Síða 1 af 1
Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Lau 25. Jan 2014 18:53
af hakkarin
Þegar þið farir út á lífið um helgar hvað drekkið þið mikið yfir kvöldið? Drekk sjálfur svona 3-4 bjóra og kanski eitthvað smá annað (skot, eða kokteil ef ég tími því). Er það mikið eða lítið? Hvað er algeng at fólk drekki á einu helgardjammkvöldi?
EDIT: Líka einn smá auka spurning. Hvað er það mesta sem að þú hefur eytt á einu djammi? Penningum meina ég.
Re: Hvað drekkur þú mikið á djamminu?
Sent: Lau 25. Jan 2014 18:53
af J1nX
Það er hrikalega misjafnt.. stundum drekk ég lítið sem ekkert og stundum þori ég ekki að kíkja á heimabankann daginn eftir djamm
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Lau 25. Jan 2014 19:06
af worghal
drekk ekki mikið því ég drekk fyrir bragið
Re: Hvað drekkur þið mikið á djamminu?
Sent: Lau 25. Jan 2014 19:08
af upg8
Það er misjafnt hvað fólk ræður vel við áfengi og það fer líka eftir því hversu vel það hefur nært sig fyrir djammið og hvort það sé vel sofið áður eða uppgefið. Sumir geta virkað blindfullir af tveimur bjórum. Það fer líka eftir því hvað þú drekkur yfir langt tímabil og hversu hratt, hversu mikið þú drekkur af vatni með og hvort þú borðar eitthvað meðan þú ert á djamminu. Þú verður að finna hvað þér finnst mátulegt hverju sinni og aldrei hlusta á félaga eða aðra sem hamast í þér að þú verðir nú að drekka meira, þó er æskilegt að hlusta á það gangstæða -ef félagarnir segja þér að þú sért búinn að drekka nóg þá er það oftast rétt hjá þeim
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Lau 25. Jan 2014 19:20
af aronthor
ég tek yfirlett kippu áður en ég fer í bæinn og svo kaupi ég 1-3 bjóra, þá er maður farin í sterkara, gin og tonic er mitt uppáhald þessa daga
ég hef eytt á einu kvöldi kringum 50þ og þá taxi included
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Lau 25. Jan 2014 19:30
af demaNtur
Á seinasta djammi sem ég tók þá fór ég með 116 þúsund niðrí bæ, ásamt taxa..
Nú er ég hættur að drekka og ekki búinn að reykja síðan byrjun árs..
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Lau 25. Jan 2014 19:31
af hakkarin
aronthor skrifaði:ég tek yfirlett kippu áður en ég fer í bæinn og svo kaupi ég 1-3 bjóra, þá er maður farin í sterkara, gin og tonic er mitt uppáhald þessa daga
ég hef eytt á einu kvöldi kringum 50þ og þá taxi included
Vá þetta er alveg soldið mikið. Færu engan timburmann? Og eitthvað hlýtur þú að vera ríkur ef þú getur eytt 50 þús á einu kvöldi á barnum.
demaNtur skrifaði:116 þúsund
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Lau 25. Jan 2014 19:40
af rango
hakkarin skrifaði:demaNtur skrifaði:116 þúsund
40 þúsund lægra enn það TR greiðir öryrkjum fyrir framfærslu á mánuð
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Lau 25. Jan 2014 19:55
af SIKk
rango skrifaði:hakkarin skrifaði:demaNtur skrifaði:116 þúsund
40 þúsund lægra enn það TR greiðir öryrkjum fyrir framfærslu á mánuð
Enda líka algjör algjör lágmarkskostnaður við að lifa, flestir öryrkjar og óvinnuhæft fólk hafa ekki peningana til að kaupa nokkuð annað en allra mestu nauðsynjar.
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Lau 25. Jan 2014 20:20
af bixer
.
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Lau 25. Jan 2014 20:26
af aronthor
hakkarin skrifaði:aronthor skrifaði:ég tek yfirlett kippu áður en ég fer í bæinn og svo kaupi ég 1-3 bjóra, þá er maður farin í sterkara, gin og tonic er mitt uppáhald þessa daga
ég hef eytt á einu kvöldi kringum 50þ og þá taxi included
Vá þetta er alveg soldið mikið. Færu engan timburmann? Og eitthvað hlýtur þú að vera ríkur ef þú getur eytt 50 þús á einu kvöldi á barnum.
jú ég verð rosalega þunnur, ég fer mjög sjaldan á djammið en tek það yfirlett með tromp þegar það gerist, ég græt ekki 50k, ég get ekki sett útá launin hjá mér
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Lau 25. Jan 2014 20:26
af aronthor
hakkarin skrifaði:aronthor skrifaði:ég tek yfirlett kippu áður en ég fer í bæinn og svo kaupi ég 1-3 bjóra, þá er maður farin í sterkara, gin og tonic er mitt uppáhald þessa daga
ég hef eytt á einu kvöldi kringum 50þ og þá taxi included
Vá þetta er alveg soldið mikið. Færu engan timburmann? Og eitthvað hlýtur þú að vera ríkur ef þú getur eytt 50 þús á einu kvöldi á barnum.
jú ég verð rosalega þunnur, hef það sem reglu að djamma bara á föstudögum þar sem ég tek yfirleitt 2 daga þynku og verð ferskur á mánudegi, ég fer mjög sjaldan á djammið en tek það yfirlett með tromp þegar það gerist, ég græt ekki 50k, ég get ekki sett útá launin hjá mér
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Lau 25. Jan 2014 22:58
af Lusifer
Hef aldrei fundið þennan server "Djamm" sem allir tala um. Annars er uppáhalds drykkurinn minn "virgin screwdriver pop" Appelsín!
