Síða 1 af 2

Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 09:19
af sibbsibb
Að eignast barn er yndislegt algjörlega!
En að neyðast til að skipta fína bílnum sínum í station fjölskyldubíl er það aftur á móti ALLS EKKI!
Dettur ykkur eitthver fjölskyldulegurbíll í hug sem er ekki viðbjóður í útliti?
Er núna að keyra 2005 árgerð af Audi A4 og það er annsi þröngt aftur í í honum og svo er hann ekki alveg upplagður fyrir barnakerrur í skottið.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 09:24
af sakaxxx
ég mundi fara í toyota avensis eða honda accord allt góðir öruggir bílar sem bila lítið og eru nokkuð flottir

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 09:26
af I-JohnMatrix-I
Mig þykir nýlegir Subaru Legacy station mjög flottir, svo er alltaf hægt að fá sér touring dísel bmw :D

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 09:31
af blitz
Subaru Legacy, Toyota Avensis, Honda Accord, station útgáfur af hinu ýmsu BMW, Audi, M.Benz, Ford Mondeo, Kia Ceed o.fl. o.fl.

Svo er hægt að færa sig yfir í slyddujeppa og horfa t.d. á Nissan Qashqai

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 09:41
af GuðjónR
blitz skrifaði:Subaru Legacy, Toyota Avensis, Honda Accord, station útgáfur af hinu ýmsu BMW, Audi, M.Benz, Ford Mondeo, Kia Ceed o.fl. o.fl.

Svo er hægt að færa sig yfir í slyddujeppa og horfa t.d. á Nissan Qashqai


Í dag kosta þessir bílar eins og tveggja - þriggja herbergja íbúðir kostuðu fyrir nokkrum árum :(
Skoda Octacvia er góður kostur, ég myndi fá mér svonleiðis bíl ef ég ætti pening.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 10:06
af littli-Jake
Eitt sem að fólk virðist ekki spá migið í og það er hæðin á bílnum. Það er óendanlega þægilegt að þurfa ekki að vera að beigja sig inn í bílinn þegar þú ert að setja littla krúttið inn í bíl. Qashqai-inn er einmitt mjög þægilegur með þetta. Getur keirt hann í framhjóladrifinu að mestu, Leðurinnrétinginn á eftir að þola allt sullið og bröltið, nó pláss í skottinu fyrir stóra barnakerru plús dót, fínt að keira þetta og eyðslan ekki mikil. Er búinn að vera með svona bíl nokkrum sinnum með tvem strákum sem eru 1 og 4 ára. Fínasti fjölskildubíll.
Verðmunurinn á qashqainum og Octavíu ef við værum með álíka árgerð með svipaðan akstur og búnað er kanski 500-700K Finst það alveg þess virði þar sem mér finst þetta vera talsvert meiri og betri bíll

PS. Til hamingju með barnið

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 10:09
af appel
Eiga bara tvo bíla, einn family wagon og einn sportara.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 10:15
af blitz
Versta við Qashqai er að hann rúmar eiginlega ekki 4 manna fjölskyldu sem aðalbíll - hann er flottur svo lengi sem að það er bara eitt barn á heimilinu.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 10:39
af Gislinn
GuðjónR skrifaði:*snip*
Skoda Octacvia er góður kostur, ég myndi fá mér svonleiðis bíl ef ég ætti pening.


Ég er á Octaviu, ég kem tveimur barnavögnum í skottið á honum og á enn laust pláss. Skottið á þessum bílum eru svakalega stór, sem er mjög góður kostur því ég vill ekki vera með töskur og drasl í farþegarýminu, set allt drasl í skottið þ.a. ef eitthvað kemur uppá þá séu ekki smáhlutir og töskur á flugi út um allan bíl. :happy

Ég væri alveg til í að eiga einhvern stærri eða flottari bíl en ég myndi ekki nenna að borga af honum (og/eða bensín á hann), væri helst til í að sleppa því bara að vera með bíl. :-"

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 10:59
af cartman
Ég keypti Subaru Legacy Station Sport.

Frábær bíll, gott að vera með 4x4 og loftkælingu en hann eyðir slatta (er með beinskiptan 2.0 lítra vél)

En það er ágætis pláss í skottinu, amk nóg til að vera með Simo vagninn okkar.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 11:45
af demaNtur

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 11:55
af MatroX
demaNtur skrifaði:http://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=64700

Eina vitið

ekki á þessu verði!

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 15:00
af littli-Jake
blitz skrifaði:Versta við Qashqai er að hann rúmar eiginlega ekki 4 manna fjölskyldu sem aðalbíll - hann er flottur svo lengi sem að það er bara eitt barn á heimilinu.


Ef að Qashqai er ekki nægielga stór fyrir 4 manna fjölskildu er ég ekki að sjá að nokkur station bíll sé það heldur.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 15:18
af rapport
3,8L town and country... <2008

Call me klikk... it´s my dream...

Besti fjölskyldubíll ever.

p.s. börn og tauáklæði = no no...

Þú vilt geta þurrkað burt súkkulaðislef með tissjú úr ísbúðinni...

