Síða 1 af 1

Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 17:59
af jonsig
Núna er maður rukkaður 300kr fyrir að selja 1000kr vöru á bland . En á sama tíma er torðið auglýsingum uppí kok á manni á síðunni þeirra! Er einhver önnur sambærileg síða ? Ég er ekkert sáttur við svona svínarí ! :mad :mad :mad

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 18:03
af logih
braskogbrall.is

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 18:05
af tdog
jonsig skrifaði:Núna er maður rukkaður 300kr fyrir að selja 1000kr vöru á bland . En á sama tíma er torðið auglýsingum uppí kok á manni á síðunni þeirra! Er einhver önnur sambærileg síða ? Ég er ekkert sáttur við svona svínarí ! :mad :mad :mad

Af hverju finnst fólki svona sjálfsagt að allt sé fríkeypis? Á Bland voru fullt af ruglauglýsingum og allt í lagi að hafa smá þröskuld svo allt rati ekki inn.

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 18:08
af KermitTheFrog
tdog skrifaði:

Fínt I sjálfu sér, en leiðir þetta ekki bara til hærra söluverðs til að koma á móti þessum kostnaði?

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 18:08
af GuðjónR
jonsig skrifaði:Núna er maður rukkaður 300kr fyrir að selja 1000kr vöru á bland . En á sama tíma er torðið auglýsingum uppí kok á manni á síðunni þeirra! Er einhver önnur sambærileg síða ? Ég er ekkert sáttur við svona svínarí ! :mad :mad :mad

Allskonar grúppur á facebook ... og svo ástkæra http://www.spjallid.is :happy

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 18:13
af tdog
KermitTheFrog skrifaði:
tdog skrifaði:
jonsig skrifaði:Núna er maður rukkaður 300kr fyrir að selja 1000kr vöru á bland . En á sama tíma er torðið auglýsingum uppí kok á manni á síðunni þeirra! Er einhver önnur sambærileg síða ? Ég er ekkert sáttur við svona svínarí ! :mad :mad :mad

Af hverju finnst fólki svona sjálfsagt að allt sé fríkeypis? Á Bland voru fullt af ruglauglýsingum og allt í lagi að hafa smá þröskuld svo allt rati ekki inn.

Fínt I sjálfu sér, en leiðir þetta ekki bara til hærra söluverðs til að koma á móti þessum kostnaði?

Grætur þú 300 krónurnar?

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 18:16
af Yawnk

Finnst þér rétt að þeir rukki þig 30% 'sölulaun' af 1000 kr vöru t.d?

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 18:20
af tdog
Verðlagning er frjáls svo lengi sem eftirspurn bjóði upp á það, og 300kr fyrir að selja bíl? En mér finnst allt í lagi að vita til þess að fólk sé rukkað 300 kr fyrir auglýsingu, svo maður sé ekki alltaf að hringja í fólk sem er ekki að selja örbylgjuofna ódýrt gegn því að vera sóttir osfrv.

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 18:23
af intenz
tdog skrifaði:Verðlagning er frjáls svo lengi sem eftirspurn bjóði upp á það, og 300kr fyrir að selja bíl? En mér finnst allt í lagi að vita til þess að fólk sé rukkað 300 kr fyrir auglýsingu, svo maður sé ekki alltaf að hringja í fólk sem er ekki að selja örbylgjuofna ódýrt gegn því að vera sóttir osfrv.

Ekki 300 kr. fyrir bíla. Lestu verðskránna:
https://bland.is/pers/pricetable.aspx

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 18:37
af jonsig
tdog skrifaði:Verðlagning er frjáls svo lengi sem eftirspurn bjóði upp á það, og 300kr fyrir að selja bíl? En mér finnst allt í lagi að vita til þess að fólk sé rukkað 300 kr fyrir auglýsingu, svo maður sé ekki alltaf að hringja í fólk sem er ekki að selja örbylgjuofna ódýrt gegn því að vera sóttir osfrv.

Ég hef verið sammála þér í svona 90% af póstunum þínum gegnum tíðina en núna ertu ekki að fatta að bland er auglýsingasíða dauðans .

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 18:38
af worghal
GuðjónR skrifaði:
jonsig skrifaði:Núna er maður rukkaður 300kr fyrir að selja 1000kr vöru á bland . En á sama tíma er torðið auglýsingum uppí kok á manni á síðunni þeirra! Er einhver önnur sambærileg síða ? Ég er ekkert sáttur við svona svínarí ! :mad :mad :mad

Allskonar grúppur á facebook ... og svo ástkæra http://www.spjallid.is :happy

það væri hræðilegt ef allt fólkið af bland mundi rata hingað :klessa

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 18:39
af tdog
Það er þá kannski spurning um að setja lágmarks póstafjölda til að geta sett inn auglýsingu Ef það gerist.

