Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 19:30
af hakkarin
Var að pæla, fólk sem að niðurhalar/torrentar hundruðum GB af efni á mánuði, hvað gerir fólk eiglega við þetta? Varla getur það horft/hlustað/spilað þetta allt saman á einum mánuði?
Er þetta ekki bara fíkn? Sé engar praktíska ástæðu fyrir því að þurfa að niðurhala svona mikið í einum mánuði. Er að spyrja að því að fokking meðleigjandi minn er búinn að eyða næstum 100GB af 150GB mánaðarlega niðurhalinu okkar nú þegar...
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 19:32
af worghal
flestir eru að ná í heilu seríurnar og margir sömu seríurnar í hd. þannig geri ég þetta allavega
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 19:34
af Hnykill
Ég myndi telja það jú.. að þetta væri svona söfnunarfíkn.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 19:41
af Sydney
Hnykill skrifaði:Ég myndi telja það jú.. að þetta væri svona söfnunarfíkn.
100 gig eru ekki nema 6 eða 7 full HD bíómyndir. Ég horfi á meira en 7 bíómyndir í mánuði.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 19:44
af Hvati
HD myndefni er fljótt að safnast upp á milli kvikmynda og þátta. Má ekki gleyma tölvuleikjum heldur, margir hverjir um 7+ GB í stærð. Annars kemur nú fyrir að maður er að sækja meira en maður er að horfa á.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 19:50
af razrosk
1 TB þarf að fara koma í stað 100 GB pakkann (sé ekki að Ísland bjóði uppá Unlimited traffic) - Stærð á t.d. leikjum og bíómyndum er bara alls ekki eins og það var í gamla daga...
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 19:53
af HalistaX
Var einmitt að klára að downloada öllu Desperate Housewives....because i can! Á líklega eftir að horfa á fyrstu tvo þættina og eyða því svo.
Þetta er algjör fíkn. Ég þarf alltaf að hafa eitthvað í gangi í µTorrent, annars er ég ómögulegur. Annars sæki ég svona 200-300 gb í mánuði, allt af deildu síðunni. Búinn að sækja pretty much allt það sem ég hef áhuga á að horfa á/spila og er byrjaður að sækja dót bara til að sækja það, eins og Despós t.d.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 20:22
af appel
Þetta er fíkn. Maður stundaði þetta einu sinni, en maður nennir þessu ekki lengur, horfi bara á nokkra þætti á mánuði, innan við 10x40 mín. Hinsvegar horfi ég tiltölulega mikið á youtube af allskonar dóti, það er ógrynni þar og mun áhugaverðara stundum, t.d. núna er ég að horfa á dót sem tengist Mars, niðurstöðum frá Curiosity, heimildarþáttum, viðtölum, ráðstefnur og allskonar dót. Mjög fróðlegt, ekki eitthvað sem maður fengi annarsstaðar frá.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 20:26
af hakkarin
Hvati skrifaði:HD myndefni er fljótt að safnast upp á milli kvikmynda og þátta. Má ekki gleyma tölvuleikjum heldur, margir hverjir um 7+ GB í stærð. Annars kemur nú fyrir að maður er að sækja meira en maður er að horfa á.
Held samt að mikið af fólki nái ekki í neitt myndefni í HD. Ég geri það til dæmis ekki vegna þess hversu mikið pláss það tekur og vegna þess að það tekur lengur að downloada því. Ég vill frekar hafa plás fyrir 10 myndir í SD frekar heldar en bara 1 í HD.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 20:29
af tveirmetrar
100-150gb í leiki og það sem þú finnur ekki á deildu, s.s. hljóðbækur, heimildarmyndir og svoleiðis...
HD myndefni tekur maður nú bara í gegnum Deildu. Finnst 150gb vera alveg passlegt á meðan deildu er uppi.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 20:52
af BugsyB
ég er kominn til vodafone með 250gb og ég þarf að nota Hide mY ass vpn serverin reglulega til að passa gagnamagnið - ég ætla skipta aftur yfir til hringdu þeir eru miklu meira libo á gagnamagni - ég er kominn upp í 150+ nú þegar - ég downloada ekki svo miklu en er með netflix og hulu og nokkur börn sem kunna á þetta og með ipad og usa dns á router. fljótt að koma
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 21:01
af hakkarin
BugsyB skrifaði:ég er kominn til vodafone með 250gb og ég þarf að nota Hide mY ass vpn serverin reglulega til að passa gagnamagnið
Bíddu nú aðeins við, ertu að segja að hide my ass komi í veg fyrir að vodaphone viti að maður sé að downloada?
