Síða 1 af 2

Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 01:14
af GuðjónR
Mér fannst það mjög gott.

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 01:18
af worghal
Thetta var svo thusundsinnum betra en i fyrra.
Byrjunar arridid var frabaert og tulkunin a sigmundi allveg mognud :D

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 01:21
af Yawnk
Bara mjög fínt, hló samt eiginlega meira af strákunum í Hraðfréttum á undan skaupinu, það var algjör snilld!

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 01:30
af urban
ekkert meistaraverk (enda á skaupið ekki að vera það), en semsagt ekkert frábært, en nokkuð gott að mínu mati (hakaði í gott, fannst það ekki eiga alveg skilið efsta valmöguleikann)
mér fannst upptalningin í lokin yfir það sem að komst ekki í skaupið reyndar alveg frábær.
margir góðir djókar, aðrir ekki jafn góðir (sjálfsagt fattaði maður ekki einhverja þeirra)

lokalagið fannst mér bara hreinlega slappt (steinda jr. lög eru ekki góð við fyrstu hlustun)
lokalagið 2010 er einfaldlega það besta sem að hefur komið lengi (að mínu mati)

EN já, guði sér lof þá er nú smekkur manna misjafn og það er alveg frábært að fá eitthvað sem að við getum rifist um núna svona á nýju ári "ótengt" því sem að skiptir einhverju máli :)

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 01:44
af hakkarin
Lélegt. Þetta var bara kosningarauglýsing fyrir samfylkinguna og vinstri-græna eins og venjulega (enda rúv sem að stendur fyrir þessu sorpi). Atriðið þar sem að móðurinn var að svæfa krakkan sinn með því að segja því sögu af "skítuga sjálfstæðisflokkinum" var svo sjúklega áróðurskennt að ég fékk grænar bólur.

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 01:49
af Tesy
Mér fannst þetta frekar lélegt, hló svona einu sinni en þetta var samt betra en í fyrra.

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 01:52
af Vignirorn13
Mér fannst skaupið mjög gott :)

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 01:55
af mercury
Besta skaupid... Sidustu 4 arin amk

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 02:09
af Orri
Mér fannst það gott.
Ég verð reyndar að segja að ég bjóst eiginlega við aðeins meiru frá þessum hópi snillinga sem stóðu á bakvið þetta skaup, hvað hefði mátt betur fara þori ég þó ekki að fara með.

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 02:23
af MrSparklez
Mér fannst það fínt en amma og afi sem hafa aldrei átt tölvu né farsíma fannst það heldur slapt.

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 02:24
af Daz
Ég hafði engar væntingar, þetta var frábært (af áramótaskaupi að vera, í það minnsta á top 5 skaupum sem ég hef séð síðasta árið). Ég held það séu tengsl milli minna væntinga og hvernig mér líkar það.

edit: þori ekki að gera nýjan póst, en...
hakkarin skrifaði:Lélegt. Þetta var bara kosningarauglýsing fyrir samfylkinguna og vinstri-græna eins og venjulega (enda rúv sem að stendur fyrir þessu sorpi). Atriðið þar sem að móðurinn var að svæfa krakkan sinn með því að segja því sögu af "skítuga sjálfstæðisflokkinum" var svo sjúklega áróðurskennt að ég fékk grænar bólur.

http://sveinndagur.blog.is/blog/sveinnd ... y/1342440/
Fundinn.
Fæ ég verðlaun?

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 02:33
af AntiTrust
Fannst það fínt á köflum. Gaman að sjá það fókusa líka á atriði sem yngri kynslóðir geta hlegið að, meira 'mainstream'.

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 02:40
af danniornsmarason
Mér fannst það mjög gott miðað við fyrri ár, loksins ekki bara um pólitík :happy

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 03:21
af coldone
Þetta var mjög gott þetta árið.

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 07:06
af trausti164
Mér finnst þetta vera með betri skaupum síðari ára.

