. Jan 2014 19:53
af Viktor
Hún hefur virkað ágætlega í tölvubransanum. Hins vegar er þetta svo lítill markaður að mikil einokun þrífst, oft í skjóli brenglaðs regluverks eins og til dæmis í leigubílarekstri.
Re: Virkar verðsamkeppni á Íslandi?
Sent: Mið 29. Jan 2014 19:55
af vesley
Sallarólegur skrifaði:Hún hefur virkað ágætlega í tölvubransanum. Hins vegar er þetta svo lítill markaður að mikil einokun þrífst, oft í skjóli brenglaðs regluverks eins og til dæmis í leigubílarekstri.
Góð samkeppni er í tölvubransanum varðandi einkanotkun en þau eru nú frekar fá fyrirtækin sem eiga meirihlutann í fyrirtækjasölu sem er aðal peningurinn.
Re: Virkar verðsamkeppni á Íslandi?
Sent: Mið 29. Jan 2014 19:56
af jonsig
nopz
Re: Virkar verðsamkeppni á Íslandi?
Sent: Fim 30. Jan 2014 13:17
af hakkarin
Er að pæla, er eitthver munnur á verðsamkeppni á nauðsynjum (matur, föt) og ónauðsynjum (leikir, sjónvörp)?
Re: Virkar verðsamkeppni á Íslandi?
Sent: Fim 30. Jan 2014 13:43
af blitz
Mér hefur alltaf fundist ótrúlegt hversu virk samkeppni er í tölvuíhlutum á Íslandi.
Gæti trúað því að síða eins og Vaktin eigi þar þátt.
Re: Virkar verðsamkeppni á Íslandi?
Sent: Fim 30. Jan 2014 15:32
af rapport
Það hefur verið talað um að samkeppni á matvörumarkaði sé aðallega í að redda lóðum undir verslanir = halda öðrum frá markaðinum.
Um leið og nýtt hverfi byggist þá er risin einhver verslun þar.
Það gefur líka auga leið að fjöldi stórverslana er mikill og að margar þeirra séu illa nýttar.
Einnig er raunin sú að fasteignafélögin sem eiga húsin eru í eigu sömu aðila sem tryggja að samkeppni komist ekki að.
Sbr. Gamlar Bónusverslanir, 10-11 verslanir, 11-11 verslanir sem fasteignafélögin leigja út á slikk t.d. úti á Seltjarnarnesi, þar er Tolli núna með gamla 10-11 verslun út af fyrir sig...
Útskýrir kannski af hverju Bónus seldi eftirprentanir eftir hann ein jólin...