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 21:06
af bigggan
hakkarin skrifaði:
BugsyB skrifaði:ég er kominn til vodafone með 250gb og ég þarf að nota Hide mY ass vpn serverin reglulega til að passa gagnamagnið
Bíddu nú aðeins við, ertu að segja að hide my ass komi í veg fyrir að vodaphone viti að maður sé að downloada?
Já.
Annars er til fleiri aðillar, bara google vpn + iceland og þú ferð fullt af þjónustuleiðir.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 21:12
af hakkarin
bigggan skrifaði:

Þarf ekkert að borga fyrir þetta?
EDIT: Annars þegar í spái útt í þetta núna, er þetta ekki eiglega bannað? Eða í það minsta ósiðlegt? Það er væntanlega verið að svindla á vodaphone með þessu.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 21:19
af Hnykill
Þetta er eins og með snjókornið, sem vill ekki taka á sig ábyrgðina með snjóflóðið. þið eruð að stela efni strákar.. hvernig sem þið viljið horfa á þetta.. þið eruð þjófar og eruð að stela efni !
Þið eruð bara þjófar að stela.. ekkert annað :/
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 21:21
af worghal
hakkarin skrifaði:
Hvati skrifaði:HD myndefni er fljótt að safnast upp á milli kvikmynda og þátta. Má ekki gleyma tölvuleikjum heldur, margir hverjir um 7+ GB í stærð. Annars kemur nú fyrir að maður er að sækja meira en maður er að horfa á.
Held samt að mikið af fólki nái ekki í neitt myndefni í HD. Ég geri það til dæmis ekki vegna þess hversu mikið pláss það tekur og vegna þess að það tekur lengur að downloada því. Ég vill frekar hafa plás fyrir 10 myndir í SD frekar heldar en bara 1 í HD.
mér er sama um hraðann á torrentinu og hversu fljótt ég fæ hlutina, bara svo lengi sem allt er í hd. allveg ómögulegt að horfa á non hd dót í sjónvarpinu
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 21:22
af bigggan
hakkarin skrifaði:
bigggan skrifaði:
hakkarin skrifaði:
BugsyB skrifaði:ég er kominn til vodafone með 250gb og ég þarf að nota Hide mY ass vpn serverin reglulega til að passa gagnamagnið
Bíddu nú aðeins við, ertu að segja að hide my ass komi í veg fyrir að vodaphone viti að maður sé að downloada?
Já.
Annars er til fleiri aðillar, bara google vpn + iceland og þú ferð fullt af þjónustuleiðir.
Þarf ekkert að borga fyrir þetta?
EDIT: Annars þegar í spái útt í þetta núna, er þetta ekki eiglega bannað? Eða í það minsta ósiðlegt? Það er væntanlega verið að svindla á vodaphone með þessu.
Nei þetta er ekki ólöglegt, það kostar nokkur hundraðkalla á mánuði að nota þjónustuni, mapur er ekki að svindla á vódafone, vegna þess "ummferðin" fer um 3ja aðilla aður enn það fer inn i kerfi vodafone og skráist sem íslensk umferð.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 21:23
af bigggan
Hnykill skrifaði:Þetta er eins og með snjókornið, sem vill ekki taka á sig ábyrgðina með snjóflóðið. þið eruð að stela efni strákar.. hvernig sem þið viljið horfa á þetta.. þið eruð þjófar og eruð að stela efni !
Þið eruð bara þjófar að stela.. ekkert annað :/
Siðast ég vissi er ekki Netflix og Youtube að "stela efni" heldur ekki steam þar sem 1 leikur getur verið 40 GB:
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 21:35
af worghal
Hnykill skrifaði:Þetta er eins og með snjókornið, sem vill ekki taka á sig ábyrgðina með snjóflóðið. þið eruð að stela efni strákar.. hvernig sem þið viljið horfa á þetta.. þið eruð þjófar og eruð að stela efni !
Þið eruð bara þjófar að stela.. ekkert annað :/
nei, þeir eru þjófar að rukka OUT THE ASS en ekki bjóða okkur þær þjónustur sem við VILJUM borga fyrir. allt að 5þúsund krónur fyrir lélegann blu-ray disk framleiddann af senu með engu á sér. nei takk! 3þúsund fyrir dvd með bókstaflega engu nema lélegum íslenskum texta og engu auka með cover prentað með dot matrix prentara á tannlæknastofu!? fokk. nei.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 21:41
af AntiTrust
hakkarin skrifaði:Held samt að mikið af fólki nái ekki í neitt myndefni í HD. Ég geri það til dæmis ekki vegna þess hversu mikið pláss það tekur og vegna þess að það tekur lengur að downloada því. Ég vill frekar hafa plás fyrir 10 myndir í SD frekar heldar en bara 1 í HD.