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 07:13
af lukkuláki
Alveg frábært :megasmile

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 13:17
af Prentarakallinn
Mér fannst það vera frekar mehh, eina atriðið sem ég hjó eitthvað að viti að var atriðið með Range Rover gaurinn

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 13:30
af rapport
Það voru þarna toppar...

"Eru píratar til í alvöru" = snilld...

Vigdís Hauks "RÚV rústa þér...

Biggest looser var aumt en samt svo satt...

Range Rover gaurinn, það var gaman að hann komst að.

Vodafone = það var farið varlega með það atriði

Leikkonan að taka á móti sjúkum = fannst það fyndið (ég vinn á LSH, líklega smá einkahúmor)

En það sem mér fannst einna best var Ásgeir Trausti að syngja um kúkinn á Selfossi... það var allt svo satt... svona er þetta þarna...

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 13:47
af juggernaut
hakkarin skrifaði:Lélegt. Þetta var bara kosningarauglýsing fyrir samfylkinguna og vinstri-græna eins og venjulega (enda rúv sem að stendur fyrir þessu sorpi). Atriðið þar sem að móðurinn var að svæfa krakkan sinn með því að segja því sögu af "skítuga sjálfstæðisflokkinum" var svo sjúklega áróðurskennt að ég fékk grænar bólur.


Þú tókst kannski ekki eftir hvernig sá sketch endaði ;)

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 14:45
af Garri
juggernaut skrifaði:
hakkarin skrifaði:Lélegt. Þetta var bara kosningarauglýsing fyrir samfylkinguna og vinstri-græna eins og venjulega (enda rúv sem að stendur fyrir þessu sorpi). Atriðið þar sem að móðurinn var að svæfa krakkan sinn með því að segja því sögu af "skítuga sjálfstæðisflokkinum" var svo sjúklega áróðurskennt að ég fékk grænar bólur.


Þú tókst kannski ekki eftir hvernig sá sketch endaði ;)

Held að allir hafi tekið eftir því.. það sem er hinsvegar fyndið og alveg eftir línunni er sú staðreynd að það var Samfylkingin ásamt Sjálfstæðismönnum sem voru með völd árin fyrir hrun.

En.. það hentar ekki kannski alveg ímynd 101 listamanna-elítunnar og stuðningsmanna Samfylkingarinnar að skíta sína menn út.

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 15:14
af hagur
hakkarin skrifaði:Lélegt. Þetta var bara kosningarauglýsing fyrir samfylkinguna og vinstri-græna eins og venjulega (enda rúv sem að stendur fyrir þessu sorpi). Atriðið þar sem að móðurinn var að svæfa krakkan sinn með því að segja því sögu af "skítuga sjálfstæðisflokkinum" var svo sjúklega áróðurskennt að ég fékk grænar bólur.


Æ góði besti.

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 15:22
af GuðjónR
Eitt besta, ef ekki það besta skaup sem ég hef séð.
Truflaði mig smá þegar "kúkurinn" kom á skjáinn, var í góðum fíling að borða snakk og drekka jólaöl.
Kannski ágætt að missa lystina á snakkinu. :happy

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 15:43
af hallihg
Þetta var mjög gott skaup fyrir yngri helming þjóðarinnar en með sama skapi mjög slæmt fyrir eldri helminginn IMO, mér fannst þetta fínt, aðeins of hægt tempó, maður er kannski óvanur svona skaupi sem bregður aðeins útaf vananum.

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 15:47
af HalistaX
Fokk skaupið, sáuði Stundaskaupið með Góa and what's her face? Það skoo... það var sko eitthvað...

Annars finnst mér að þessi skaup hafi dáið fyrir löngu síðan.

Re: Hvernig fannst þér skaupið í ár?

Sent: Mið 01. Jan 2014 16:25
af urban
GuðjónR skrifaði:Eitt besta, ef ekki það besta skaup sem ég hef séð.
Truflaði mig smá þegar "kúkurinn" kom á skjáinn, var í góðum fíling að borða snakk og drekka jólaöl.
Kannski ágætt að missa lystina á snakkinu. :happy


þetta var náttúrulega sýnt á marmálstímum nokkrum sinnum í sumar.