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Sun 26. Jan 2014 00:17
af hakkarin
aronthor skrifaði:hakkarin skrifaði:aronthor skrifaði:ég tek yfirlett kippu áður en ég fer í bæinn og svo kaupi ég 1-3 bjóra, þá er maður farin í sterkara, gin og tonic er mitt uppáhald þessa daga
ég hef eytt á einu kvöldi kringum 50þ og þá taxi included
Vá þetta er alveg soldið mikið. Færu engan timburmann? Og eitthvað hlýtur þú að vera ríkur ef þú getur eytt 50 þús á einu kvöldi á barnum.
jú ég verð rosalega þunnur, hef það sem reglu að djamma bara á föstudögum þar sem ég tek yfirleitt 2 daga þynku og verð ferskur á mánudegi, ég fer mjög sjaldan á djammið en tek það yfirlett með tromp þegar það gerist, ég græt ekki 50k, ég get ekki sett útá launin hjá mér
Ekki að það komi mér neitt við, en hvað ertu með í laun?
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Sun 26. Jan 2014 00:35
af jonsig
Gæjin hljómar eins og typical sjómaður .
Ég drekk ekki meira en 4x bjóra því þá er ég out!
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Sun 26. Jan 2014 01:30
af rapport
Á seinustu öld drakk maður flösku af einhverjum viðbjóði tvö kvöld í röð og fór á barinn í bænum fyrir innan við 10þ.
Þá var hægt að fá 5 skot á 1500 kr á Wunderbar eða fötu af Corona fyrir sama pening ;-)
Þá man ég að ég var í byggingavinnu og fékk c.a 25þ. útborgað alla föstudaga og oft var ég orðinn blankur á mánudegi.
M.v. vísitölu þá væri þetta líklega 50-60þ. í dag.
Ég tók mér langa pásu frá djamminu eftir að hafa ítrekað lent í vandræðum og eitt kvöldið þegar l0ggan ávarpaði mig og þá sem ég var með, með nafni þá leið mér eins og róna = hætti á staðnum og drakk ekki dropa í rúmt ár og tók mig á og fór í skóla, varð pabbi og hellti mér út í lífið...
En núna eru börnin orðin eldri og maður getur leyft sér meira.
Ég hef t.d. aldrei orðið jafn þunnur og ég varð núna í nóvember, var í 50 afmæli á laugardegi og var þunnur fram á þriðjudag, líklega af reykingum frekar en víninu.
Fór seinustu helgi út að borða og svo á djammið = 50-60þ. fyrir okkur hjónin og inn í því var matur, tvær flöskur með matnum 20-24, nokkrir bjórar, kokteill og far heim.
Það var súper kvöld líka, bara djamm hefði líklega kostað helmingi minna ...
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Sun 26. Jan 2014 01:46
af Lunesta
of mikið.. og oof miklu
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Sun 26. Jan 2014 02:04
af Viktor
Ég er að taka svona 4-6 bjóra fyrir, 3-5 á meðan, og 1-2 á eftir.
demaNtur skrifaði:Á seinasta djammi sem ég tók þá fór ég með 116 þúsund niðrí bæ, ásamt taxa..
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Sun 26. Jan 2014 02:35
af MrSparklez
Eru allir hérna að tala um 330ml bjóra eða 500ml ?
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Sun 26. Jan 2014 03:49
af mercury
hmm fer nokk létt með 10 bjóra. er á 11 núna ef ég er að telja rétt. 500ml ofc.. annars er þetta voða misjafnt sjaldnast undir 8 áður en ég fer í bæinn I guess.
*edit* forðast að taka það saman hvað ég hef eytt mest á kveldi.... þegar ég var upp á mitt besta var kveldið stundum yfir 40k. og það var fyrir hrun, og þá er ég bara að tala um barinn.
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Sun 26. Jan 2014 04:43
af tdog
Eftir að hafa orðið mér of oft til skammar þá er ég farinn að koma mér heim um eitt, hálf tvö leytið. Ég fer bara á fyrirbyggjandi fyllerí og hætti bara þegar ég er búinn að fá mér kippu heima + fjóra bjóra á barnum.
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Sun 26. Jan 2014 10:15
af urban
Sallarólegur skrifaði:Ég er að taka svona 4-6 bjóra fyrir, 3-5 á meðan, og 1-2 á eftir.
demaNtur skrifaði:Á seinasta djammi sem ég tók þá fór ég með 116 þúsund niðrí bæ, ásamt taxa..
Það er bara sáraeinfalt að eyða 100þús kalli plús án þess að eyða krónu í ólögleg fíkniefni.
hvað ég gdrekk mikið er engan vegin hægt að taka saman.
stundum fæ ég mér 1 - 2 irish, skrepp á pöbbinn og fæ mér nokkra öl og einn á leiðinni heim.
stundum fæ ég mér 2 kippur áður, fer á pöbbinn og drekk 10 bjóra og kem gersamlega á hvolfi heim
önnur skipti drekk ég bara sterkt
hin skiptin fer ég bara og fæ mér 2 - 3 bjóra.
semsagt, allt eftir tilefni, stað og stund og hvernig liggur á mér.
hvað ég hef eytt miklu
tjahh ég tel það til djammsins.
dró einu sinni 3 aðra félaga mína á argentínu steikhús og reikningurinn þar var uppá rúman 180þús kall og þá var allt kvöldið eftir, yrði ekkert hissa á því að það kvöld hafi farið yfir 300 þús)
"einn" á djamminu, það er að segja bara eyða pening í mig ekki blæðandi hægri vinstri þá hef ég nú samt farið yfir 50 þús
En aftur á móti eyði ég svona þegar að ég hef efni á
almennt er það margfallt minna
Re: Hvað drekkið þið mikið á djamminu?
Sent: Sun 26. Jan 2014 11:39
af Hannesinn