Síða 1 af 2

Nýlenda á Mars?

Sent: Mán 06. Jan 2014 22:13
af appel
Þessir vilja senda menn til Mars, til þess búa til nýlendu og búa þar til æviloka.

http://www.mars-one.com/

Hmmm....

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Mán 06. Jan 2014 22:19
af Kristján
eða þangað til það er fundið upp eitthvað skip sem kemst báðar leiðir, sem verður klárlega eftir einhver ár.

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Mán 06. Jan 2014 22:35
af GuðjónR
Draumórar hjá þeim...

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Mán 06. Jan 2014 23:07
af Bjosep
appel skrifaði:[...] og búa þar til æviloka.

Pun intended ...

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Mán 06. Jan 2014 23:30
af Yawnk
Ætli það sé ekkert erfitt að finna menn sem vilja fara frá öllu hér á jörðinni og fara að búa á Mars til æviloka? :-"

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Mán 06. Jan 2014 23:51
af razrosk

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Mán 06. Jan 2014 23:54
af appel
Yawnk skrifaði:Ætli það sé ekkert erfitt að finna menn sem vilja fara frá öllu hér á jörðinni og fara að búa á Mars til æviloka? :-"

Held að best væri að senda eldra fólk, kannski kringum 55-65 ára aldurinn, en auðvitað hraust. Ástæðan fyrir því er kannski augljós, þú vilt ekki endilega senda 20 ára gamlan einstakling til Mars ef hann sér fram á eymdarlíf á plánetunni næstu 50 árin, en önnur helsta ástæðan er sú að gamalt fólk þarfnast eins mikillar orku (matar) og er betur fallið til þess að fá á sig geislun, því sökum aldurs er ólíklegt að geislun valdi krabbameini eftir 15-20 ár, það verður líklega dáið af öðrum orsökum áður.

En það er nóg framboð af fólki sem er til í að fara, spurningin er bara að velja rétta einstakling og mynda saman réttan hóp sem kemur sér vel saman og vinnur vel saman.

Allavega, ég er alveg orðinn dolfallinn fyrir Mars-nýlendu. Held að þetta sé mjög áhugavert, en tel að þetta þurfi að vera miklu stærra dæmi en það sem Mars One er að skipuleggja. Ég myndi vilja senda allavega 8 manns strax í fyrstu ferð, með markmið að koma á fót aðstöðu fyrir allavega 12-20 manns í viðbót eftir 2-3 ár. Best væri að þetta væri alþjóðlegt samstarfsverkefni ýmissa landa í samvinnu við einkaframtakið, stuðning frá fyrirtækjum og svona.

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Mán 06. Jan 2014 23:54
af HalistaX
Yawnk skrifaði:Ætli það sé ekkert erfitt að finna menn sem vilja fara frá öllu hér á jörðinni og fara að búa á Mars til æviloka? :-"

Það er örugglega easy-peasy.. Myndir þú ekki vilja vera einn af þeim fyrstu til þess að búa á mars?

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Mán 06. Jan 2014 23:55
af Gunnar

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Mán 06. Jan 2014 23:56
af appel
HalistaX skrifaði:
Yawnk skrifaði:Ætli það sé ekkert erfitt að finna menn sem vilja fara frá öllu hér á jörðinni og fara að búa á Mars til æviloka? :-"

Það er örugglega easy-peasy.. Myndir þú ekki vilja vera einn af þeim fyrstu til þess að búa á mars?

Þetta er rosaleg áhætta. Myndi segja að það séu 50-60% líkur á að þú drepist innan 1-2 ára.

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 00:05
af slapi
http://www.youtube.com/watch?v=sy0c-EfRhOA

Mæli með að menn horfi á þetta.
Samvkæmt þessu hafa Bandaríkjamenn löngu verið komnir á Mars
Reyndar svolítið langdregin en ágætlega þess virði að sjá þessa þar sem ýmsir tæknilegar hliðar koma inní þetta

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 02:36
af Xovius

Jú, ég er þarna einhversstaðar :D

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 10:03
af Gislinn
Fyrir ári síðan var óskað eftir umsækjendum, u.þ.b. 200 þúsund umsækjendur sóttu um en 1058 einstaklingar komust áfram í umsóknarferlinu. Áætlað er að fjórir af þessum 1058 einstaklingum fari til Mars í fyrstu mönnuðu ferðinni eftir 10 ár (2024).

Xovius skrifaði:Jú, ég er þarna einhversstaðar :D

Þú hefur þá líklegast ekki komist áfram, því annars værir þú á þessum lista.

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 10:33
af GuðjónR
Bara að spá...af hverju fara þeir sem fengu þessa „frábæru“ hugmynd ekki sjálfir?

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 10:41
af muslingur
Fá svaka mikinn péning fyrir að vera á mars.. geta keypt sér .. æ já

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 12:15
af appel
Þetta er gerlegt, en áhættusamt. Til þess að minnka áhættu þyrfti þetta að kosta óhóflega mikið, en í samanburði við margt annað, t.d. hernaðarbrölt, þá er þetta gáfulegri sóun á peningum.

Maður vill helst bara sjá sjónvarpsþættina fyrst, það myndi duga mér :)

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 12:22
af vesley
appel skrifaði:Þetta er gerlegt, en áhættusamt. Til þess að minnka áhættu þyrfti þetta að kosta óhóflega mikið, en í samanburði við margt annað, t.d. hernaðarbrölt, þá er þetta gáfulegri sóun á peningum.

Maður vill helst bara sjá sjónvarpsþættina fyrst, það myndi duga mér :)

Hugsa að það væri ekki alvitlaust að fá fyrirtæki/auðjöfra til að sponsa þetta. Áhugi almennings á svona verkefni verður gríðarlegur á heimsvísu þegar þetta byrjar og ef fyrirtækin sem sponsora þetta mikið prósentulega séð fá auglýsingu í staðinn er það mjög öflug auglýsing.

