Síða 1 af 1
Múllakaffi-Þorramatur
Sent: Mið 22. Jan 2014 20:10
af sunna22
Halló hafið þið prufað þorrabakkana (hjónakassana) hjá Múlakaffi. Eru þeir vel útlátnir, Hef heyrt að þorramaturinn hjá Múlakaffi sé mjög góður
Re: Múllakaffi-Þorramatur
Sent: Mið 22. Jan 2014 20:13
af lukkuláki
Hef ekki smakkað en þetta eru menn með gríðarlega reynslu þannig að ég myndi alveg treysta þeim hef aldrei heyrt neitt slæmt um Múlakaffi.
Re: Múllakaffi-Þorramatur
Sent: Fös 24. Jan 2014 02:03
af Viktor
Mæli með því að borða ekki skemmdan mat
Re: Múllakaffi-Þorramatur
Sent: Fös 24. Jan 2014 03:35
af Lusifer
Múlakaffi hefur aldrei klikkað, en mun kíkja á þessa bakka. Takk fyrir tipsið.
Re: Múllakaffi-Þorramatur
Sent: Fös 24. Jan 2014 11:24
af linenoise
Sallarólegur skrifaði:Mæli með því að borða ekki skemmdan mat
Nei, sammála. Ekki drekka rotnaðan byggsafa um helgar. Ekki fá þér mjólk sem hefur súrnað í morgunmat.
Og alls, alls ekki panta þér svokallaða "pizzu", sem er gerð þannig að bakteríur eru látnar skíta í hveiti og vatn. Drullan er svo flött út. Ofan á drulluna er svo oft sett mjólk sem er búið eyðileggja með ógeðslegum gerlum og niðursneidd pylsa sem oftar en ekki er búin að hanga svo lengi í þurrki að það myndast mygluhúð utan á henni.
Re: Múllakaffi-Þorramatur
Sent: Fös 24. Jan 2014 15:32
af Viktor
linenoise skrifaði:Sallarólegur skrifaði:Mæli með því að borða ekki skemmdan mat
Nei, sammála. Ekki drekka rotnaðan byggsafa um helgar. Ekki fá þér mjólk sem hefur súrnað í morgunmat.
Og alls, alls ekki panta þér svokallaða "pizzu", sem er gerð þannig að bakteríur eru látnar skíta í hveiti og vatn. Drullan er svo flött út. Ofan á drulluna er svo oft sett mjólk sem er búið eyðileggja með ógeðslegum gerlum og niðursneidd pylsa sem oftar en ekki er búin að hanga svo lengi í þurrki að það myndast mygluhúð utan á henni.
Sammála þessu líka.