Kjaftæði. Flestir sem ég þekki og eru datahoarders eins og ég sækja/horfa nánast ekki á neitt nema það sé í HD. HDTV rippin sleppa með suma sitcoms en bíómyndir þurfa að vera í HighBitrate + Dolby/DTS 720/1080p til þess að ég nenni að svo mikið sem líta við því. SD bíómynd á 50"+ er bara ólíðandi. Tekur mig um 8-12mínútur að sækja 1080p mynd (7-10GB), sem tekur um 0.001% af heildarplássinu mínu.
hakkarin skrifaði:Bíddu nú aðeins við, ertu að segja að hide my ass komi í veg fyrir að vodaphone viti að maður sé að downloada? Þarf ekkert að borga fyrir þetta?
EDIT: Annars þegar í spái útt í þetta núna, er þetta ekki eiglega bannað? Eða í það minsta ósiðlegt? Það er væntanlega verið að svindla á vodaphone með þessu.
Ekki bannað, ósiðlegt né svindl. Það sem væri ósiðlegt er ef ISP-ar færu að reyna að koma í veg fyrir slíkar þjónustur. VPN eru fyrst og fremst til þess að fela sig á netinu, aukið gagnamagn er bara tiltölulega nýbættur við bónus.
Hnykill skrifaði:Þetta er eins og með snjókornið, sem vill ekki taka á sig ábyrgðina með snjóflóðið. þið eruð að stela efni strákar.. hvernig sem þið viljið horfa á þetta.. þið eruð þjófar og eruð að stela efni !
Allt þjónustur sem bjóða upp á myndefni, flestar í HD. í 1080p/DTS gæðum (sem er bara must fyrir bíómyndir IMHO) þá geturu farið upp í 16GB per mynd, já eða 30GB fyrir LOTR Extended útgáfu, sem dæmi. Ekki vera svona fljótur að þjófkenna stórnotendur. Meðalfjölskylda með 2-3 Netflix notendur eru helvíti fljótir að klára 250GB.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 21:43
af verba
HD efni og tölvuleikir þá er 100GB ekki neitt. Það dugar til að mynda aðeins fyrir 2-3 PS4 tölvuleikjum.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 22:08
af bigggan
AntiTrust skrifaði:
hakkarin skrifaði:snip
Lika er VPN notað mjög oft til að tengjast innranet fyrirtækin öruggara enn á nota venjuleg innskráningu.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 22:27
af AntiTrust
bigggan skrifaði:
AntiTrust skrifaði:
hakkarin skrifaði:snip
Lika er VPN notað mjög oft til að tengjast innranet fyrirtækin öruggara enn á nota venjuleg innskráningu.
Rétt, það á samt ekki við um VPN tengingar sem HMA og aðrar þjónustur eru að bjóða uppá.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 22:36
af hakkarin
worghal skrifaði:nei, þeir eru þjófar að rukka OUT THE ASS en ekki bjóða okkur þær þjónustur sem við VILJUM borga fyrir.
Ef að þú færð ekki þá þjónustu sem að þú vilt, af hverju þá ekki bara að sleppa því að versla við viðkomandi? Ef að þú skrifar undir samning þar sem að þú borgar X mikið á mánuði fyrir X mikið gagnamagn og þú svindlar með því að nota svona VPN til að downloada endalaust að þá ertu að scama netfyrirtækið þitt. Burt séð frá því hvort að þetta sé eða sé ekki bannað samkvæmt lögum að þá er þetta ósiðlegt. Það að segja að maður "eigi það bara skilið að fá þetta og þar að leiðandi sé þetta í lagi" er bara frekja.
Re: Fólk sem að downloadar hundruðum GB á mánuði...fíkn?
Sent: Þri 07. Jan 2014 22:39
af KermitTheFrog
hakkarin skrifaði:
worghal skrifaði:nei, þeir eru þjófar að rukka OUT THE ASS en ekki bjóða okkur þær þjónustur sem við VILJUM borga fyrir.
Ef að þú færð ekki þá þjónustu sem að þú vilt, af hverju þá ekki bara að sleppa því að versla við viðkomandi? Ef að þú skrifar undir samning þar sem að þú borgar X mikið á mánuði fyrir X mikið gagnamagn og þú svindlar með því að nota svona VPN til að downloada endalaust að þá ertu að scama netfyrirtækið þitt. Burt séð frá því hvort að þetta sé eða sé ekki bannað samkvæmt lögum að þá er þetta ósiðlegt. Það að segja að maður "eigi það bara skilið að fá þetta og þar að leiðandi sé þetta í lagi" er bara frekja.
Fjarskiptafyrirtækin tapa nákvæmlega engu á þessu. Það skiptir þá engu máli hvort þú sækir 500MB eða 500GB yfir mánuðinn. Það eru þeir sem eru að svindla á þér með þetta gagnamagnsgjald.