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 14:10
af appel
Ég held að mesta mótstaðan við þetta, ef kalla má mótstöðu, er skilningsleysi á því að Mars er innan seilingar. Fyrir 50-100 árum síðan hefði þetta verið ómögulegt og fáránlegt að tala um, en í dag er tæknin til staðar. Stjórnmálamenn hafa bara annað að gera og hugsa um. Þeir vilja frekar eyða trilljón dollurum í herþotuþróun heldur en eitthvað svona ævintýri.

Annað áhugavert er að það myndi taka 1000 ár að gera loftþrýstingin á Mars nægilega mikinn svo menn þurfi ekki að vera í geimbúning með loftþrýstingi í, heldur bara súrefnishjálm og búning til varnar öðru. Auk þess myndi þykkari lofthjúpur draga verulega úr geimgeislun. Þ.e. það tæki bara 1000 ár að terraforma Mars á þann veg að mun einfaldara væri að búa þar.
Til að setja þessi 1000 ár í samhengi þá er það jafn langur tími og Ísland hefur verið byggt, augnablik í mannkynssögunni.

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 14:41
af Stutturdreki
appel skrifaði:Þetta er gerlegt, en áhættusamt. Til þess að minnka áhættu þyrfti þetta að kosta óhóflega mikið, en í samanburði við margt annað, t.d. hernaðarbrölt, þá er þetta gáfulegri sóun á peningum.

Já.. sóum aðeins meiri pening í geim stuff
Mynd

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 15:01
af urban
Stutturdreki skrifaði:
appel skrifaði:Þetta er gerlegt, en áhættusamt. Til þess að minnka áhættu þyrfti þetta að kosta óhóflega mikið, en í samanburði við margt annað, t.d. hernaðarbrölt, þá er þetta gáfulegri sóun á peningum.

Já.. sóum aðeins meiri pening í geim stuff
[img]https://fbcdn-sphotos-d-a.akamaihd.net/hphotos-ak-prn1/1512695_733498223337858_1111040520_n.jpg[./img]

Þetta á einmitt líka við um peninga sem að er "sóað" í hernaðarbrölt.
í fyrsta lagi verið til tækni sem að síðar er notuð af almenningi.
og í öðru lagi þá er ekki farið og kveikt í peningunum, peningarnir fara aftur út í efnahagslífið. (eða megnið af þeim)

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 15:11
af appel
urban skrifaði:

Ég held að geim-tæknin sem er þróuð sé mun gagnlegri en hernaðarbröltstækni. En það er rétt hjá þér, hagkerfið, skattpeningar og svona þetta er bara í hringrás, stjórnvöld ráða því í hvaða farveg peningarnir fara.

Þetta er bara spurning um hvort gagnast mannkyninu meira, stríðsbúnaðarvæðing eða nýlenda á Mars, og þá meina ég í aðeins stærra samhengi. Við getum borið Víetnam-stríðið saman við Apollo-tunglferðina, sem áttu sér stað á sama tíma. Þegar jarðarbúar líta til baka þá er ljóst að Víetnam stríðið voru meiriháttar mistök, en enginn segir að Apollo-tunglferðin hafi verið mistök, helstu ein glæstasta stund mannkynsins.

En samt eyðum við hundruðir falt meiri peningum í styrjaldarbrölt. Jafnvel ef þú myndir 20-falda peningana sem NASA fær árlega þá myndi það ekki ná í 10% af því sem Department of Defense fær. Í raun eyða BNA meiri peningum í lúxuferðir, golfvelli, fyrir herforingjana sína heldur en könnunarferðir til Mars.

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 15:38
af Stutturdreki
Ef BNA sóuðu jafn mikið í NASA og þeir sóa í herinn ætla ég að lofa mér að fullyrða að við (eða þeir) væru löngu komnir til mars og líklega enn víðar.

Mynd

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 21:16
af GuðjónR
appel skrifaði:...en enginn segir að Apollo-tunglferðin hafi verið mistök, helstu ein glæstasta stund mannkynsins..

Allt sviðsett... sorry!

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 22:15
af Hnykill
GuðjónR skrifaði:
appel skrifaði:...en enginn segir að Apollo-tunglferðin hafi verið mistök, helstu ein glæstasta stund mannkynsins..

Allt sviðsett... sorry!

Svo þú ert einn af þeim Guðjón !.. á þessum tíma voru Bandaríkinn og Rússland í geimkeppninni svokölluðu.. þegar bandaríkjamenn lentu á tunglinu voru rússar með alla sína sjónauka og græjur að fylgjast með þeim.. og þeir fylgdust með þeim alla leið, og á meðan þeir lentu á tunglinu.. þeir fylgdust með þeim á radar og sjónauka alla leið til tunglsins. haldið þið að að það hafi einginn verið að fylgjast með þeim eða?

Rússar fylgdust með þeim allann tímann.. ef þeir hefðu ekki farið eða lent á tunglinu haldiði þá að rússar hafi bara sætt sig við einhver myndbönd frá bandaríkjunum ?? þeir voru að horfa á allann tímann !

Re: Nýlenda á Mars?

Sent: Þri 07. Jan 2014 22:32
af rango
GuðjónR skrifaði:
appel skrifaði:...en enginn segir að Apollo-tunglferðin hafi verið mistök, helstu ein glæstasta stund mannkynsins..

Allt sviðsett... sorry!

Þeir skildu eftir spegla og fullt af drasli, ég neita að trúa því að tunglið sé svo langt í burtu að enginn getur séð það.
Hversu stórann kíkir þarf?