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 15:24
af blitz
littli-Jake skrifaði:
blitz skrifaði:Versta við Qashqai er að hann rúmar eiginlega ekki 4 manna fjölskyldu sem aðalbíll - hann er flottur svo lengi sem að það er bara eitt barn á heimilinu.


Ef að Qashqai er ekki nægielga stór fyrir 4 manna fjölskildu er ég ekki að sjá að nokkur station bíll sé það heldur.


Skottplássið í Qashqai er ekkert sérstaklega merkilegt.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 15:27
af AntiTrust
Hundabíllinn okkar, 2007 Octavia station. Mjög sáttur, var rosalega hissa hvað það var hægt að fá þessa bíla lítið ekna, nýlega og vel búna fyrir fair prís, svona miðað við hag og land. Nóg pláss og helvíti gott skott bara.

Annars er ég líka með 2008 Audi A6 sedan, ef ég ætlaði að fara yfir í drauma station þá væri það sami bíll bara station, hugsanlega Allroadinn. Nóg af plássi, skottið er huge, öruggir, þægilegir etc. Langt í frá að vera hagkvæmasti kosturinn svosem, en hagvæmt er því miður oftast = leiðinlegt.

Ef ég væri að kaupa mér nýjan station bíl útúr umboðinu í dag væri það nýja Mazda Sexan. Shit hvað sá bíll er fallegur.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 15:29
af littli-Jake
rapport skrifaði:3,8L town and country... <2008

Call me klikk... it´s my dream...

Besti fjölskyldubíll ever.

p.s. börn og tauáklæði = no no...

Þú vilt geta þurrkað burt súkkulaðislef með tissjú úr ísbúðinni...


Chrysler? Ef þú þarft þennan sætafjölda er hann ekkert verri en hver annar skutlbíll en hefuru keirt þetta dót?

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 15:30
af AntiTrust
littli-Jake skrifaði:Chrysler? Ef þú þarft þennan sætafjölda er hann ekkert verri en hver annar skutlbíll en hefuru keirt þetta dót?


Nokkuð viss um að hann eigi eitt svona stykki. Sem gerir það enn óskiljanlegra að hann mæli með honum :-"

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 15:30
af littli-Jake
blitz skrifaði:
littli-Jake skrifaði:
blitz skrifaði:Versta við Qashqai er að hann rúmar eiginlega ekki 4 manna fjölskyldu sem aðalbíll - hann er flottur svo lengi sem að það er bara eitt barn á heimilinu.


Ef að Qashqai er ekki nægielga stór fyrir 4 manna fjölskildu er ég ekki að sjá að nokkur station bíll sé það heldur.


Skottplássið í Qashqai er ekkert sérstaklega merkilegt.


Ég hef svosem ekki verið mikið með þannig bíl en ég kom barnakerrunni auðveldlega fyrir og það var alveg slatti af plássi eftir.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 15:33
af littli-Jake
AntiTrust skrifaði:
littli-Jake skrifaði:Chrysler? Ef þú þarft þennan sætafjölda er hann ekkert verri en hver annar skutlbíll en hefuru keirt þetta dót?


Nokkuð viss um að hann eigi eitt svona stykki. Sem gerir það enn óskiljanlegra að hann mæli með honum :-"


Er ekki alveg viss út af þessu It's my dream. Og eins og þú segir væri ílskiljanlegt að mæla með þessu ef maður hefur þurft að umgangast þetta dagsdaglega. En ef að fólk á mikið af börnum þarf það mikið af plássi og þá eru flestir þessir bílar svipaðir.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 15:42
af rapport
AntiTrust skrifaði:
littli-Jake skrifaði:Chrysler? Ef þú þarft þennan sætafjölda er hann ekkert verri en hver annar skutlbíll en hefuru keirt þetta dót?


Nokkuð viss um að hann eigi eitt svona stykki. Sem gerir það enn óskiljanlegra að hann mæli með honum :-"



Átti svona 2007 - 2010 sem ég keypti nýjan... sakna hans sárlega.

Bara fara og prófa svona bíl...

p.s. hafa hann 3,8L (ekki 3,3L), Chrysler en ekki Dodge og topplúga er eiginlega möst.

Gætir hugsanlega fundið 2,4L dísel Chrysler Voyager ef þú ert heppinn... hugsanlega hell að finna varahluti...

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Mán 27. Jan 2014 16:01
af gissur1
Volvo V70 R

Mynd

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Þri 28. Jan 2014 01:13
af littli-Jake
[quote="gissur1"]Volvo V70 R

Ég get reyndar stutt það :happy Virkilega fínir bílar. Snild að ganga um skottið á þessu

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Þri 28. Jan 2014 02:02
af Viktor
Myndi skoða Honda CR-V, ódýrir miðað við búnað og bila ekkert.

Re: Fjölskylda og bíll

Sent: Þri 28. Jan 2014 02:02
af bigggan
Ef þú vilt nýrri bilar þá er mazda mjög ofarlega sem Mazda CX-5 flottur jeppiling sem fær topp dóma á öllum stöðum.