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 18:42
af jonsig
worghal skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
jonsig skrifaði:Núna er maður rukkaður 300kr fyrir að selja 1000kr vöru á bland . En á sama tíma er torðið auglýsingum uppí kok á manni á síðunni þeirra! Er einhver önnur sambærileg síða ? Ég er ekkert sáttur við svona svínarí ! :mad :mad :mad

Allskonar grúppur á facebook ... og svo ástkæra http://www.spjallid.is :happy

það væri hræðilegt ef allt fólkið af bland mundi rata hingað :klessa

Við vaktarar erum bara önnur týpa af geðklofum , en í grunnin erum við öll eins .

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 19:05
af hordur
ný síða www.kjarakaup.is

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 19:56
af KermitTheFrog
tdog skrifaði:Grætur þú 300 krónurnar?

Alls ekki. Þetta er engan vegin spurning um upphæðina. En ef þú setur inn auglýsingu á Bland þá eru þessar 300 kr. ekki endilega eini kostnaðurinn ef þú ætlar að selja vöruna. Þarft að greiða fyrir að bumpa, hvað þarftu að gera það oft?

Þetta er allavega ástæðan fyrir því að ég hætti að nota bland.is

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 20:17
af rapport
Þetta er orðið fok dýrt...

Shit...

Mun frekar nota e-h af þessu:

Spjall.vaktin.is
Haninn.is
Partalistinn.net
braskogbrall.is
4sale.is

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 20:23
af Baraoli
Maður á bara að sniðganga þetta með því að hafna boðum og ganga frá kaupum í gegnum skilaboð.
Færð enga rukkun ef þú "selur" aldrei neitt:p

Re: Helvítins bland.is

Sent: Þri 21. Jan 2014 20:36
af GuðjónR
Baraoli skrifaði:Maður á bara að sniðganga þetta með því að hafna boðum og ganga frá kaupum í gegnum skilaboð.
Færð enga rukkun ef þú "selur" aldrei neitt:p

Kemst ekkert upp með það, þú þarft að gefa upp kennitölu og reikningsnúmer til að setja inn auglýsingu.
Svo senda þeir kröfu á þig í heimabankann.

Re: Helvítins bland.is

Sent: Fim 23. Jan 2014 18:21
af Sidious
Er ég að missa af einhverju? Ég gat allavega sett inn auglýsingu í tölvuleikir án þess að greiða neitt sérstaklega fyrir það, núna rétt í þessu.

Re: Helvítins bland.is

Sent: Fim 23. Jan 2014 18:47
af jonsig
Ég var rukkaður við að selja dót í raftækjum . Þeir buðu mér að fá send regluleg auglýsinga spömm til þess að fella niður söluþóknunina , ef ég fæ ekkert í staðin fyrir kúk í fésið þá er ég farinn .

Re: Helvítins bland.is

Sent: Fim 23. Jan 2014 21:07
af C3PO
Búið að skemma þessa síðu. Orðin hægvirk. Mundi aldrei treysta þessum gæjum fyrir kennitöluni minni àsamt bankanúmeri.

Re: Helvítins bland.is

Sent: Fim 23. Jan 2014 22:30
af MrSparklez
Úff hvað ég sakna þess þegar þetta var bara Barnaland.is og Er.is, einfalt að uppa, kostaði ekki neitt. Er orðið alltof flókið núna.

Re: Helvítins bland.is

Sent: Fim 23. Jan 2014 22:40
af Yawnk
Ég er alveg hættur að auglýsa þarna og fer eiginlega varla inná síðuna lengur, þeir geta bara átt sig og sitt peningaplokk áfram, ég tek bara ekki þátt í því :catgotmyballs

Re: Helvítins bland.is

Sent: Fös 24. Jan 2014 00:32
af Hrotti
eiga þessar rukkanir ekki bara við ef að menn eru með uppboð ? ég get amk alveg skráð auglýsingu fyrir ekki neitt svo lengi sem að ég haka við "Nei takk, ég vil enga þjónustu á auglýsinguna mína"

Re: Helvítins bland.is

Sent: Fös 24. Jan 2014 12:51
af jonsig
Ég setti inn standard auglýsingu í tv-og hljóð flokkinn þeirra . Græjan átti að kosta 5000kr en ég gat ekki virkjað auglýsingu fyrr en ég var búinn að skrá mig í eitthvað netgíró dæmi eða þá gefa upp kortanúmer sem núna verður gjaldfært í hvert einasta skipti sem ég sel eitthvað . Ég kann ekki við að "hætta við sölu" til að komast hjá rukkun því maður vill hafa gott sölu repp þarna !